Fótbolti

Jöfnuðu félagsmetið en töpuðu samt
Liverpool jafnaði í kvöld félagsmet þegar liðið skoraði í 34. leiknum í röð í öllum keppnum. Liðið skoraði eitt mark í 2-1 tapi gegn Royale Union SG frá Belgíu.

Leverkusen áfram með fullt hús stiga
Ótrúlegt gengi Bayer Leverkusen heldur áfram en liðið vann 3-0 sigur á Molde í Evrópudeildinni og flýgur áfram með fullt hús stiga. Þá hefur liðið ekki enn tapað leik heima fyrir.

Bayern náði aðeins jafntefli gegn Ajax
Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allan leikinn þegar Bayern München gerði 1-1 jafntefli við Ajax í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bayern hefur nú mistekist að vinna tvo af fyrstu þremur leikjum sínum en hefur þó ekki enn tapað leik.

Mourinho hafði mögulega rétt fyrir sér eftir allt saman
Það eru fimm ár síðan José Mourinho var látinn fara sem þjálfari Manchester United. Meðan hann stýrði liðinu fór hann reglu yfir vandamál félagsins. Ekki löngu þar á undan hafði Louis van Gaal gert slíkt hið sama. Síðan hefur Ralf Rangnick endurtekið leikinn en hefur eitthvað breyst?

Kjartan Henry ráðinn aðstoðarþjálfari FH
Hinn 37 ára gamli Kjartan Henry Finnbogason verður aðstoðarþjálfari FH í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð.

Rebecca Welch fyrst kvenna til að dæma í ensku úrvalsdeildinni
Þann 23. desember mun Rebecca Welch skrá sig í sögubækur ensku úrvalsdeildarinnar. Hún verður þá fyrsta konan til að dæma leik í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Meistararnir fá mikinn liðsstyrk úr Laugardal
Bandaríski miðjumaðurinn Katie Cousins er gengin í raðir Íslandsmeistara Vals eftir að hafa verið lykilleikmaður í liði Þróttar á síðustu leiktíð.

Segist ekki búinn að ráða Jóa Kalla
Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari karla í fótbolta, er eftirsóttur og kemur til greina sem þjálfari tveggja liða í Svíþjóð.

Fótboltafélag fær sögulega refsingu: 141 stig tekið af því
Everton missti tíu stig á dögunum í ensku úrvalsdeildinni en hinum megin við landamærin í Wales er annað lið í miklu verri málum.

Getur náð því að vera í sólarhring inn á vellinum í Evrópuleikjum í ár
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, er eini leikmaður Blikaliðsins sem hefur spilað alla fimmtán Evrópuleiki liðsins í ár frá upphafi til enda.

Mesti áhorfendafjöldi á Anfield í fimmtíu ár
Liverpool hefur fengið leyfi til að opna efri hluta nýju Anfield-stúkunnar sem hefur verið í byggingu undanfarna mánuði.

Síðasti séns á stórum jólabónus
Karlalið Breiðabliks spilar sinn síðasta leik á löngu keppnistímabili í kvöld, þegar lokaumferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta fer fram. Félagið gæti tryggt sér 75 milljónir króna.

Lars fylgist grannt með íslenska landsliðinu
Þrátt fyrir að nokkur ár séu liðin frá því Lars Lagerbäck starfaði sem landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, fylgist hann enn grannt með gengi liðsins. Íslenska landsliðið hefur gengið í gegnum brösótta tíma í ár. Þjálfaraskipti urðu hjá liðinu um mitt ár þegar að Age Hareide var ráðinn inn í stað Arnars Þórs Viðarssonar.

Boltastrákur fékk góð ráð frá Guardiola 2017 og skoraði fyrir Man. City í gær
Micah Hamilton fékk draumabyrjun með aðalliði Manchester City í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Hvað var Kieran Trippier með í buxunum?
„Það var ein stór ráðgáta í þessum leik sem Gummi Ben pældi mikið í. Hvað var Kieran Trippier með í buxunum?“ sagði Kjartan Atli Kjartansson í Meistaradeildarmörkunum í gærkvöldi.

Sjáðu dramatíkina í dauðariðlinum og fleiri mörk úr Meistaradeildinni í gær
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lauk í gærkvöldi og nú er endanlega ljóst hvaða lið komust áfram í sextán liða úrslitin, hvaða lið enduðu í Evrópudeildinni og hvaða lið þurfa ekki að gera ráð fyrir neinum Evrópuleikjum eftir áramót.

Segir áreitið gagnvart James vera ógeðslegt
Emma Hayes, þjálfari kvennaliðs Chelsea, segir áreiti sem Lauren James hefur mátt þola vera ógeðslegt. Hún segir leikmanninn ekki vera á góðum stað andlega.

Porto áfram og Atletico tryggði sér efsta sætið
Porto tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld eftir sigur á Shaktar Donetsk í markaleik. Þá tryggði Atletico Madrid sér efsta sætið í E-riðli.

Fyrsta tap Brann kom gegn franska stórliðinu
Natasha Anasi-Erlingsson lék allan leikinn í vörn Brann sem beið lægri hlut gegn stórliði Lyon í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Newcastle úr leik í Evrópu eftir dramatík
Newcastle er úr leik í Evrópu eftir 2-1 tap gegn Milan á heimavelli í kvöld. AC Milan fer í umspil um sæti í Evrópudeildinni.

PSG í 16-liða úrslit eftir jafntefli í Þýskalandi
PSG er komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 1-1 jafntefli við Dortmund í Þýskalandi í kvöld. Stigið dugir PSG til að tryggja sér annað sæti riðilsins.

Rúnar Alex og félagar töpuðu dýrmætum stigum
Rúnar Alex Rúnarsson og samherjar hans í Cardiff þurftu að sætta sig við tap þegar liðið mætti Birmingham á heimavelli í kvöld.

Ungu mennirnir tryggðu City fullt hús stiga
Manchester City lauk keppni í G-riðli Meistaradeildar Evrópu með fullt hús stiga eftir 3-2 sigur á Rauðu Stjörnunni í kvöld. Tveir ungir leikmenn City sáu um markaskorun liðsins.

Barcelona fór illa með sænsku meistarana
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í FC Rosengård sóttu ekki gull í greipar Evrópumeistara Barcelona þegar liðin mættust í Meistaradeildinni í Malmö í kvöld.

Dómarinn sem var laminn útskrifaður af spítala
Dómarinn sem var laminn í leik í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta hefur verið útskrifaður af spítala.

Gamli FH-ingurinn búinn að koma FCK í sextán liða úrslit: „Mjög klókur þjálfari“
Ólafur Kristjánsson hefur mikið álit á þjálfara FC Kaupmannahafnar sem er komið í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Hann segir að handbragð hans sjáist greinilega á liðinu.

Þyngri byrðar á herðum Guðrúnar gegn Barcelona
Guðrún Arnardóttir, landsliðskona í fótbolta, á fyrir höndum afar krefjandi verkefni í dag með liði sínu Rosengård þegar sjálfir Evrópumeistarar Barcelona mæta í heimsókn til Malmö.

Sjáðu mörkin sem ollu verstu niðurstöðu Man. Utd frá upphafi
FC Kaupmannahöfn gerði sér lítið fyrir í gærkvöld og komst í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Manchester United féll hins vegar úr keppni. Mörkin úr leikjunum má sjá á Vísi.

„Herra Haugesund“ hættir eftir 30 ár til að gefa Óskari Hrafni vinnufrið
Haugesund tilkynnti í gær að „Herra Haugesund“ hafi ákveðið að segja þetta gott og hætta hjá félaginu til að gefa nýju þjálfarateymi fullkominn vinnufrið.

Jói Kalli: Hræðilegt fyrir stuðningsmenn United að fylgjast með þessu
Manchester United er úr leik í Evrópu og það fyrir jól. United datt út úr Meistaradeildinni í gær og komst heldur ekki í Evrópudeildina.