Skoðun
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 45 ›
Gústaf Adolf Skúlason: Orkan og ferðaþjónustan Miklar vonir eru nú bundnar við ferðaþjónustu sem vaxtargrein í íslensku atvinnulífi. Óhætt er að fullyrða að orkufyrirtækin leggi þar sitt af mörkum. Í tengslum við landkynningu er þannig gjarnan leitað til íslenskra orkufyrirtækja og þau fengin til að setja þar nýtingu endurnýjanlegrar orku í forgrunn. Dæmi um þetta er íslenski skálinn á heimssýningunni í Sjanghæ. Skoðun 19.5.2010 16:57
Samfylkingin í Grindavík hefur tekið afstöðu gagnvart fyrningarleið Hið nýja stjórnmálaafl í Grindavík, G-listinn, sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þar sem að þeir undra sig á afstöðuleysi annarra flokka í bænum gagnvart fyrningarleiðinni svonefndu. Þessi tilkynning þeirra er að mörgu leyti góð og gild en er engu að síður það fyrsta sem kemur frá þeim herbúðum um þetta stóra hagsmunamál okkar Grindvíkinga. Kannski að þeir hafi kveikt á perunni varðandi þessi mál eftir mjög upplýsandi fundi með útgerðarmönnum á undanförnum dögum. Við Samfylkingarfólk í Grindavík höfum aldrei farið leynt með það að við höfnum þessari leið og teljum hana algert feigðarflan. Við sem erum í fararbroddi fyrir framboðslistann í komandi sveitarstjórnarkosingum höfum hafnað henni bæði í ræðu og í riti. Við teljum að með henni sé vegið mjög alvarlega að þeim góðu fyrirtækjum sem hér eru rekin og hafa haldið uppi atvinnustiginu áratugum saman. Skoðun 19.5.2010 21:39
Bjarni Karlsson: Íslenska undrið Í leiðara Fréttablaðsins mánudaginn 17. maí sl. lýsir Steinunn Stefánsdóttir eftir lífsmörkum stjórnmálaflokka í komandi sveitarstjórnarkosningum og vill meira en vel heppnað grín. Skoðun 19.5.2010 09:31
Árni Þór Sigurðsson: Styrkja þarf stjórnsýsluna Rannsóknarskýrsla Alþingis varpar ljósi á margvíslega veikleika stjórnsýslunnar hér á landi. Stofnanir eru margar og veikburða og hið sama má segja um ráðuneytin. Að tilstuðlan ríkisstjórnarinnar var sérstakri nefnd falið að rýna í rannsóknarskýrsluna og móta tillögur um bætta stjórnsýslu í kjölfar hrunsins. Í skýrslu nefndarinnar er m.a. á það bent að framkvæmdavaldið búi við ófullnægjandi aðhald úr stjórnsýslunni, frá Alþingi, fjölmiðlum og mennta- og vísindastofnunum. Þá er undirstrikað mikilvægi þess að efla hinn pólitíska þátt innan ráðuneytanna. Skoðun 19.5.2010 09:30
Ármann Kr. Ólafsson: Sammála og ósammála Þriðjudaginn 17. maí birtust tvær greinar á skoðanaopnu Fréttablaðsins. Inntaki annarrar greinarinnar er ég sammála en hinni greininni er ég ósammála. Steinunn Stefánsdóttir skrifaði grein undir yfirskriftinni "Vekjum kosningabaráttuna" sem ég er sammála að þurfi að gera. Skoðun 19.5.2010 09:28
Guðmundur Magnússon: Er ekkert að marka ráðherra? Þegar ráðist var á öryrkja og aldraða um mitt ár í fyrra fullyrti félags- og tryggingamálaráðherra að „…það væri betra að fá skellinn strax heldur en smátt og smátt". Það er ekki liðið árið þegar sami ráðherra kemur í fjölmiðla og lýsir því yfir að nú standi til að draga enn frekar úr velferðarkerfinu: "…að spara þar um 6% og fækka störfum" sem að sjálfsöðu þýðir minni þjónusta við einmitt þá er verst eru settir, þá sem erfiðast eiga með breytingar, sem eru viðkvæmastir í þjónustu o.s.frv.! Skoðun 18.5.2010 16:15
Jón Ólafsson: Háskóli Íslands í vanda Forystumenn Háskóla Íslands hafa undanfarin ár reynt að gera tvennt á sama tíma: Keppa við aðra háskóla um nemendur og fjármagn eins og skólinn væri fyrirtæki á samkeppnismarkaði og færa rök fyrir því að besta og hagkvæmasta fyrirkomulag rannsókna og háskólamenntunar sé að fela Háskóla Íslands að sjá um þetta að mestu eða öllu leyti. Skoðun 18.5.2010 09:17
Brynjar Níelsson: Að vera sakborningur Fram hefur komið í fjölmiðlum að nokkrir starfsmenn Arion banka hafi stöðu sakbornings við rannsókn sérstaks saksóknara á málum sem tengjast Kaupþingi. Ekki var að sökum að spyrja að hávær krafa varð uppi um að viðkomandi starfsmönnum yrði sagt upp eða þeir leystir frá störfum meðan rannsókn færi fram. Gjarnan er vísað til siðferðissjónarmiða til rökstuðnings þeirri kröfugerð. Því er tilefni til að benda á nokkur mikilvæg atriði um réttarstöðu manna við rannsókn mála af þessu tagi, þar sem uppi er grunur um refsiverða háttsemi. Skoðun 18.5.2010 09:15
Reynir Sigurðsson: Kosningabarátta í boði Reykjanesbæjar Nú er mælirinn fullur. Nýútkominn glansbæklingur Sjálfstæðisflokksins er kostaður af útsvarsgreiðendum í Reyknesbæ. Svo gott sem allar myndirnar sem í honum eru hafa áður birst í kynningar og upplýsingaefni Reykjanesbæjar. Ekki þarf annað en renna yfir bæklinginn. Þetta sér hver hugsandi maður. Skoðun 14.5.2010 11:24
Líf Magneudóttir: Lítilmagnar samtímans Fyrir ekki ýkja löngu dáðist borgarfulltrúi í viðtali í sjónvarpinu að öllu örláta fólkinu sem lætur gott af hendi rakna til lítilmagnans sem stendur í biðröð eftir nauðþurftum og fram spretta myndir í hugann. Skoðun 14.5.2010 09:31
Dagur B. Eggertsson: Reykjavík verður að taka forystu Í borgarstjórnarkosningunum í vor stendur valið milli þess að bíða af sér kreppuna, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér, eða beita afli borgarinnar til að vinna sig út úr henni eins hratt og kostur er, einsog hugmyndir Samfylkingarinnar ganga út á. Við teljum eindregið að Reykjavík eigi að taka sér forystuhlutverk á krepputímum. Sú forysta á að snúast um þrennt: tryggja atvinnu, tryggja öryggi og kveikja von um betra samfélag. Þetta þrennt er reyndar nátengt: Atvinna skapar öryggi sem skapar von. Ef við sköpum ekki atvinnu þá dregur úr öryggi og vonin dvínar - og andstæðan verður jafnvel ofan á: óöryggi og vonleysi. Skoðun 12.5.2010 09:39
Jakob Frímann Magnússon: Vörðum leiðina að manneskjulegra samfélagi Bergsteinn Sigurðsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, fjallaði í gær um grein mína í sama blaði sl. laugardag. Hann fór þó á svig við kjarna gagnrýni minnar. Sú gagnrýni lýtur ekki að handtöku tiltekinna einstaklinga heldur að munstri sem einkennist af markvissri og vaxandi fjölmiðlasækni opinberra embættismanna á frumstigum ákæru- og dómsmála. Slíka þróun tel ég varhugaverða og lítt til sóma í okkar fámenna íslenska samfélagi. Sérstaklega er mikilvægt að embættismenn haldi haus við þær óvenjulegu aðstæður sem nú ríkja. Þó að dæmi sl. helgar sé nýjasta tilvikið þá nefni ég einnig önnur frá fyrri tíð. Af nógu er að taka. Bent skal á að nota hefði mátt bílakjallara saksóknarahússins sl.föstudag, ef ekki hefði staðið vilji til mikils uppsláttar eins og raun varð á. Skoðun 12.5.2010 09:37
Fátækt og bænir Fyrir utan eldfjöllin eru fyrirbæri ársins 2010 kannski undirskriftalistar þar sem fólk tjáir afstöðu sína og skoðanir til ólíkra málefna. Áskoranirnar til forseta Íslands um að skrifa ekki undir Icesave lögin eru okkur í fersku minni og á Facebook samskiptavefnum hafa ótal slíkir listar sprottið á formi hópa sem helgaðir eru ólíkum málefnum. Þetta eru nokkurs konar bænalistar. Skoðun 12.5.2010 09:35
Ari Trausti Guðmundsson: Siðbót í lausu lofti Það er lélegur vonarpeningur að halda að siðbót sé hugarfarsbreyting sem menn hugsa upp í lausu lofti. Allar verulegar hugmyndafræðilegar breytingar hafa bæði efnahagslegan og stjórnmálalegan grunn. Íslenskt efnahagskerfi byggir á mismunun og takmarkalausri gróðasókn, hvað svo sem segja má um eitt og annað jákvætt í því. Stærstu ákvarðanirnar og aðgerðirnar sem urðu að veruleika fyrir hrunið voru meðvitaðar og byggðar á ákveðinni hugmyndafræði. Þær voru ekki mistök. Stjórnmálamenn skorti ekki staðfestu til að stöðva það sem rangt var. Þeir voru ýmist samþykkir vegferðinni eða eygðu í henni eitthvað skárra en fyrir var. Skoðun 11.5.2010 12:42
Steinar Bragi: Teygður þumall Hópur fólks fer inn í Alþingi, sem stendur opið. Það er leyfilegt að heimsækja Alþingi. Tvær manneskjur, piltur og stúlka, komast alla leið upp á pallana og hrópa á nokkra pent klædda alþingismenn að "drulla sér út". Þessum tveim sem komust alla leið er dröslað aftur niður stigana, þar sem aðrir mótmælendur hafa verið stöðvaðir - og þumall tognar á þingverði. Þumallinn brotnar ekki, eða rifnar eða húkkar far upp í Kópavog, hann tognar. Í dag er þumallinn kominn í lag. Skoðun 11.5.2010 12:39
Jóhanna Sigurðardóttir: Tökum til á tíu ára afmælinu Um helgina heldur Samfylkingarfólk um allt land upp á tíu ára afmæli flokksins. Efnt verður til tiltektardags á vegum allra framboða flokksins til sveitarstjórna þar sem áhersla verður lögð á að fegra og bæta umhverfið. Þannig er með táknrænum hætti haldið upp á afmælið og einnig minnt á að þörf er siðbótar og endurskoðunar á pólitísku umhverfi og forsendum stjórnmálabaráttu á Íslandi. Skoðun 7.5.2010 19:57
Einar Skúlason: Græn borg er skemmtileg borg Reykjavíkurborg á að vera í fararbroddi í umhverfismálum. Ekki er nóg að stíga græn skref, þótt þau séu góð. Við þurfum græna byltingu. Skoðun 7.5.2010 20:08
Forkastanleg vinnubrögð sérstaks saksóknara Hálfu öðru ári eftir hrun íslenska bankakerfisins hefur orðið háværari krafan um sýnilegan afrakstur rannsóknarvinnu sérstaks saksóknara og annarra sem treyst hefur verið til að komast til botns í meintum sakarefnum tengdum hruninu. Skoðun 7.5.2010 22:14
Haukur Már Helgason: Réttlæti í plastdollu Ákæru á hendur níu mótmælendum vetrarins 2008 til 2009 er ekki aðeins beint gegn læknanemanum, myndlistarmanninum, leikskólakennaranum, líftæknifræðingnum eða öðrum aðgerðasinnum í hópi sakborninga. Hún beinist gegn öllum þeim sem líta svo á að vald ríkisins sé háð vilja fólksins. Skoðun 7.5.2010 19:54
Friðrik Rafnsson: Fagurgræn kælitækni Stundum býsnast menn mjög yfir því að Íslendingar geti lent í því, fari allt á enn verri veg en þegar er orðið, að hokra í menningarsnauðri verstöð á hjara veraldar. Þetta er auðvitað bara fullyrðing sem menn hafa kastað fram í hálfkæringi, en er þó nokkuð gott dæmi um heldur dapurlegt gæðastig umræðunnar hérlendis. Skoðun 7.5.2010 22:07
Helgi Helgason: Aukið íbúalýðræði Frjálslyndir í Kópavogi hafa gengið frá framboðslista fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar í Kópavogi. Fyrstu þrjú sætin eru þannig skipuð: 1. sæti skipar Helgi Helgason stjórnmálafræðingur, 2. sæti skipar Ásta Hafberg varaformaður Frjálslynda flokksins og 3. sæti Kolbrún Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar. Listinn var kynntur á fundi á sumardaginn fyrsta. Skoðun 7.5.2010 22:09
Kristján L. Möller: Bætum loftið með vistvænum samgöngum Samgöngur og hvers kyns flutningar eru þau svið sem hafa einna mest áhrif á umhverfi okkar og eitt brýnasta verkefnið sem stjórnvöld hvar sem er í heiminum standa frammi fyrir er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Engin stjórnvöld eru undanskilin í því verkefni. Enginn einstaklingur er heldur undanskilinn. Í dag hefst átakið ,,Hjólað í vinnuna” og því kjörið að hrinda aðgerðum af stað. Skoðun 4.5.2010 17:15
Grétar Mar Jónsson: Ríkisstjórnin í gildru LÍÚ Ríkisstjórn Íslands er að ganga í gildru LÍÚ varðandi veiðiráðgjöf í þorski og öðrum tegundum. LÍÚ er með meirihluta í stjórn Hafró, þeir eiga þar þrjá fulltrúa af fimm og hafa alltaf ráðið því sem þeir hafa viljað ráða hjá stofnuninni. Skoðun 3.5.2010 09:12
Guðmundur Franklín Jónsson: Spilling lífeyrissjóðanna? Mikið hefur verið talað um ábyrgð íslenskra lífeyrissjóða á hruninu. Í stjórnum sjóðanna eru menn sem borga sjáfum sér tugi milljóna í árslaun og aðra bitlinga og hafa fulltrúa í stjórnum fyrirtækja, banka, stofnana og eiga sterk ítök í íslensku viðskiptalífi. Skoðun 2.5.2010 15:37
Einar Gunnarsson: Af „líffræðilegum fjölbreytileika“ Hæstvirtur umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kveður sér hljóðs í Fréttablaðinu 23. apríl síðast liðinn. Umfjöllunarefnið er barátta (hvað annað) fyrir vexti og viðgangi dýra og plöntutegunda og þeirri meintu ógn sem moðsuðuklisjunni óþjálu, um „líffræðilegan fjölbreytileika“ stafar af „framandi ágengum tegundum“. Skoðun 30.4.2010 10:02
Njörður P. Njarðvík: Siðareglur fyrir forseta Sá sem hefur næma siðferðiskennd, þarf ekki að setja sér sérstakar reglur. Siðvitund hans segir honum líkt og ósjálfrátt hvað er við hæfi. Það hefði væntanlega þótt tíðindum sæta á tímum Vigdísar Finnbogadóttur og Kristjáns Eldjárn, að talin væri þörf á sérstökum siðareglum um störf þeirra. Hið sama hygg ég að segja megi um Ásgeir Ásgeirsson og Svein Björnsson, þótt ég þekkti ekki að sama skapi til þeirra persónulega. Mér er minnisstætt að ég heyrði Kristján Eldjárn segja, að á Bessastöðum skyldi ríkja alþýðlegur virðuleiki. Þá var sátt með þjóð og forseta - og gagnkvæm virðing. Skoðun 30.4.2010 09:30
Hjálmar Sveinsson: Fákeppnin er skipulagsmál Kostir verslunarmiðstöðva eru miklir, það sést best af vinsældum þeirra. Í þeim er hægt að kaupa næstum allt í einni ferð og ef þær eru reistar í útjaðri byggðanna er hægt bjóða verslunareigendum mun ódýrara húsnæði en tíðkast við hefðbundnar verslunargötur. Þegar þar við bætist að verslunarmiðstöðvar bjóða upp á nær ótakmörkuð, "ókeypis bílastæði" verða þær ómótstæðilegar. Þrátt fyrir það hafa undanfarin 10 til 20 ár verið skýr merki um að blómatími þeirra sé liðinn í sjálfu upprunalandinu, Bandaríkjunum. Þar er þeim lokað í nokkuð stórum stíl. Það er merkileg þróun og afar myndræn eins og sjá má á mögnuðum vef tileinkuðum dauðum mollum: deadmalls.com. Skoðun 30.4.2010 09:28
Sigurður Pétursson: Dýrafjarðargöng aftur á áætlun Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfjarða skorar á samgöngunefnd Alþingis að setja aftur inn á Samgönguáætlun áranna 2009-2012 framlög til Dýrafjarðarganga, og staðfesta þannig fyrri vilja Alþingis og Vestfirðinga að göngin milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar verði sett á áætlun samhliða Norðfjarðargöngum sem næsta jarðgangaframkvæmd á Vestfjörðum." Skoðun 30.4.2010 09:24
Helgi Áss Grétarsson: Norræna ofveiðisamfélagið Í hugmyndaheimi margra Íslendinga er undirrót alls ills í samfélaginu það fyrirkomulag sem við lýði hefur verið við stjórn fiskveiða sl. tvo áratugi. Ófáir hafa haldið því fram að þangað eigi efnahagshrunið rót sína að rekja. Upptaka fiskveiðistjórnkerfisins hafi ýtt til hliðar því samfélagi sem grundvallaðist á norrænum gildum um velferð og jöfnuð. Þessi einfalda söguskoðun var í megindráttum sett fram í pistli Guðmundar Andra Thorssonar sem birtist í Fréttablaðinu 26. apríl sl., og þótt hún eigi sér marga fylgjendur þá er hún að mínu mati fjarstæðukennd. Fyrir þessu eru margvíslegar ástæður en hér verða eingöngu fáeinar nefndar. Skoðun 30.4.2010 09:18
Hanna Birna Kristjánsdóttir: Aukin þjónusta við íbúa Reykjavíkurborg leggur áherslu á að bæta stöðugt þjónustu við íbúa í þeirra eigin nærumhverfi. Borgaryfirvöld eru meðvituð um að þarfir íbúanna eru ólíkar eftir hverfum og þörfin fyrir hverfamiðaða þjónustu og upplýsingar er mikil. Hvert þeirra tíu hverfa sem borgina byggja, allt frá vesturbæ norður á Kjalarnes, hafa sína sérstöðu. Skoðun 30.4.2010 09:16