Eldgos og jarðhræringar

Á leiðinni til Grindavíkur eftir að hafa misst móður sína á fimmtudaginn
Ragna Kristín Ragnarsdóttir, íbúi í Grindavík, er ein þeirra fjölmörgu Grindvíkinga sem bíða þess nú að komast inn í bæinn. Hún er á leið með föður sínum heim til hans að sækja persónulega muni. Mestu skipta munir móður hennar sem lést á fimmtudaginn.

Landspítalinn er kominn á óvissustig
Landspítalinn var færður á óvissustig í morgun vegna þess almannavarnarástands sem nú ríkir á Reykjanesi. Viðbragðsstjórn spítalans hefur verið virkjuð.

Hleypa öllum inn í bæinn: Hámark tveir í hverjum bíl
Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa öllum íbúum Grindavíkur inn í bæinn núna.

Inn á tíu mínútum og út aftur
Hjálmar Hallgrímsson vettvangsstjóri segir ganga ágætlega að hleypa fleira fólki inn í Grindavík. Skipulagsbreytingar hafi verið gerðar sem geri ráð fyrir að hraðar gangi að hleypa fleirum inná svæðið en áður var.

Fá að sækja dýrin sem verða eftir í skammdeginu
Fulltrúar dýraverndarfélaga hafa gengið grænt ljós til að sækja þau dýr sem verða eftir í Grindavík í dag þegar fer að dimma. Þetta segir Anna Margrét Áslaugardóttir formaður Dýrfinnu í samtali við Vísi.

Nesvegur mikið skemmdur og ófær
Nesvegur vestan Grindavíkur til móts við golfvöllinn er í sundur og er alveg ófær. Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið að störfum á staðnum í dag.

Grindvíkingar búi sig undir gríðarlegt tjón
„Ljóst er að gríðarlegt tjón er á bænum okkar og gott að fólk undirbúi sig undir það.“

Svo til óbreytt ástand en minni líkur á gosi ef eitthvað er
Litlar breytingar eru á stöðunni í Grindavík þó að verulega hafi dregið úr stærri skjálftum síðustu sólarhinga. Jarðeðlisfræðingur segir svipaðar líkur á gosi og áður.

Búa í hesthúsi meðan ósköpin ganga yfir
Þau Rúrik Hreinsson og Paricia Hobi flúðu bæinn eins og aðrir Grindvíkingar og fundu athvarf í hesthúsi í Fjárborgum, rétt fyrir ofan borgina.

Virknin í og við Grindavík nánast óbreytt
Mat Veðurstofunnar er að virknin í og við Grindavík sé nánast óbreytt frá því í gær. Skjálftavirknin er dreifð um suðurhluta kvikugangsins á milli Sundhnúks og Grindavíkur á um tveggja til fimm kílómetra dýpi.

Vonar að ekki þurfi að dreifa grindvískum börnum milli skóla
Skólastjóri grunnskóla Grindavíkur segir enn unnið að útfærslu skólastarfs barna í Grindavík. Best væri að finna aðstöðu svo börnin geti haldið hópinn, frekar en að dreifa þeim á milli skóla.

Of seint að breyta tryggingum Grindvíkinga
Náttúruhamfaratrygging Íslands segir að þar sem búið sé að lýsa yfir neyðarástandi í Grindavík og rýma bæinn sé ljóst að ekki megi gera nýja vátryggingarsamninga eða breyta eldri samningum um eignir í bænum.

„Við bíðum og vonum að röðin komi að okkur“
Fjölmargir Grindvíkingar hafa ekki séð myndir af bænum sínum síðan allsherjarrýming var framkvæmd á föstudagskvöld. Íbúar í Grindavík óttast miklar skemmdir á húsum sínum. Íbúi í Grindavík vonast til að fá að sækja muni heim til sín.

Listinn yfir götur í Grindavík vegna verðmætabjörgunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum í Grindavík inn á skilgreind svæði í bænum í dag.

Skjálftarnir aftur á nokkurra kílómetra dýpi
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir jarðskjálftana við Grindavík aftur komna á fjögurra til fimm kílómetra dýpi. Það geti falið í sér að kvikan muni ekki ná upp á yfirborðið að svo stöddu. Hann segir þó erfitt að spá um framhaldið.

Telja fasteignir og lausafé Vísis ehf. vel tryggt
Staðan á Reykjanesskaga hefur ekki áhrif á starfsemi útgerðarinnar Vísis en fiskvinnsla í Grindavík hefur stöðvast. Stjórnendur vinna við að bregðast við aðstæðum og munu taka ákvarðanir í samræmi við þróun mála. Stjórnendur telja fasteignir og lausafé félagsins í Grindavík vera vel tryggt.

Vaktin: „Hlýhugur þjóðarinnar til Grindvíkinga gríðarlega mikill“
Skjálftavirkni hefur haldið áfram á Reykjanesskaga í dag.

Landvernd styður Grindavík
Landvernd, umhverfissamtök sendu í gær sveitarstjóra Grindavíkur eftirfarandi bréf, sem er opið bréf til Grindvíkinga og stjórnvalda. Í bréfinu lýsa samtökin fullum stuðningi við nauðsynlegar framkvæmdir sem tryggja innviði og samfélag á hamfarasvæðum og bjóða fram aðstoð við vinnu í samræmi við markmið Landverndar um að verja og endurreisa náttúru og umhverfi eins og best hæfir náttúrulegum aðstæðum og búsetu í landinu.

Samantekt: Tíðindalítil nótt að baki en morgunfundir framundan
„Biðstaða“ er orð dagsins hvað varðar jarðskjálfta og möguleg eldsumbrot við Grindavík. Skjálftavirknin er söm og hún hefur verið; sífelldir skjálftar en flestir undir 3,0 að stærð.

Óbreytt staða en von á nýjum gögnum í fyrramálið
„Staðan er bara óbreytt,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur á vakt hjá Veðurstofu Íslands.

Þakklátur og stoltur af samfélaginu
Haldin var svokölluð samverustund fyrir Grindvíkinga og þau sem vildu sýna þeim samhug og styrk í Hallgrímskirkju í dag. Þar sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti, að hann væri þakklátur og stoltur fyrir að búa í samfélagi Íslendinga. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, sagði óvissuna erfiða

Þula, Yrja og Þengill bíði eftir að þeim sé hleypt út
Fulltrúar dýraverndunarsamtaka biðu í allan dag við lokunarpóstinn á Suðurstrandarvegi eftir leyfi til að fara inn í Grindavík en fengu það ekki. Dýrfinna og Kattholt hafa kortlagt staðsetningu dýra í bænum, safnað búnaði og fengið lykla að húsum eigenda til að bjarga dýrunum.

Björguðu 66 dýrum úr Grindavík
Sigrún Eggertsdóttir var meðal þeirra Grindvíkinga sem fengu að fara að sækja dýr sín í dag. Þökk sé tveimur Keflvíkingum sem buðu fram hjálp sína og hestakerrur gátu þau bjargað 66 dýrum úr Grindavík áður en ástandið versnaði.

„Maður er núna bara að vinna og halda haus og svo grátum við“
Konur sem sóttu nauðsynjar á heimili sín í Grindavík voru ánægðar með hvernig gekk þó tíminn hefði verið naumur. Þær sögðu Grindvíkinga í áfalli en fólk reyndi bara að halda haus. Þær eru hrærðar yfir samhug Íslendinga.

„Svartari sviðsmynd en ég hafði ímyndað mér“
Metra djúpur sigdalur hefur myndast í Grindavík og bendir það til þess að kvikugangurinn sem myndast hefur undir bænum sé kominn mjög nálægt yfirborðinu. Mögulega sé stutt í að kvikan nái til yfirborðsins og það innan bæjarmarka Grindavíkur.

„Tímabundin“ skattahækkun fylgir varnargarðafrumvarpi
Stjórnarfrumvarp forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga gerir ráð fyrir að nýr skattur verði lagður á alla húseigendur í landinu. Skattinum, sem kallast forvarnagjald, er ætlað að skila nærri einum milljarði króna í tekjur á næsta ári og tekið fram að hann verði lagður á „tímabundið í þrjú ár“.

Óvissan um að missa Grindavík það langversta
Íbúar Grindavíkur sem biðu þess að komast inn í bæinn sinn til þess að ná í nauðsynjar með viðbragðsaðilum í Þórkötlustaðahverfi voru eðli málsins samkvæmt misbrattir þegar fréttastofa tók þá tali nú síðdegis. Einn segist ekki halda að hann muni sjá húsið sitt aftur.

Samverustund fyrir Grindvíkinga
Samverustund fer fram í Hallgrímskirkju í Reykjavík fyrir Grindvíkinga og þau sem vilja sýna þeim samhug og styrk. Samverustundin hefst klukkan 17:00 og er hægt að fylgjast með samverustundinni í beinu streymi.

Sakna samráðs og vilja bjarga öllum dýrunum í Grindavík
Dýraverndarfélög sakna samráðs Almannavarna vegna gæludýra sem eftir urðu í Grindavík. Í yfirlýsingu krefjast þau þess að dýrum verði bjargað í dag. Félögin hafa unnið aðgerðaáætlun til að staðsetja dýrin og telja nú að um 300 gæludýr hafi orðið eftir.
