Ferðaþjónusta

Gray Line segir upp 91 prósenti starfsfólks
Eitt stærsta rútufyrirtæki landsins hyggst segja upp 107 starfsmönnum.

Telur ferðaþjónustuna ekki standa og falla með ákvörðunum íslenskra yfirvalda
Sóttvarnalæknir segir að ákvarðanir stjórnvalda hér á landi um landamæralokanir og sóttkví ráði ekki einar framtíð ferðaþjónustunnar. Ákvarðanir annarra þjóða vegi þar jafnþungt.

Andað léttara - en hvað með Icelandair Group?
Tekjulítil og tekjulaus fyrirtæki í ferðaþjónustu anda léttara eftir að ríkisstjórnin kynnti björgunaraðgerðir sínar í gær.

„Furðulegt að ríkið skuli ekki gefa upp merki um að það ætli að styðja við Icelandair“
Þrír bankar vinna með Icelandair að væntanlegu hlutafjárútboði. Fagfjárfestar segja að engar ákvarðanir verði teknar um frekari fjárfestingar fyrr en allar upplýsingar liggja fyrir. Formaður FÍA gagnrýnir að stjórnvöld komi ekki beint að félaginu.

Meirihluta starfsmanna Iceland Travel sagt upp
„Þar sem ekki er hægt að gera ráð fyrir því að starfsemin taki við sér á ákveðnum tíma verðum við að ganga ansi nærri fyrirtækinu með uppsagnir og sem varúðarráðstöfun segja upp meirihluta starfsmanna félagsins,“ segir framkvæmdastjóri Iceland Travel

Kynnisferðir segja upp 150 starfsmönnum
Kynnisferðir hafa sagt upp 150 starfsmönnum, eða um 40 prósent starfsliðsins.

„Þessi björgunarpakki veitir fyrirtækjum von“
Ferðaþjónustan virðist ánægð með aðgerðir ríkistjórnarinnar í dag. Nú sé komin von hjá fólki sem var við það að slökkna.

Ferðaþjónustufyrirtækin undirbúa hópuppsagnir
Ferðaþjónustufyrirtæki undirbúa mörg fjöldauppsagnir um mánaðamótin. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar á von á að þúsundir missi vinnuna.

Lofsyngur aðgerðir ríkisstjórnarinnar og segir engum upp
Haraldur Teitsson, framkvæmdastjóri hjá rútufyrirtækinu Teiti Jónassyni og formaður Félags hópferðaleyfishafa, hrósar stjórnvöldum fyrir hvernig brugðist hafi verið við kórónuveirufaraldrinum.

„Þetta er risastór aðgerð fyrir ferðaþjónustuna“
„Þetta er risastór aðgerð fyrir ferðaþjónustuna,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, inntur eftir viðbrögðum við nýjasta útspili ríkisstjórnarinnar til þess að bregðast við efnahagslegum áhrifum kórónuveirufaraldurins.

Bein útsending: Breyttir jeppar í almannaþjónustu
Aldís Ingimarsdóttir og Indriði Sævar Ríkharðsson, kennarar við iðn- og tæknifræðideild, fjalla um breytta jeppa í almannaþjónustu á Íslandi. Um er að ræða fimmta fyrirlesturinn í netfyrirlestraröð HR og Vísis.

Frá grunni eða á sterkum grunni?
Ferðaþjónusta er í eðli sínu fjölbreytt, litskrúðug og skapandi atvinnugrein sem byggir 80-90% á frumkvöðlum, eldhugum og einstaklingum sem hafa skapað sjálfum sér og fjölskyldu sinni atvinnu um allar landsbyggðir Íslands.

Stefnt að því að kynna frekari aðgerðir á morgun
Ríkisstjórnin áformar að kynna frekari efnahagsaðgerðir á morgun til að koma til móts við þau fyrirtæki sem orðið hafa fyrir miklu tekjutapi vegna kórónuveirufaraldursins.

„Við verðum með lægra verð núna í sumar“
Svavar Njarðarson, eigandi Gullfoss Kaffis, veitingastaðar við einn vinsælasta ferðamannastað landsins, Gullfoss, segir að hægt verði að lækka vöruverð í sumar.

Telur nauðsynlegt fyrir Icelandair að fá fjármagn frá lífeyrissjóðum
Lífeyrissjóðir bíða eftir hlutafjárútboði Icelandair en þeir eiga tæpan helming í félaginu. Formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir að aðeins verði fjárfest ef fyrirsjáanlegt sé að fjármunir skili viðunandi ávöxtun. Fyrrverandi forstjóri Icelandair telur að félagið fari í þrot komi sjóðirnir ekki með fjármagn.

Búið að taka númerin af næstum öllum rútunum
Ferðaþjónustufyrirtæki óttast gjaldþrot eða að þurfa að grípa til fjöldauppsagna um mánaðamótin. Fyrirtækin hafa misst nær allar tekjur sínar síðustu vikurnar og búið er að taka stóran hluta rútuflotans af númerum.

Spá sláandi atvinnuleysistölum við Mývatn
Forsvarsmenn Skútustaðahrepps gera ráð fyrir að atvinnuleysi í sveitarfélaginu verði 30 prósent í þessum mánuði.

Hvað yrði gert ef fiskurinn hætti að láta sjá sig á Íslandsmiðum?
Áhugavert er að velta fyrir sér hvernig tekið yrði á málunum ef sjávarútvegurinn sæi fram á sama tekjuhrun og blasir við ferðaþjónustunni

Gæti skipt heilmiklu að Íslendingar versli meira innanlands
Veiking krónunnar hefði orðið meiri en nú er raunin ef ekki hefði verið fyrir minni verslun Íslendinga í útlöndum.

Vonar að Íslendingar hafi lært af bankahruninu
Sigmundur telur stjórnvöld ekki hafa brugðist nógu hratt við efnahagsástandinu sem skapast hefur vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Þannig má lækka verð á gistingu um allt land
Á mjög mörgum heimilum er byrjað að spá í ferðir innanlands í sumarfríinu. Á sama tíma naga eigendur hótela og gististaða á sér neglurnar vegna óvissu um hvort þeir geti haft opið.

Með sanngjarnari verðlagningu yrði ferðaþjónustunni tekið fagnandi
Þórarinn Ævarsson segir ferðaþjónustunni að lækka verð og fólk muni taka henni fagnandi.

Ríkið tryggi réttindi ferðamanna
Eitt af úrræðum ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í vikunni til að koma til móts við erfiða stöðu ferðaþjónustunnar fjallar um pakkaferðir sem hefur verið aflýst.

Undirstaða hinna dreifðu byggða
Nytjar villtra lax- og silungsstofna er ein elsta og dýrmætasta ferðaþjónustugrein á Íslandi. Sjálfbær nýting á þessari mikilvægu náttúruauðlind hefur fært fólki til sveita tekjur og atvinnu í yfir eitthundrað ár.

Treystum á ferðaþjónustuna
Ferðaþjónustan á Norðurlandi hefur byggst upp á löngum tíma. Að uppbyggingunni hafa komið þrautseigir frumkvöðlar, hugsjónamenn sem hafa séð tækifæri til þess að byggja upp sitt samfélag, skapa tekjur og búa til ný störf.

Hugsum í lausnum
Úrræði stjórnvalda vegna COVID 19 faraldursins hingað til nægja auðsjáanlega ekki fjölda fyrirtækja í ferðaþjónustu. Með markvissum aðgerðum og á grundvelli reglna sem þegar er að finna í lögum mætti afstýra miklum vanda hjá mjög mörgum þeirra.

Ferðaþjónustan riðar til falls
Á dögunum birti ríkisstjórnin aðgerðarpakka 2 sem hafði vissulega margar góðar hliðar. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá að heilbrigðisstarfsmenn koma til með að fá bónusgreiðslu fyrir sín störf á þessum erfiðu tímum.

Sjá fram á að þurfa að segja öllum upp og byrja á byrjunarreit í tugmilljóna mínus
Einn eigenda hinnar rótgrónu ferðaskrifstofu Pink Iceland segir að þrátt fyrir aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sjái eigendur fram á að þurfa að segja öllum starfsmönnum sínum upp og byrja á byrjunarreit eftir tæpan áratug í bransanum – nema nú yrði ekki byrjað á núlli heldur í tugmilljóna mínus.

Ferðaþjónustan er aflvél framtíðar
Þessa dagana birtast hér og þar frasar um að nú sé ferðaþjónustan horfin og þá verði Íslendingar bara að byggja upp annan atvinnuveg til að framfleyta sér.

Aðgerðapakkinn vonbrigði fyrir leiðsögumenn sem koma undan tekjulitlum vetri
Formaður stéttarfélags leiðsögumanna segir aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar mikil vonbrigði.