Mið-Austurlönd

Bretar byrjaðir að sprengja í Sýrlandi
Árásirnar beindust gegn Omar olíusvæðinu í austurhluta Sýrlands sem ISIS-liðar ráða yfir.

Bretar samþykkja loftárásir á ISIS
Tillaga þess efnis var samþykkt nú fyrir skemmstu með 397 atkvæðum gegn 223.

Rússar birta meintar sannanir
Birta gervihnattamyndir og drónamyndbönd sem eiga að sanna að Tyrkir kaupi olíu af Íslamska ríkinu.

Segjast geta sannað að Tyrkir kaupi olíu af ISIS
Þá segja Rússar að forseti landsins og fjölskylda hans eigi í viðskiptasambandi við hryðjuverkasamtökin.

Fjölga sérsveitarmönnum gegn ISIS
Bandarískum sérsveitarmönnum er ætlað að hjálpa Írökum og Kúrdum og jafnvel berjast gegn Íslamska ríkinu.

Erdogan segist munu segja af sér reynist ásakanir Pútín sannar
Rússlandsforseti segir að rússnesk yfirvöld hafi fengið upplýsingar um að olían sem liðsmenn ISIS bora í Írak og Sýrlandi sé seld til Tyrklands.

Þóra Tómasdóttir: Þurfum lýðræði en ekki karl á áttræðisaldri til að leiða okkur í gegnum þetta
Ritstjórarnir Kolbrún Bergþórsdóttir og Þóra Tómasdóttir eru sammála um að bjóði Ólafur Ragnar Grímsson sig fram til áframhaldandi setu á forsetastól verði það auðsóttur sigur.

Trump dregur ekki í land með „fagnandi múslima“
Donald Trump segist "hundrað prósent viss um að þúsundi múslíma í New Jersey hafi fagnað árásinni á tvíburaturnan í september 2001.

Segir árásir í Sýrlandi vera hagsmunaatriði fyrir Breta
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að þátttaka Breta í loftárásum gegn ISIS myndi ekki gera þá að stærra skotmarki. Þeir séu þegar skotmörk.

ISIS-liðar bjuggu í göngum undir Sinjar - Myndband
Myndband frá borginni sýnir umfangsmikið net ganga sem vígamenn bjuggu í til að forðast loftárásir.

Vilja að öryggisráðið samþykki stríðsyfirlýsingu
Frakkar hafa í bígerð að leggja fram ályktun í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um stríðsyfirlýsingu gegn hryðjuverkasamtökunum Isis. Dagblaðið breska The Independent greinir frá þessu. Árásirnar í París og sprenging rússnesku farþegaþotunnar yfir Sínaí skaga á dögunum hefur sameinað ríki Öryggisráðsins í andstöðunni við Isis og því er talið líklegt að ályktunin verði samþykkt.

Reyna að komast að því hvort Norðmaðurinn hafi verið myrtur
Ole Johan Grimsgaard-Ofstad hefur verið í haldi Íslamska ríkisins frá því í janúar.

Birtu mynd af sprengjunni sem sögð er hafa grandað flugvélinni
Íslamska ríkið birti einnig myndir af líkum tveggja gísla frá Noregi og Kína.

Segjast hafa komið í veg fyrir aðra árás á ferðamannastað
Um er að ræða strandþorpið Sousse þar sem 38 ferðamenn voru myrtir fyrr á árinu.

Rússar skutu eldflaugum á Sýrland
Sprengjuvélar gerðu einnig árásir á Íslamska ríkið og Rússar og Frakkar ætla að samræma aðgerðir sínar.

Segir mögulegt að einungis „vikur“ séu í vopnahlé í Sýrlandi
John Kerry er vongóður um vopnahlé á milli stjórnvalda og uppreisnarmanna.

Heitir því að finna sökudólgana
"Við munum finna þá hvar sem er í heiminum og þeim verður refsað“

Árásirnar í París: Fjölga lögreglumönnum gífurlega
Frakkar hafa farið opinberlega fram á aðstoð frá ESB sem byggir á lögum sambandsins sem aldrei hefur verið beitt áður.

Árásirnar í París: Hollande segir ISIS vera heigla
Forsetinn vill að ESB vakti ytri landamæri sambandsins betur.

Salah Abdeslam ekki handtekinn enn
Fjölmiðlar í Brussel sögðu lögreglu hafa handtekið Salah Abdeslam ísem er grunaður um aðild að árásunum í París.

Telja sig vita hver höfuðpaurinn er
Franskir embættismenn segja árásirnar á föstudaginn tengjast árásartilraunum í lest fyrr á árinu og á kirkju í Frakklandi.

Fjölmargar aðgerðir lögreglu í Frakklandi
Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, varaði í morgun við fleiri árásum næstu daga og vikur.

Búið að bera kennsl á 106 af þeim sem féllu
Tala látinna í hermdarverkunum í París var hækkuð upp í 132 í dag en var síðar lækkuð aftur.

Sex handteknir grunaðir um aðild að sprengjuárás í Beirút
Mennirnir koma frá Sýrlandi og Palestínu og tengjast ISIS.

Einn árásarmannanna kom til álfunnar um Grikkland
Vegabréf sem fannst á einum hinna föllnu var skráð í Grikklandi 3. október.

37 féllu í tveimur sjálfsmorðsárásum
Rúmlega 180 manns særðust í árásunum sem Íslamska ríkið segist hafa gert.

Herinn sagður hafa rofið tveggja ára umsátur
Stjórnarher Sýrlands sótti að flugvelli sem vígamenn ISIS hafa reynt að ná.

Sinnepsgasi beitt í Sýrlandi
Efnavopnastofnunin segir líklegt að barn hafi látið lífið vegna efnavopnaárásar.

Frakkar senda Charles de Gaulle til baráttu við ISIS
Stærsta herskip franska hersins mun styðja við loftárásir á bækistöðvar ISIS.

Bandaríkin veðja á hersveitir Kúrda í baráttunni gegn ISIS
Bandarískir hermenn sendir til Sýrlands til þess að fella Raqqa, höfuðborg ISIS.