
Bandaríkin

Musk í mál vegna skýrslu um auglýsingar og nasistafærslur
Forsvarsmenn X (áður Twitter) hafa höfðað mál gegn samtökunum Media Matters, eftir að samtökin birtu skýrslu um að auglýsingar stórfyrirtækja á samfélagsmiðlinum birtust reglulega við færslur sem innihalda hatursorðræðu, lofyrði um nasisma og gyðingahatur.

Mega hýsa síðu sem kortleggur gyðinga
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað öllum kröfum samtakanna Anti Defamation League, ADL, um ógildingu ákvörðunar sýslumanns, um að hafna beiðni um lögbann við hýsingu vefsíðu þar sem má finna „kortlagningaráætlun“ yfir gyðinga og lögpersónur tengdar þeim.

Málið áfram og Rocky á yfir höfði sér allt að níu ára fangelsi
Dómari í Los Angeles úrskurðaði í gær að ákæruvaldið hefði næg sönnunargögn til að draga tónlistarmanninn ASAP Rocky fyrir dóm fyrir að hafa skotið á æskuvin sinn og samstarfsmann fyrir utan hótel í Hollywood árið 2021.

Hraðar og óvæntar vendingar hjá stærsta gervigreindarfyrirtækinu
Microsoft hefur ráðið tvo stofnendur fyrirtækisins OpenAI til að leiða nýtt rannsóknarteymi á sviði gervigreindar, nokkrum dögum eftir að stjórn OpenAI rak annan þeirra og hinn sagði upp í mótmælaskyni. OpenAI er fyrirtækið á bakvið Chat GPT gervigreindina vinsælu.

Segir orðræðu og stefnu Trump enduróma ris nasismans
„Orðræðan sem notuð er af Trump og sumum MAGA-öfgahyggjumönnum er orðræða sem var notuð upp úr 1930 í Þýskalandi og ég hef verulegar áhyggjur af stefnu landsins ef stefna á borð við þá sem Donald Trump talar fyrir verður ofan á.“

Er vinsælasta jólalag sögunnar stolið?
Tiltölulega óþekktur sveitasöngvari í Bandaríkjunum krefst þess að Mariah Carey greiði sér 20 milljónir dala í skaðabætur. Hann hafi nefnilega samið jólalagið All I Want For Christmas Is You sex árum áður en Mariah Carey gaf lagið út.

Gengu út af viðburði Clinton og mótmæltu
Hópur fólks mótmælti afstöðu Hillary Clinton stjórnmálakonu á viðburði á vegum Iceland Noir í hörpu í dag. Tvær konur stóðu upp úr sætum sínum í Eldborgarsal og flögguðu palestínska fánanum í mótmælaskyni.

Rosalynn Carter er látin
Rosalynn Carter, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, er látin 96 ára að aldri.

Ashley Judd refsað fyrir að vitna gegn Weinstein
Bandaríska kvikmyndaleikkonan Ashley Judd segir að henni sé enn refsað fyrir að hafa greint frá kynferðislegu áreiti kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein sem samanlagt hefur verið dæmdur í tæplega fjörutíu ára fangelsi fyrir kynferðisofbeldi gegn konum.

Ása Guðbjörg fær 140 milljónir fyrir þátttöku í heimildarmynd
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona meinta raðmorðingjans Rex Heuermann, og uppkomin börn þeirra hafa samþykkt að gerð verði heimildarmynd um þau meðan réttarhöld yfir Heuermann fara fram.

Bein útsending: Stærsta eldflaug heimsins aftur á loft
Til stendur að skjóta Starship-geimfari á loft í dag með heimsins öflugustu eldflaug. Geimfarið á að nota til að flytja menn og birgðir til tunglsins á komandi árum.

Fleiri særðir eftir skotárás á geðsjúkrahúsi
Margir eru særðir eftir skotárás á sjúkrahúsi í New Hampshire-ríki í Bandaríkjunum fyrr í kvöld.

Skera niður hjá úreltri Alexu
Forsvarsmenn Amazon hafa ákveðið að segja upp starfsmönnum sem komið hafa að þróun talgervilsins Alexa. Meiri áherslu á að leggja á þróun gervigreindar eins og ChatGPT.

Auglýsendur áhyggjufullir vegna ummæla Musks og gyðingahaturs
Forsvarsmenn IBM, sem er einn af stærri auglýsendum á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter), hættu öllum auglýsingum þar. Það var eftir að auðjöfurinn Elon Musk, sem keypti Twitter í fyrra, lýsti á miðvikudaginn yfir stuðningi við færslu um að gyðingar ýttu undir hatur á hvítu fólki. Þar var einnig gefið í skyn að gyðingar væru að ýta undir flutninga flótta- og farandfólks.

Sagður nota hvert tækifæri til að auðgast persónulega
Bandaríski þingmaðurinn George Santos, sem gjarnan er kallaður „lygni þingmaðurinn“ vegna ítrekaðra og umfangsmikilla lyga hans, tilkynnti í gær að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningunum á næsta ári. Það gerði hann í kjölfar þess að siðferðisnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings birti harðorða skýrslu um hann.

Puff Daddy kærður fyrir nauðgun, nauðung og ítrekað ofbeldi
Tónlistar- og athafnamaðurinn Sean Combs, betur þekktur sem Puff Daddy, hefur verið kærður fyrir nauðgun, ofbeldi og nauðung sem hann er sagður hafa beitt kærustu sína, Casöndru Ventura, í um áratug.

Hundur yfirgaf ekki látinn húsbónda sinn í tíu vikur
Hundur fannst á lífi við hlið látins húsbónda síns í fjöllum Colorado-ríkis í Bandaríkjunum. Þeir höfðu verið týndir tíu vikur, eftir að hafa farið á veiðar.

Grænt ljós á aðra tilraun með stærstu eldflaug heims
Flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafa gefið starfsmönnum SpaceX grænt ljós á nýtt tilraunaskot geimfarsins Starship þar sem nota á stærstu eldflaug heims til að koma geimfarinu næstum því út í geim. Fyrsta tilraunaskotið sem framkvæmd var í apríl misheppnaðist, þegar bæði eldflaugin og geimfarið sprungu í loft upp.

Biden ver afstöðu Bandaríkjanna og segir Hamas ekki munu hætta
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur varið ákvörðun stjórnvalda vestanhafs að kalla ekki eftir vopnahléi á Gasa og segir Hamas viðvarandi ógn fyrir Ísrael. Þá hafi Ísraelsmenn freistað þess að forðast mannfall meðal almennings í aðgerðum sínum.

Hestur losnaði í íslenskri flugvél og kom öllu í uppnám
Flugvél Air Atlanta Icelandic þurfti að snúa við í loftinu þegar að hestur, sem verið var að flytja í lest vélarinnar losnaði og olli vandræðum.

Hvetja til sniðgöngu Iceland Noir vegna heimsóknar Clinton
Lestrarklefinn, vefsíða sem tileinkuð er bókaumfjöllun, bókmenntum og lestri, hvetur til sniðgöngu bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir. Ástæðan er sú að stjórnmálakonan Hillary Clinton, sem hefur tekið afstöðu gegn vopnahléi á Gasa, kemur fram á viðburði tengdum hátíðinni.

Jimmy Kimmel kynnir enn og aftur Óskarinn
Sjónvarpsmaðurinn Jimmy Kimmel, sem stýrir spjallþáttunum Jimmy Kimmel Live, verður kynnir á Óskarsverðlaununum sem haldin verða í mars á næsta ári.

Þingmaður reyndi að slást við nefndargest
Markwayne Mullin, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Oklahoma, reyndi í gær að fá Sean O‘Brien, forstöðumann stórs verkalýðsfélags í Bandaríkjunum, til að slást við sig á nefndarfundi. Mennirnir tveir vörðu um sex mínútum í að móðga hvern annan á meðan Bernie Sanders, formaður þingnefndarinnar, reyndi að fá þá til að hætta.

Íranskir hermenn féllu líklega í árásum Bandaríkjamanna
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gærkvöldi myndbönd af loftárásum hersins á byltingarverði Íran og vígahópa sem Írans styður í austurhluta Sýrlands á dögunum. Árásirnar voru gerðar vegna ítrekaðra árása meðlima vígahópa í Írak og Sýrlandi á bandaríska hermenn þar.

Vonir bundnar við fund Biden og Xi í San Francisco í dag
Bandaríkin og Kína hafa heitið því að vinna saman í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og segja hlýnun jarðar „eina stærstu áskorun okkar tíma“. Tilkynningin þykir gefa von um þýðu í samskiptum ríkjanna.

Hæstiréttur Bandaríkjanna setur sér siðareglur í fyrsta sinn
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur sett sér siðareglur í fyrsta sinn en nokkrir dómarar við dómstólinn hafa sætt harðri gagnrýni síðustu misseri fyrir að þiggja alls konar gjafir.

Systir Donald Trump er látin
Maryanne Trump Barry, elsta systir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, er látin, 86 ára að aldri. Hún hafði verið á líknardeild síðustu vikur lífs síns vegna krabbameins.

Varpa enn sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi
Bandaríkjamenn gerðu í gærkvöldi aftur loftárásir gegn Írönum og vígahópum sem þeir styðja í Sýrlandi. Sprengjum var varpað á vopnageymslu byltingarvarða Írans og á þjálfunarmiðstöð í austurhluta landsins en þetta er í þriðja sinn á rúmum tveimur vikum sem Bandaríkjamenn gera slíkar árásir.

Kostar skólann ellefu milljarða að reka þjálfarann og ætla samt að reka hann
Texas A&M skólinn hefur ákveðið að reka þjálfara fótboltaliðsins síns og þrátt fyrir að það kosti metupphæð að losa sig við hann.

Ása krefur FBI um bætur eftir leit á heimilinu
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona hins grunaða raðmorðingja Rex Heuermann, hefur stefnt bandarísku alríkislögreglunni og krafist bóta vegna tjóns sem varð á heimili Ásu í sumar. Tjónið hlaust þegar alríkislögreglan, FBI, gerði tólf daga húsleit í tengslum við rannsóknina á Heuermann.