
Stéttarfélög

Hagnaður Eflingar 543 milljónir króna
Samkvæmt ársreikningi stéttarfélagsins Eflingar skilaði félagið 543 milljóna króna hagnaði árið 2021. Bókfært eigið fé er þrettán og hálfur milljarður króna.

Með skilaboð til verkalýðshreyfingarinnar fyrir kjaraviðræður
Viðskiptaráðherra biðlar til verslana að ráðast í sem minnstar verðhækkanir til að halda verðbólgunni eins lágri og mögulegt er. Hún vonar að verkalýðshreyfingin sýni ábyrgð í komandi kjarasamningum.

Telur almenning klárari en svo að taka undir kröfu VR
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist telja að almenningur sé skynsamari en svo að taka undir kröfur formanns VR um miklar launahækkanir í haust í ljósi vaxtahækkana Seðlabankans. Hann segir alla í landinu tapa á aukinni verðbólgu.

Bein útsending: Varpa ljósi á stöðu og þróun leikskólavistunar ungra barna
BSRB – heildarsamtök stéttarfélaga starfsfólks í almannaþjónustu kynna í dag niðurstöður skýrslu sem er ætlað að varpa ljósi á stöðu og þróun leikskólavistunar ungra barna á Íslandi og atvinnuþátttöku foreldra.

Útkall - kjósum öll!
Nú stendur yfir kosning formanns í Félagi grunnskólakennara. Síðar í mánuðinum fer svo fram kosning til annarra trúnaðarstarfa fyrir félagið. Kosin verður stjórn, samninganefnd og skólamálanefnd. Það er hagur okkar allra að til þessara starfa veljist fjölbreyttur og öflugur hópur. Ert þú grunnskólakennari? Hefur þú hugleitt að gefa kost á þér til starfa?

Undarlegt lýðræði í Kennarafélagi Reykjavíkur
Í formannskosningum í Kennarafélagi Reykjavíkur, sem haldnar voru 29. apríl s.l. varð ég vitni að stórfelldri vanvirðingu á lýðræðislegum stjórnarháttum. Þetta byrjaði kvöldið áður en framboðsfrestur rann út eða 29. mars.

„Aldrei hægt að réttlæta skipulagsbreytingar sem ástæðu hópuppsagna“
Stjórn Húss Fagfélaganna segir aldrei hægt að réttlæta hópuppsagnir með skipulagsbreytingum eða jafnlaunavottum. Hún segir jafnframt ekki hægt að verja gjörðir meirihlutar stjórnar Eflingar um hópuppsögn á skrifstofu félagsins.

Týndi formaðurinn og 2F
Hvenær hættir stéttarfélag að hugsa um hag allra sinna félagsmanna og stundar að mismuna félagsmönnum? Í VM í dag eru ólíkir hópar starfsstétta í einu og sama stéttarfélagi en VM er því miður slæmt dæmi um þannig stéttarfélag.

Nauðsynlegt að verkalýðshreyfingin nái aftur vopnum sínum
Mikilvægt er nú sem aldrei fyrr að verkalýðshreyfingin og láglaunafólk standi saman að sögn verkalýðsforingjanna. Formaður Eflingar segir enn mikla ólgu innan hreyfingarinnar en að horfa þurfi fram á við.

Ég brenn fyrir þessu starfi
Fyrir stuttu var mér boðið að eiga samtal við kennaranema í Háskóla Íslands. Tilefnið voru vangaveltur og spurningar sem brunnu á kennaranemum um störf og starfsskilyrði í grunnskóla.

Félag grunnskólakennara lagði sveitarfélögin í máli um veikindarétt félagsmanns
Félag grunnskólakennara hafði betur í máli gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga í máli sem snýst um veikindarétt og ætlar sér að ná fram leiðréttingum handa þeim kennurum sem brotið var á.

Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins
Baráttudagur verkalýðsins er í dag og af því tilefni standa verkalýðsfélög landsins fyrir fjölbreyttri dagskrá víða um land.

Sakar stjórn Eflingar um að vega að grundvallarréttindum launafólks
Trúnaðarráð Bárunnar fordæmir uppsögn alls starfsfólks Eflingar og segir ákvörðun stjórnarinnar þess efnis ósvífna og óskiljanlega.

Fólkið sem vildi ráða sér sjálft
Í tilefni dagsins langaði mig að skrifa stutta hugvekju um verkalýðinn, baráttuna fyrir lýðræði, réttlæti og jöfnuði – og hvetja verkalýðsstéttina, stéttina sem snýr hjólum atvinnulífsins með eigin blóði, svita og tárum til dáða og samtaka.

Baráttan heldur áfram
Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðshreyfingarinnar er ekki bara vettvangur til að sýna samstöðu og minna á samtakamátt hreyfingarinnar, minnast þeirra sem ruddu brautina og sýna þeim stuðning sem hafa umboð til að ryðja hana áfram.

Saman vinnum við stóru sigrana
Loksins getum við haldið baráttudag launafólks hátíðlegan, sótt kröfugöngur og baráttufundi eftir tveggja ára hlé vegna heimsfaraldurs.

Nýtum kosningaréttinn
Grunnskólakennarar velja forystusveit sína á næstu dögum. Í annað sinn í sögu félagsins geta allir félagsmenn tekið þátt í kosningu. Mikilvægt er að grunnskólakennarar sýni styrk sinn og nýti kosningaréttinn.

Skoðuðu fjórtán ábendingar sem sneru að formanni BHM
Tvö ráðgjafafyrirtæki tóku til skoðunar fjórtán óformlegar ábendingar í vetur varðandi Friðrik Jónsson, formann BHM. Fyrirtækin töldu ekki tilefni til aðgerða vegna tilkynninganna.

Felldu tillögu um að fordæma hópuppsögnina
Trúnaðarráð VR felldi í gær tillögu fyrrverandi formanns félagsins um að fordæma hópuppsögn á skrifstofu Eflingar. Þrátt fyrir það er það einróma skoðun þeirra sem eru í trúnaðarráðinu að hópuppsögnin sé fáránleg aðgerð og skaðleg verkalýðshreyfingunni, samkvæmt þeim sem fréttastofa ræddi við og sátu fundinn í gær.

Hin ósáttu þurfi að kynna sér grundvallarreglur lýðræðisins
Á fjölmennum félagsfundi Eflingar á Hlíðarenda í gærkvöldi var tillaga um að draga til baka hópuppsagnir felld. Anna Sigurlína Tómasdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks Kjöríss hjá Eflingu og Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar, segja félagið nú vera klofið. Núverandi formaður segir að þau sem ekki geti unað niðurstöðunni þurfi að kynna sér grundvallarreglur lýðræðisins.

Opið bréf til stjórnar VM
Um þessar mundir er mikil og hávær umræða í samfélaginu vegna sölu ríkisins á hlutabréfum í Íslandsbanka. Þar eru notuð sterk lýsingarorð um siðleysi, blekkingar og lögbrot. Almenningur upplifir sömu hlutina aftur og aftur, ástandið er farið að minna á dagana fyrir hrun.

Segja Eflingarfélaga hafa varið stjórnina gegn atlögu
Sólveig Anna Jónsdóttir og Baráttulisti hennar túlkar niðurstöðu félagsfundar Eflingar á þá leið að þar hafi félagsmenn varið stjórn félagsins gegn atlögu að stjórn félagsins af hálfu starfsfólks skrifstofu Eflingar og stuðningsmanna A-listans.

Sjá ekki hvernig Efling geti varið hag annarra sem lenda í hópuppsögnum
Anna Sigurlína Tómasdóttir, trúnaðarmaður starfsfólks Kjörís í Hveragerði hjá Eflingu telur að félagsfundur stéttarfélagsins í kvöld sýni að félagið sé klofið. Ólöf Helga Adolfsdóttir, fyrrverandi varaformaður félagsins, vonast til þess að þeir sem séu ósáttir með hópuppsagnirnir leiti ekki á önnur mið, heldur berjist fyrir breytingum innan félagsins.

Felldu tillögu um að draga hópuppsagnir til baka: „Brennum ekki húsið okkar“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hvatti félagsmenn til að styðja kjörna forystu Eflingar, á félagsfundi félagsins á Hlíðarenda sem nú stendur yfir. Sólveig Anna gagnrýndi harkalega þá félagsmenn sem hafa gagnrýnt hana undanfarnar vikur. Tillaga um að draga hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar var felld á fundinum.

Munu leggja fram tillögu þar sem skorað er á stjórnina að draga uppsagnirnar til baka
Skorað verður á stjórn Eflingar að draga hópuppsagnir á skrifstofu félagsins til baka en tillögu að ályktun þess efnis verður lögð fram á félagsfundi sem hófst fyrr í kvöld. Heitar umræður hafa skapast um uppsagnirnar undanfarnar vikur og er viðbúið að fundurinn standi yfir langt fram á kvöld.

Hitafundur félagsmanna Eflingar hafinn á Hlíðarenda
Félagsfundur Eflingar þar sem umræðuefnið er skipulagsbreytingar á skrifstofu félagsins hefst klukkan 18 í Valsheimilinu. Boðað var til fundarins í kjölfar þess að tillaga nýkjörins formanns Eflingar þess efnis að segja upp öllu starfsfólki á skrifstofunni.

Hópuppsögn Eflingar
Í nýlegum greinum til stuðnings meirihluta stjórnar er gagnrýni á þá ákvörðun að segja upp öllu starfsfólki félagsins og auglýsa stöður þess lausar til umsóknar, lögð að jöfnu við árás á rétt félagsins til að ráða eigin málefnum.

Segir starfsmann skrifstofu Eflingar fara með rangt mál
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur leiðrétt fullyrðingar sem trúnaðarmaður á vinnustaðnum lét falla í viðtali við mbl.is. Hún segir hann fara með rangt mál.

Gissur fær fastráðningu sem framkvæmdastjóri BHM
Gissur Kolbeinsson var nýverið ráðinn framkvæmdastjóri BHM og hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM. Gissur tekur við starfinu af Ernu Guðmundsdóttur sem lét af störfum í byrjun apríl.

Hver ræður?
Það munu væntanlega margir telja hel frosið í neðra þegar ég fer að taka upp hanskann fyrir verkalýðsfélagi og Sósíalista. Tel ég því næsta formsatriði að ég fái persónulega afsökunarbeiðni frá Gunnari Smára fyrir að hafa verið fleygt út úr Facebook-síðu sósíalista. Það er nú samt svo að þegar mér finnst menn eða málefni fá óréttláta og oft á tíðum ranga umfjöllun þá er ég tilbúinn að tjá mig hvort sem fólk hallast til vinstri eða hægri.