
Úkraína

Everton styrkir fórnarlömb stríðsins í Úkraínu með góðgerðarleik
Everton mun spila vináttuleik við úkraínska liðið Dynamo Kyiv þann 29. júlí næstkomandi í undirbúningi sínum fyrir komandi leiktímabil.

Samkomulag í höfn um útflutning kornvöru
Stjórnvöld í Tyrklandi segja samkomulag hafa náðst við Úkraínu, Rússland og Sameinuðu þjóðirnar um útflutning kornvöru frá Úkraínu. Að sögn varnarmálaráðherrans Hulusi Akar verður samkomulagið undirritað í næstu viku.

Borgarfulltrúi handtekinn í Moskvu vegna andstöðu við stríðið
Saksóknari í Rússlandi lagði í dag fram ákæru á hendur Ilya Yashin borgarfulltrúa í Moskvu skömmu áður en láta átti hann lausan úr 15 daga varðhaldi fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu.

Kuleba segir Rússa spila út hungurspilinu til að knýja fram afléttingu refsiaðgerða
Utanríkisráðherra Úkraínu segir engan grundvöll til friðarviðræðna við Rússa fyrr en þeir láti af hernaði sínum í landinu. Þá verði að tryggja öruggar siglingar fyrir útflutning á korni um Svartahaf en í dag spili Rússar út hungurspilinu til að þrýsta á Vesturlönd að aflétta refsiaðgerðum þeirra.

Úkraínuforseti gagnrýnir að látið sé undan hryðjuverkaríki
Úkraínuforseti gagnrýnir Kanadamenn harðlega fyrir að ætla að skila túrbínu úr Nord Stream eitt gasleiðslu Rússa, sem þar var í viðgerð, og segir það brot á refsiaðgerðum. Herinn í Úkraínu segist hafa eytt hergagnabirgðastöð Rússa með nýlega fengnum eldflaugum frá Bandaríkjamönnum.

„Leikmenn munu fara í loftvarnarbyrgi meðan loftárásir standa yfir“
Úkraínska úrvalsdeildin í fótbolta karla mun fara af stað á nýjan leik í ágúst samkvæmt tilkynningu Vadym Gutzeit, ráðherra æsku og íþrótta í landinu. Það virðist sem Úkraínumenn ætli ekki að láta innrás Rússa stöðva sig í að sparka bolta sín á milli.

Segir milljón manna her munu hrekja Rússa frá suðurströndinni
Úkraínumenn hyggjast láta milljón manna her, vopnaðan hergögnum frá Vesturlöndum, hrekja Rússa aftur frá hernumdum svæðum landsins. Þetta segir varnarmálaráðherrann Oleksii Reznikov.

Stjórnvöld í Úkraínu hvetja íbúa að flýja fyrir gagnárás í Kherson og Zaporizhzhia
Stjórnvöld í Úkraínu hafa varað íbúa í Kherson og Zaporizhzhia við yfirvofandi gagnsókn á svæðinu og hvatt þá til að flýja. Svæðin eru nú á valdi Rússa en Úkraínumenn hyggjast freista þess að ná þeim aftur á næstu dögum og vikum.

Hefur áhyggjur af samfylkingu Rússa og Kínverja
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist hafa áhyggjur af nánu sambandi Rússa og Kínverja. Hann átti fimm tíma fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Indónesíu í gær.

Fimmtán látnir eftir sprengingu á fjölbýlishús
Að minnsta kosti fimmtán létust og fleiri særðust í sprengjuárás Rússa á fjölbýlishús í borginni Khasiv Yak í austurhluta Úkraínu.

Kanada skili rússneskri túrbínu til Þýskalands
Volodymyr Zelenskiy, forseti Úkraínu hefur sagt upp sendiherrum landsins í Þýskalandi, Indlandi, Tékklandi, Noregi og Ungverjalandi í skugga deila við Þýskaland.

Senda fleiri HIMARS og nákvæmari skot til Úkraínu
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að senda fleiri vopnakerfi og nákvæm skotfæri til Úkraínu. Bæði er um að ræða eldflaugakerfi af gerðinni HIMARS, sem gera Úkraínumönnum kleift að gera nákvæmar árásir á skotmörk í allt að hundrað kílómetra fjarlægð, og 155 mm skot í fallbyssur sem hægt er að skjóta af mun meiri nákvæmni en hefðbundnum stórskotaliðsskotum.

Segir Sievieródonetsk á barmi mannúðarhörmunga
Ástandið í hinni hersetnu Sievieródonetsk „er á barmi mannúðarhörmunga,“ segir Serhai Haidai, ríkisstjóri Lúhansk í Úkraínu. Hann segir ekkert miðlægt vatnsveitu-, gasveitu- eða rafveitukerfi í borginni, um 80 prósent alls húsnæðis hafi verið eyðilagt og að Rússar fari ránshendi um borgina.

Segir Rússa rétt að byrja í Úkraínu
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að Rússar séu að „rétt að byrja“ í Úkraínu. Þetta sagði hann í samtali við rússneska þingmenn í dag og manaði hann einnig Vesturlönd til að reyna að sigra Rússland á vígvellinum.

Rússar halda uppi stöðugum árásum á íbúðahverfi
Rússar halda uppi stöðugum árásum á borgir og bæi í Donetsk héraði í austurhluta Úkraínu. Forseti Úkraínu segir hersveitir landsins sækja fram í suðurhlutanum og langþráð þungavopn frá Vesturlöndum hafi náð að valda miklu tjóni hjá rússneska innrásarliðinu.

Hafa náð að standa af sér árásirnar hingað til
Úkraínski herinn hefur náð að standa af sér árásir Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa skotið á borgina í um það bil tvær vikur segir Vadym Lyakh, borgarstjóri Slóvíansk.

Rússar byrjaðir að innlima hluta Úkraínu í Rússland
Rússar beita öllum hernaðarmætti sínum þessa dagana til að ná Donetsk héraði á sitt vald og hefur héraðsstjórinn þar skorað á íbúa að flýja til vesturs. Evrópusambandið býst við að Rússar skrúfi brátt alfarið fyrir gas til aðildarríkjanna.

Rússar gerðu loftárásir um alla Úkraínu í gærkvöldi
Loftvarnaflautur hljómuðu um alla Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Héraðsstjórinn í Donetsk héraði hefur skorað á alla íbúa héraðsins að flýja í vesturátt undan stórskotaliðs- og loftárásum Rússa.

Enn hart barist í Lysychansk og fólk hvatt til að flýja
Ríkisstjóri Donetsk-héraðs hefur hvatt um 350 þúsund íbúa héraðsins til að flýja í ljósi yfirvofandi rússneskrar sóknar. Hann segir enn hart barist í útjaðri Lysychansk.

Haldlögðu rússneskt skip sem er sagt flytja stolið korn
Tyrkir hafa lagt hald á skip sem siglir undir rússneskum fána vegna gruns um að sjö þúsund tonn af korni sem það flytur séu stolin af Úkraínumönnum.

Fyrirskipar hernum að halda sókninni áfram
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur skipað varnarmálaráðherra sínum að halda áfram sókn rússneska hersins í Úkraínu eftir að borgin Lysychansk féll í þeirra hendur.

Lýsa aðstæðum sem „helvíti á jörðu“
Úkraínskir hermenn eru að koma sér fyrir í nýjum varnarstöðum í austurhluta landsins eftir að Rússar náðu tökum á síðustu borg Luhansk-héraðs. Lysychansk féll i hendur Rússa um helgina og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lýsti í dag yfir sigri í Luhansk.

Lysychansk fallin í hendur Rússa
Úkraínuher hefur staðfest að borgin Lysychansk í austurhluta Úkraínu er nú fallin í hendur Rússa. Eftir afar harða bardaga síðustu daga hafa úkraínskar varnarsveitir neyðst til að hörfa frá borginni en áður höfðu Rússar lýst því yfir að borgin væri nú þeirra.

Sex látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á Slóvíansk
Að minnsta kosti sex eru látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Árásin er sú stærsta sem borgin hefur þurft að þola til þessa segir bæjarstjóri borgarinnar.

Sakar Úkraínumenn um að beina flugskeytum að Hvíta-Rússlandi
Alexander Lukasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, heldur því fram að Úkraínumenn hafi reynt að skjóta flugskeytum á herstöðvar landsins fyrir þremur dögum en að varnarkerfi þeirra hafi stöðvað flugskeytin í öll skiptin.

Segja íbúa verjast af hörku en saka Rússa um að varpa fosfórsprengjum
Úkraínskir hermenn berjast af hörku við rússneskar hersveitir í norðurhluta Úkraínu en ekkert lát er á árásum Rússa í austurhlutanum. Úkraínski herinn hefur meðal annars sakað Rússa um að varpa fosfór sprengjum á Snákaeyju. Talsmaður hersins segir Rússa óttast mótspyrnu heimamanna.

Fordæma mögulega dauðarefsingu bresku hermannanna
Bresk stjórnvöld hafa fordæmt það að tveir Bretar, Dylan Healy og Andrew Hill, skyldu fá dauðadóm í Rússlandi. Skýrsla frá rússneskum dómstólum var lekið í gær en samkvæmt henni verða mennirnir dæmdir til dauða.

Úkraínuforseti segir ESB aðild ekki mega dragast í mörg ár
Forseti Úkraínu segir aðildarferli landsins að Evrópusambandinu ekki mega taka einhver ár eða áratugi. Tuttugu og einn almennur borgari féll, þeirra á meðal tvö börn, og tæplega fjörutíu manns særðust í eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús og sumarbúðir í Odessa héraði í gærkvöldi.

Úkraínuforseti skorar á Vesturlönd að hætta orkuinnflutningi frá Rússlandi
Zelenskyy Úkraínuforseti segir Evrópu verða að hætta öllum gas- og olíuinnfluttningi frá Rússlandi en Rússar noti ágóðann bæði í stríðinu í Úkraínu og til að sundra Evrópu. Nítján óbreyttir borgarar, þar af eitt barn, féllu í tveimur eldflaugaárásum Rússa á bæ nálægt hafnarborginni Odessa í Úkraínu í gærkvöldi.

Vaktin: Tala látinna fer hækkandi eftir loftárás Rússa í Odesa
Tala látinna fer hækkandi eftir loftárásir Rússa sem lentu á íbúðabyggingu og tómstundamiðstöð í úkraínsku borginni Odesa í nótt. Staðfest tala látinna er nú 21 en þar af eru tvö börn. Auk þess voru 38 fluttit á sjúkrahús eftir árásina.