
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna

Barcelona fór illa með sænsku meistarana
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í FC Rosengård sóttu ekki gull í greipar Evrópumeistara Barcelona þegar liðin mættust í Meistaradeildinni í Malmö í kvöld.

Þyngri byrðar á herðum Guðrúnar gegn Barcelona
Guðrún Arnardóttir, landsliðskona í fótbolta, á fyrir höndum afar krefjandi verkefni í dag með liði sínu Rosengård þegar sjálfir Evrópumeistarar Barcelona mæta í heimsókn til Malmö.

UEFA skoðar að stofna Evrópudeild kvenna
UEFA íhugar sterklega að setja á fót Evrópudeild kvenna til hliðar við Meistaradeildina. Málið verður rætt á fundi framkvæmdastjórnar UEFA auk breytinga á núverandi fyrirkomulagi Meistaradeildarinnar.

Kerr með þrennu í sigri Chelsea
Sam Kerr skoraði þrennu þegar Chelsea lagði París FC í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Þá vann AS Roma 3-0 sigur á Ajax.

Glódís Perla lagði upp sigurmarkið í París
Bayern München lagði París Saint-Germain á útivelli í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði gestanna, lagði upp sigurmarkið.

Brann vann en Ingibjörg fór í fýluferð
Önnur umferð Meistaradeildar kvenna fór fram í kvöld. Natasha Anasi-Erlingsson kom inn á sem varamaður fyrir Brann og hélt sigurgöngu þeirra áfram en Guðrún Arnardóttir og stöllur í Rosengard máttu þola tap gegn Benfica. Ríkjandi meistarar Barcelona eru enn ósigraðar.

Segir að vandræðalega lélegir dómarar hafi rænt Chelsea sigri
Þjálfari kvennaliðs Chelsea í fótbolta, Emma Hayes, var vægast sagt ósátt við frammistöðu dómaranna í 2-2 jafntefli við Real Madrid á Spáni í Meistaradeild Evrópu í gær.

Jafnt í stórleiknum og vondur dagur fyrir Parísarliðin
Real Madrid og Chelsea mættust í stórleik í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Sænska liðið Häcken vann góðan útisigur í París.

Glódís í hjarta varnarinnar í grátlegu jafntefli Bayern
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern gerðu í kvöld 2-2 jafntefli við Roma þegar liðin mættust í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í knattspyrnu.

Natasha kom inn af bekknum og tryggði Brann sigur
Landsliðskonan Natasha Anasi reyndist hetja Brann er liðið heimsótti St. Polten í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í kvöld. Hún kom inn af bekknum og skoraði sigurmark gestanna í 1-2 sigri.

Riðlarnir í Meistaradeildinni: Íslendingaslagur í A-riðli
Dregið var í riðla Meistaradeildar Evrópu kvenna í dag. Fimm Íslendingalið eru á meðal þeirra 16 sem taka þátt í riðlakeppninni.

Stjóri United gagnrýnir „fáránlegt“ fyrirkomulag Meistaradeildarinnar
Manchester United verður ekki í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í fótbolta. Stjóri liðsins segir fyrirkomulag keppninnar fáránlegt.

Real Madrid sló lið Ingibjargar úr keppni
Ingibjörg Sigurðardóttir og liðsfélagar hennar í norska liðinu Vålerenga eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 3-0 tap á heimavelli gegn Real Madrid í kvöld.

Sigur Vals dugði ekki til í Austurríki
Valskonur tryggðu sér nú rétt í þessu 1-0 sigur á austurríska liðinu St. Pölten í seinni leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Valskonur komast þó ekki áfram í keppninni.

Engin Sveindís þegar Wolfsburg féll óvænt úr keppni
Wolfsburg er úr leik í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu kvenna eftir 2-0 tap gegn Paris FC á heimavelli í dag. Wolfsburg komst alla leið i úrslitaleik keppninnar á síðasta tímabili.

Guðrún skoraði þegar Rosengård tryggði sér sæti í riðlakeppninni
Sænska liðið Rosengård tryggði sér örugglega sæti í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu eftir öruggan sigur á serbneska liðinu Spartak Subotica. Guðrún Arnardóttir var á meðal markaskorara í leiknum.

Guðrún skrefi nær riðlakeppninni
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í liði Rosengård eru einum leik frá riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið vann umspilsleik sinn í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - St. Pölten 0-4 | Brekkan orðin ansi brött fyrir Valskonur
Íslandsmeistarar Vals eru með bakið upp við vegg eftir 0-4 tap á heimavelli gegn austurrísku meisturunum St. Pölten. Þetta var fyrri leikur liðanna í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Sigurvegari þessa einvígis tekur þátt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vetur.

Pétur um riðlakeppni Meistaradeildarinnar: „Ætlum að reyna þangað til við komumst inn“
Íslandsmeistarar Vals mæta St. Pölten frá Austurríki, meistaraliðinu þar í landi, í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Pétur Pétursson, þjálfari Vals, segir Valskonur ætla að reyna við riðlakeppnina þangað til þær komast inn.

Þjálfari Man United vill breyta fyrirkomulaginu á Meistaradeild Evrópu
Á meðan allt er gert til að stækka Meistaradeild Evrópu karla megin í von um að koma stærstu liðum Evrópu í keppninni á kostnað liða sem eiga það frekar skilið þá verður ekki það sama sagt um Meistaradeildina kvenna megin.

Hætta á að heimaleikir vetrarins verði erlendis: „Ótrúlega leiðinlegt“
KSÍ vill síður bera kostnað af því að halda Laugardalsvelli við vegna Evrópuverkefna íslenskra félagsliða í vetur. Vel má vera að færa þurfi landsleiki í febrúar og mars út fyrir landsteinana.

Sveindís og Wolfsburg ætla að vinna Meistaradeildina að þessu sinni
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, segir að Wolfsburg setji stefnuna á að vinna alla þá titla sem í boði eru á tímabilinu.

Valur mætir austurrísku meisturunum
Íslandsmeistarar Vals mæta St. Pölten frá Austurríki í 2. umferð Meistaradeildar kvenna í fótbolta. Sigurvegarinn í einvíginu kemst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Stórlið Arsenal óvænt úr leik í Meistaradeildinni
Arsenal er úr leik í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu eftir tap gegn París FC í forkeppninni í gær. Arsenal komst alla leið í undanúrslit í keppninni í fyrra.

Vålerenga áfram í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir vítaspyrnukeppni
Vålerenga fór áfram í aðra umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Celtic var með unninn leik en Vålerenga jafnaði undir lok framlengingar og knúði fram vítaspyrnukeppni þar sem heimakonur höfðu betur .

Valur skrefi nær riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu
Valur vann Villaznia í Albaníu 1-2 í hreinum úrslitaleik um sæti í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu.

Sigur hjá Stjörnunni eftir maraþonleik og vítaspyrnur
Stjarnan vann sigur á Sturm Graz í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir framlengdan leik og vítakeppni. Úrslit réðust ekki fyrr en í níundu umferð vítaspyrnukeppninnar.

Juventus úr leik í Meistaradeildinni eftir vítakeppni
Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Juventus eru úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið tapaði í dag gegn Frankfurt eftir vítakeppni.

UEFA hækkar peningastyrk til liða sem komast ekki í Evrópukeppni
Evrópska knttspyrnusambandið og samtök leikmanna í Evrópu hafa staðfest nýja skiptingu fjármagns þar sem hærra hlutfall fer til þeirra liða sem ekki vinna sér inn sæti í Evrópukeppnum.

Vålerenga áfram með í Meistaradeildinni
Ingibjörg Sigurðardóttir var með fyrirliðabandið hjá Vålerenga þegar liðið vann góðan sigur á Minsk í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í dag.