Evrópudeild UEFA

Arnar Már: Geðveikt að fá að spila á San Siro
Stjarnan mætir Inter í seinni leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.

Sektað vegna palestínska fánans
Írska úrvalsdeildarliðið Dundalk í fótbolta hefur verið sektað um 18.000 evrur vegna þess að stuðningsmaður liðsins veifaði palestínska fánanum á leik liðsins í undankeppni Evrópudeildarinnar gegn Hajduk Split.

Tottenham slapp með skrekkinn á Kýpur
Vann kýpverskt lið, 2-1, í umspilinu um sæti í Evrópudeildinni.

Góð stemming fyrir leik Stjörnunnar og Inter | Myndir
Þrátt fyrir 0-3 tap gegn Inter í gær var frábær stemming hjá stuðningsmönnum Stjörnunnar á Ölver fyrir leik, í skrúðgöngunni á leikinn og á leiknum sjálfum. Vísir hefur tekið saman skemmtilega myndsyrpu frá kvöldinu.

Ingvar: Höfum aldrei mætt svona liði áður
Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar, var að vonum svekktur eftir 3-0 tapið gegn Inter í kvöld.

Atli Jó: Full stórt miðað við gang leiksins
Atli Jóhannsson, leikmaður Stjörnunnar var svekktur eftir 3-0 tap gegn ítalska stórveldinu í kvöld. Hann þakkaði stuðningsmönnum Stjörnunnar fyrir kvöldið.

Daníel Laxdal: Hrósa áhorfendum og Silfurskeiðinni
Daníel Laxdal var ánægður með félaga sína í Stjörnuliðinu í kvöld. Daníel segir að upplifunin að spila fyrir framan tíu þúsund manns á Laugardalsvelli í kvöld hafi verið frábær.

Hörður Árna: Ekki erfiðara en gegn Poznan
Hörður Árnason stóð í ströngu í kvöld, en Inter sótti mikið upp hægri kantinn.

Veigar Páll: Var algjörlega magnað
Veigar Páll Gunnarsson bar fyrirliðabandið í liði Stjörnunnar þegar liðið tapaði gegn Inter í umspili um laust sæti í Evrópudeildinni á Laugardalsvelli. Veigar Páll var ánægður með Stjörnuliðið og sagði að hann hafi verið með gæsahúð á köflum í leiknum.

Kovacic: Stjarnan er með gott lið
Króatíski miðjumaðurinn var hrifinn af leikmönnum Stjörnunnar í kvöld en sagði að leikmenn Inter ættu eitthvað inni fyrir seinni leikinn.

Rúnar Páll: Hef aldrei upplifað annað eins
Rúnar Páll hrósaði leikmönnum og stuðningsmönnum Stjörnunnar.

Mazzarri: Einvígið er ekki búið
Walter Mazzarri var ánægður með 3-0 sigur Inter á Stjörnunni í kvöld en hann var fljótur að minna blaðamenn á að ekkert væri útilokað í fótbolta þegar borið var undir hann hvort einvígið væri búið.

Sjáðu mörkin úr leik Stjörnunnar og Inter
Hér má sjá mörkin sem skoruð eru í Evrópudeildarleiknum í Laugardalnum.

Silfurskeiðin hitar upp á Ölveri | Myndband
Stuðningsmenn Stjörnunnar hressir fyrir leikinn gegn Inter.

Veigar Páll: Stærsti leikurinn á ferlinum
Veigar Páll Gunnarsson telur að leikurinn gegn Internatzionale í undankeppni Evrópudeildarinnar í kvöld sé stærsti leikur hans á ferlinum. Veigar Páll telur að Stjarnan eigi möguleika hérna heima gegn ítalska stórveldinu.

Umfjöllun, viðtöl og myndbönd: Stjarnan - Inter 0-3 | Ítalska stórveldið númeri of stórt
Inter reyndist vera of stór biti fyrir Stjörnumenn.

Lars á íslensku: "Áfram Stjarnan“
Óli Stef, Gary Martin, Gísli Marteinn, Helgi Björns og margir fleiri segja:"Áfram Stjarnan“

"Í kvöld eru allir í Silfurskeiðinni“
Vísir birtir texta Silfurskeiðarinnar svo allir geti sungið með á Laugardalsvelli í kvöld. Silfurskeiðin efnir til skrúðgöngu í kvöld og verður flugeldasýning á leiðinni.

Þrefaldir Evrópumeistarar æfðu á Laugardalsvelli | Myndir
Stjarnan og Inter mætast í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.

Rúnar Páll: Kemur í ljós hvernig leikurinn þróast
Stjarnan mætir Inter í stærsta leik í sögu Garðabæjarliðsins í kvöld.

Mazzarri hefur áhyggjur af leikforminu
Stjarnan og Inter mætast á morgun í fjórðu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Leikmenn Inter mættir til landsins | Myndir
Leikmenn Internatzionale frá Ítalíu lentu á Íslandi rétt eftir hádegi í dag og voru mættir upp á hótel rétt fyrir klukkan tvö.

Leikmannahópur Inter fyrir leikina gegn Stjörnunni klár
Walter Mazzarri, knattspyrnustjóri Inter skilur Rodrigio Palacio og Gary Medel eftir á Ítalíu en Nemanja Vidic, Dani Osvaldo og Hernanes verða allir með Inter á Laugardalsvelli á miðvikudaginn.

Ársmiðahafar Stjörnunnar ekki í gróðahug
Lítið er um endursölu á miðum á viðureign Stjörnunnar og Inter í forkeppni Evrópudeildar sem fram fer á Laugardalsvelli á miðvikudaginn.

Búumst við ævintýralegri stemningu
Stjarnan og ítalska stórliðið Inter mætast næsta miðvikudag í Evrópudeildinni og verður leikið á Laugardalsvelli. Það er þegar uppselt á leikinn og von á einstakri stemningu í Dalnum á miðvikudagskvöldið.

Nánast uppselt á leik Stjörnunnar og Inter
Stærsti hluti miðanna seldist upp á fimmtán mínútum í morgun.

Jafntefli í síðasta æfingaleik Inter
Inter lék síðasta æfingaleik sinn fyrir leikina gegn Stjörnunni í kvöld í 0-0 jafntefli gegn gríska liðinu PAOK.

Ársmiðahafar bíða í röð eftir miðum á leikinn gegn Inter
Stjarnan mætir Inter í Evrópudeildinni á miðvikudaginn og mikill áhugi er á miðum á leikinn.

Króati á flautunni í leik Stjörnunnar og Inter
Marijo Strahonja verður á flautunni þegar Stjarnan tekur á móti Inter deginum áður en hann verður 39 árs gamall.

Uppselt í hópferðina á San Siro
Sigurður Gunnarsson, deildarstjóri íþróttadeildar Úrvals Útsýnar staðfesti við Vísi rétt í þessu að uppselt væri í hópferðina á leik Inter og Stjörnunnar á San Siro en að ferðaskrifstofan væri að kanna möguleikann á því að bæta við miðum.