

Umhverfisstofnun hefur lagt rúmlega 34 milljóna króna stjórnvaldssekt á flugfélagið Nomadic Aviation Group LLC vegna vanrækslu flugrekandans á að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2022.
Félag atvinnurekenda (FA) furðar sig á miklum hækkunum í gjaldskrá Sorpu fyrir móttöku á matvælum í umbúðum sem notuð eru til jarðgerðar. FA óskar eftir rökstuðningi fyrir hækkuninni sem nemur rúmlega 86 prósentum frá því á fyrri hluta síðasta árs.
Mál umhverfisaðgerðarsinnans og hvalavinarins Paul Watsons sem handtekinn var á Grænlandi í síðasta mánuði hefur vakið mikla athygli og úlfúð jafnt innan landsins sem utan. Ósætti ríkir innan grænlensku ríkisstjórnarinnar vegna málsins.
Mikil umræða er búin að vera í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum um skógrækt til kolefnisbindingar í mólendi í Saltvík við Húsavík.
Framkvæmdir Yggdrasils í Saltvík hafa þau meginmarkmið að binda koltvísýring (CO2) úr lofti og vinna þannig gegn lofslagshlýnun. Færa má rök fyrir því að framkvæmdirnar geri svo alls ekki, heldur þvert á móti! Auk þess valda þær skaða á verðmætri náttúru.
Haraldur Þór Jónsson, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er ósammála fullyrðingum Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, um umfangsmikið samráð við hagaðila tilætlaðs vindorkuvers í Búrfellslundi við Vaðöldu. Haraldur vænir Landsvirkjun um vindasöm vinnubrögð í stað vandasamra.
Í síðustu viku voru samningar undirritaðir milli Strætó og fyrirtækjanna Hagvagna og Kynnisferða um akstur strætisvagna. Í tilkynningu segir að með þessu sé stórt skref stigið í átt að kolefnishlutlausum akstri Strætó.
Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskóla Opna háskólans, segir sjálfbærni nú þegar farna að hafa mikil áhrif á lítil fyrirtæki.
Ég hef oft orðið vitni að því þegar stofnanir eða fyrirtæki ákveða að fríska upp á útlitið með því að henda hinu gamla og kaupa allt nýtt inn.
Rásir sem voru herfaðar í mólendi fyrir utan Húsavík til að undirbúa kolefnisbindingarverkefni eru nú áberandi í landinu og sæta gagnrýni. Sérfræðingur í skógrækt segir jarðvinnsluna nauðsynlega og skila kolefnisbindingu til lengri tíma litið.
Gæsluvarðhald yfir umvherfisaðgerðarsinnanum Paul Watson hefur verið framlengt til fimmta september næstkomandi. Héraðsdómurinn í Sermersooq staðfesti þetta í dag.
Tillögu Jóns Inga Hákonarsonar, bæjarfulltrúa Viðreisnar í Hafnarfirði, um að Coda Terminal-verkefni Carbfix verði sett í íbúakosningu var vísað til bæjarráðs á bæjarstjórnarfundi í gær. Jón Ingi harmar þessa ákvörðun og vænir fulltrúa meirihlutans um ósamræmi í máli og verkum.
Íbúar í Hafnarfirði afhentu Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra undirskriftalista í gær þar sem 6090 manns skoruðu á bæjarstjórn að falla frá áformum um Coda Terminal verkefnið eða setja það í íbúakosningu.
Sex sóttu um embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar en Halla Hrund Logadóttir, núverandi Orkumálastjóri og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er ekki þeirra á meðal.
Landsvirkjun stefnir nú á að reisa þrjátíu 150 metra háar vindmyllur í svonefndum Búrfellslundi, við inngang hálendisins á Sprengisandsleið þar sem þúsundir Íslendinga og erlendra ferðamanna halda á hverju ári upp á Sprengisand, inn í Landmannalaugar og upp í Veiðivötn.
Á laugardaginn kemur verður einn sérkennilegasti og líklega tímabundnasti grafreitur Íslandssögunnar reistur á Seltjarnarnesi. Á hátíðlegri athöfn verður jöklagrafreiturinn vígður en þar verður legsteinum jökla, horfinna og þeirra sem eru við það að hverfa, komið fyrir og verða þeir úr ís.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á höfninni í Vestmannaeyjum þar sem áhersla er lögð á snyrtimennsku og virðingu við gamla tímann með allskonar nýjungum.
Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans í Opna háskólanum, segir nýsköpun einn af lykilþáttum sjálfbærni, sem um leið þýðir að fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, geta fyrir víst skapað sér ýmiss ný tækifæri til framtíðar.
Á Íslandi hefur mikill fjöldi byggingarframkvæmda í för með sér samsvarandi áskoranir í úrgangsmyndun, kolefnisspori og umhverfisáhrifum.
Matvælaráðherra segir uppbyggingu líforkuvers á Dysnesi í Eyjafirði stórt skref fyrir matvælaframleiðslu á Íslandi sem og í átt að betra hringrásarhagkerfi. Stefnt er að því að hefjast handa á næsta ári og taka á verið í notkun 2028.
Uppbygging líforkuvers á Dysnesi í Eyjafirði á að leysa þann vanda sem íslenska ríkið hefur staðið frammi fyrir við söfnun, móttöku og vinnslu dýraleifa. Ísland hefur um árabil fengið bágt fyrir að uppfylla ekki skyldur sínar í þeim efnum. Um milljarðaverkefni er að ræða sem gæti orðið fyrsti vísir að uppbyggingu stórhafnar á Dysnesi.
Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist í Japan. Hann var handtekinn við höfnina í Nuuk fyrr í mánuðinum en hann hefur vakið athygli hér á landi fyrir að hafa meðal annars sökkt tveimur hvalveiðibátum Hvals hf. á níunda áratugnum.
Vísindarannsóknir eru hafnar í Hvalfirði með það fyrir augum að kanna möguleika til kolefnisförgunar. Markmiðið er ekki að græða pening með sölu kolefniseininga eða öðru, heldur að skapa þekkingu sem gæti nýst til að milda áhrif loftslagsbreytinga. Í stuttu máli felst aðferðin sem er til skoðunar í því að kanna hvort hægt sé að flýta náttúrulegu ferli kolefnisbindingar í hafi með því að auka svokallaða basavirkni sjávar.
„Oft leggjum við ofur áherslu á umhverfisvernd þegar við ræðum sjálfbærni. Loftslagsváin er vissulega aðkallandi og nauðsynlegt að fyrirtæki minnki kolefnisfótspor sitt. En í grunninn snýst sjálfbærni í um fólk,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans í Opna háskólanum.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt dönsk yfirvöld til þess að framselja ekki hinn bandarísk-kanadíska umhverfis- og aðgerðarsinna Paul Watson í hendur Japönum. Paul sætir gæsluvarðhaldi á Grænlandi eftir að hafa verið handtekinn við höfnina í Nuuk á sunnudaginn síðasta.
Klósettpappír, hægðir og sóðaskapur í Hofsstaðaskógi er ein birtingarmynd niðurskurðar til Skógræktarfélags Íslands. Framkvæmdastjóri segir félagið ekki hafa tök á að sinna hreinsunarstarfi líkt og áður.
Eigandi sumarbústaðar í Vestur-Skaftafellssýslu kennir umdeildum garði um laka grunnvatnsstöðu í bústað sínum. Um er að ræða sama garð og hefur valdið því að gjöfult fiskveiðisvæði er upp urið.
Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson hjá samtökunum Sea Shepherd var í morgun handtekinn í höfninni í Nuuk á Grænlandi en alþjóðleg handtökuskipun hafði verið gefið út á hendur honum vegna aðgerða hans í þágu umhverfisverndar.
Sá hvimleiði siður margra ferðamanna, að ganga örna sinna úti í náttúrunni með tilheyrandi sóðaskap, verður aldrei upprættur, að mati leiðsögumanns. Skógur á Snæfellsnesi hefur verið undirlagður salernispappír í sumar.
Það var sérstakur fundur sem þau áttu Bríet Böðvarsdóttir á Seftjörn og Tufti Túnfótur í friðlandinu í Vatnsfirði um síðastliðna helgi, 12.-14. júlí. Helgin var sérstök fyrir þær sakir að þá voru upp á dag liðin 50 ár frá þjóðhátíð Vestfirðinga í Vatnsfirði 1974. Bríet og Tufti hittust þarna fyrir tilviljun.