
Hnífstunguárás á Bankastræti Club

Árás í aðdraganda Bankastrætismálsins: „Hringdi í mömmu og sagði að ég væri að deyja“
Maður sem var stunginn í átökum tveggja gengja viðurkennir að vera sjálfur ekki alsaklaus. Hann og vinir hans hafi gert sig líklega til að ganga í skrokk á öðrum manni sem brást við árásinni með hníf á lofti. Sá er ákærður fyrir stunguárás sem reyndist lífshættuleg.

Bankastrætismenn fengu nei frá Hæstarétti
Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál sjö manna sem voru sakfelldir fyrir hlutdeild að líkamsárás í hinu svokallaða Bankastrætismáli.

Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar um að fella niður mál ákæruvaldsins á hendur Alexander Mána Björnssyni, sem hætti við að áfrýja sex ára dómi í Bankastrætis club málinu svokallaða. Ómar Valdimarsson, verjandi hans, fór fram á að krafa um endurákvörðun málsvarnarlauna í héraði yrði tekin fyrir þrátt fyrir að fallið yrði frá málinu að öðru leyti.

Segist ekki vanhæf vegna „harla óvenjulegs“ tölvupósts Ómars
Sigríður Hjaltested, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, þarf ekki víkja úr sæti úr dómsmáli líkt og Ómar R. Valdimarsson lögmaður krafðist. Hann vildi að Sigríður tæki mögulegt vanhæfi sitt til skoðunar vegna fyrri samskipta þeirra á milli, sem tengjast sakamáli sem hefur verið kennt við skemmtistaðinn Bankastræti Club.

Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan
Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt.

Óútskýrðar hvítar flygsur en ekki hnífur
Alexander Máni Björnsson var í dag dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps. Hann var sýknaður af ákæru um eina tilraun til manndráps þar sem ekki var talið sannað að hann hefði lagt að þriðja brotaþolanum með hnífi. Verjandi hans staðhæfði að annar hnífur hafi sést á myndskeiði frá vettvangi en dómari telur að um „hvítar flygsur“ hafi verið að ræða frekar en hníf.

Alexander Máni dæmdur í sex ára fangelsi
Alexander Máni Björnsson, tvítugur karlmaður, hefur verið dæmdur til sex ára fangelsisvistar, fyrir aðild sína að hnífstunguárásinni á Bankastræti Club.

Vaktin: Örlög sakborninganna 25 ráðast í dag
Dómsuppsaga í Bankastrætis Club-málinu, einu umtalaðasta sakamáli Íslandssögunnar, hefst klukkan 08:30 í dag. 25 sakborningar verða þá ýmist sakfelldir eða sýknaðir og hljóta refsingu eftir atvikum. Fylgst verður með gangi mála hér í vaktinni.

Losnaði úr fangelsi fjórum mánuðum eftir tveggja ára dóm
Karlmaðurinn sem særðist í skotárás við Silfratjörn í Úlfarsárdal í síðustu viku losnaði úr fangelsi í sumar. Hann hlaut tveggja ára fangelsisdóm í mars fyrir sérlega hættulega líkamsárás, en losnaði úr fangelsi í júlí. Ástæðan mun vera sú að hann hafði þegar afplánað stóran hluta refsingar sinnar í gæsluvarðhaldi.

Krefst átta ára dóms: Búkmyndavél notuð við óvænta skýrslutöku
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari hjá héraðssaksóknara fór fram á átta ára fangelsisdóm yfir Alexander Mána Björnssyni í Bankastræti Club-málinu í málflutningi sínum í morgun. Búkmyndavél var notuð til að taka upp óvænta skýrslu yfir Alexander fyrir hádegi.

Dró játningu skyndilega til baka
Alexander Máni Björnsson, sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps í Bankastræti-Club málinu svonefnda, hefur dregið aðra játningu af tveimur fyrir hnífsstungu til baka. Það gerði hann við upphaf þinghalds í Gullhömrum í morgun.

„Ég vissi ekki að hann væri alvitur“
Rannsóknarlögreglumaður, sem stýrði rannsókn á hnífstunguárásinni á Bankastræti Club, fullyrti þegar hann gaf skýrslu fyrir dómi í dag að aðeins einum hníf hafi verið beitt í árásinni. „Ég vissi ekki að hann væri alvitur,“ sagði verjandi manns, sem ákærður er fyrir þrjár tilraunir til manndráps, en dró ummælin síðar til baka.

Kannast hvorki við „Latino-hópinn“ né meinta vargöld
Brotaþolar í Bankastrætis Club málinu segjast hvorki kannast við svokallaðan „Latino-hóp“ né meinta vargöld sem sakborningar í málinu hafa lýst milli hópsins og hóps sakborninga.

Dreifðu grímum á Dubliner og ræddu vopnaburð á Prikinu
Sakborningar í Bankastrætis Club málinu báru um fyrir dómi að um hafi verið að ræða einhvers konar uppgjör við hóp manna sem kallaður hefur verið „Latino-hópurinn“. Sakborningarnir hafi ruðst 25 saman inn á skemmtistað til þess að ógna meðlimum hópsins.

„Ég gerði mér ekki grein fyrir því að ég hefði játað að hafa stungið alla þrjá“
Alexander Máni Björnsson, tæplega tvítugur karlmaður sem sætir ákæru fyrir þrjár tilraunir til manndráps á Bankastræti Club í febrúar í fyrra, segir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann væri að játa þrjár hnífstungur við þingfestingu málsins. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki að hafa ætlað að ráða þeim bana.

Vildi spila viðtal við brotaþola
Skýrslutökur brotaþola og annarra vitna hófust í morgun og því er töluvert fjölmennara í dómsal í Gullhömrum við aðalmeðferð Bankastrætis Club málsins en síðustu daga. Þónokkrir sem sæta ákæru eru mættir til þess að fylgjast með framgangi mála, þar á meðal sá eini sem ákærður er fyrir að hafa reynt að verða brotaþolum að bana.

„Dómari, við heyrum ekkert í honum í ódýru sætunum hérna aftast“
Aðalmeðferð í Bankastrætis Club málinu svokallaða var haldið áfram í morgun og nú hafa allir sem sæta ákæru fyrir annað en hlutdeild í árásinni gefið skýrslu. Mikið umstang hefur verið í Gullhömrum og laganemar kíktu í heimsókn fyrir hádegi.

Verjendur óánægðir með kaffiskort
Á þriðja tug lögmanna eru saman komnir til þess að verja skjólstæðinga sína í Bankastrætis Club málinu svokallaða í veislusalnum Gullhömrum í dag. Skipuleggjendur aðalmeðferðarinnar virðast hafa gleymt að hella upp á kaffi, verjendum til mikils ama.

Fá ekki að hlusta hver á annan
Ákveðið var í undirbúningsþinghaldi í Bankastræti-Club málinu í morgun að sakborningar myndu ekki sitja inni í dómsal í Gullhömrum. Þeir munu sitja því frammi og koma inn einn af öðrum. Verjendur mótmæla ákvörðuninni. Á fimmtudag verður fjölmiðlabanni aflétt.

Skýrslutökur hefjast í veislusal
Aðalmeðferð í Bankastræti Club málinu svokallaða hefst í veislusalnum Gullhömrum í dag. Á þriðja tug manna hafa stöðu sakbornings og búist er við því að á annað hundrað verði viðstaddir aðalmeðferðina.

„Þetta var algjört sjokk“
Í síðasta þætti af raunveruleikaþættinum LXS á Stöð 2 var hnífstungumálið á Bankastræti Club rifjað upp en ein af stjörnum þáttanna Birgitta Líf Björnsdóttir rak og átti hlut í skemmtistaðnum fyrir ekki svo löngu.

Segir atburðarásina hafa þróast út í múgæsingu
Maður á fertugsaldri sem er meðal ákærðu í Bankastræti Club-málinu svokallaða neitar því staðfastlega að vera ofbeldismaður og segist ekki hafa haft í hyggju að fara inn hið örlagaríka kvöld þegar hópur veittist að þremur mönnum á skemmtistaðnum.

B5 verður að B eftir lögbann
Eigendur skemmtistaðar í Bankastræti fimm hafa tekið ákvörðun um að breyta nafni staðarins úr B5 í B. Lögbann var sett á notkun nafnsins B5 sem var í eigu annars félags.

Játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá
Fyrirtöku í Bankastræti club-málinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaður, sem ákærður er fyrir alvarlegasta hluta líkamsárásarinnar, breytti afstöðu sinni til sakargifta. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá eins og áður.

Aðalmeðferð í Bankastræti Club-málinu fer fram í veislusal
Aðalmeðferð í Bankastræti Club-málinu svokallaða mun fara fram í veislusal í veitingahúsinu Gullhömrum í Grafarholti í Reykjavík. Sakborningar í málinu eru á þriðja tug og því er ekki hægt að halda aðalmeðferði í dómshúsinu að Lækjartorgi.

Handteknu sleppt: „Einhver tenging“ við árásina á Bankastræti Club
Einstaklingarnir fjórir sem voru handteknir í kjölfar slagsmála í miðborginni á miðvikudagskvöld hafa verið látnir lausir.

Augljóst að aðalmeðferð geti ekki farið fram við Lækjartorg
Verjandi nítján ára manns sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember í fyrra segir gæsluvarðhald sem hann hefur sætt leggjast verulega á hann. Hann sér ekki hvernig aðalmeðferð í málinu eigi að geta farið fram í húsakynnum Héraðsdóms Reykjavíkur.

Vildi ekki svara því hvort hann hefði verið á Bankastræti Club
Þingfestingu í Bankastræti Club málinu var framhaldið eftir hádegi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fimm karlmenn til viðbótar komu fyrir dóminn og neituðu allir sök í málinu. Einn ákærðu vildi ekki svara spurningunni hvort hann hefði verið á skemmtistaðnum umrætt kvöld.

Með lambhúshettu í dómsal
Ákæra gegn 25 mönnum vegna líkamsárásar á Bankastræti Club í nóvember verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vegna þess fjölda sem er ákærður í málinu fer þingfesting fram í fjórum hollum og verða sex til sjö leiddir fyrir dómara í einu. Hinir ákærðu huldu andlit sín, meðal annars með lambhúshettu, áður en þingsal var lokað.

Þingfesta ákæru gegn 25 mönnum vegna árásarinnar á Bankastræti Club
Ákæra á hendur 25 karlmönnum á aldrinum átján til 36 ára vegna árásarinnar á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Nítján ára karlmaður er ákærður fyrir tilraun til manndráps og tíu félagar hans fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.