Enski boltinn

Samherji Gylfa neitar að fagnið hafi snúist um öfgakennda hægri menn í Tyrklandi
Cenk Tosun, framherji Everton, neitar því að hafa fagnað marki sínu gegn Rotherham í enska bikarnum að nýfasistasið. Tosun skoraði fyrra mark Everton í 2-1 sigri í framlengdum leik.

Æfa tvisvar í viku, eignuðust bjórkæli og fá nú Mourinho og hans menn til Krossabæjar
Leikmenn Marine æfa fótbolta tvisvar í viku, hafa ekki spilað leik síðan á öðrum degi jóla og eru einum bjórkæli ríkari vegna áhuga heimsins á stærsta leik lífs þeirra. Sá leikur er í dag þegar áhugamennirnir fá Jose Mourinho og hans menn í Tottenham í heimsókn, í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar.

Engin flugeldasýning þegar United fór áfram í bikarnum
Manchester United er komið áfram í fjórðu umferð FA-bikarsins eftir 1-0 sigur á B-deildarliði Watford.

Arsenal áfram eftir framlengingu
Bikarmeistarar Arsenal hófu titilvörn sína gegn Newcastle United á heimavelli. Lokatölur voru 2-0 sigur Arsenal eftir framlengingu.

Mourinho áhugasamur um varnarmann Real Madrid
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, er áhugasamur um að fá varnarmanninn Eder Militao til liðs við sitt lið frá Real Madrid.

Daníel og Jói Berg áfram eftir sigur í vítaspyrnukeppni
Jóhann Berg Guðmundsson var kominn í byrjunarlið Burnley, í fyrsta skipti í tvo mánuði, í ensku bikarkeppninni. Liðið er nú í framlengingu gegn C-deildarliðinu MK Dons.

Gylfi spilaði er Everton marði Rotherham eftir framlengingu
Everton þurfti framlengingu til þess að slá B-deildarliðið Rotherham United úr enska bikarnum er liðin mættust á Goodison Park í dag. Lokatölur 2-1.

Ungu strákarnir hjá Derby slegnir út af utandeildarliði | Jón Daði kominn áfram
Utandeildarlið Chorley gerði sér lítið fyrir og sló B-deildarliðið Derby út úr enska bikarnum. Lokatölur 2-0. Derby stillti þó upp varaliði þar sem aðallið félagsins, sem og Wayne Rooney og þjálfarateymið, eru í sóttkví.

Skipti um treyju við Fabinho en eftir spjall við einn úr þjálfarateyminu tók hann á rás
Hinn sautján ára gamli Louie Barry gleymir væntanlega seint gærkvöldinu er hann skoraði sitt fyrsta mark í aðalliðsfótbolta gegn ríkjandi ensku meisturunum í Liverpool.

Meira kemur til með að mæða á Gylfa í bikarslagnum
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið í stóru hlutverki hjá Everton síðustu vikur og útlit er fyrir enn meira mæði á honum í dag þegar liðið freistar þess að komast áfram í ensku bikarkeppninni í fótbolta.

Kæmi Berbatov ekki á óvart ef að De Beek myndi yfirgefa Man. United eftir fjóra mánuði hjá félaginu
Dimitar Berbatov, fyrrum framherji Manchester United, segir að hann væri ekki hissa ef að miðjumaðurinn Donny van de Beek væri byrjaður að líta í kringum sig og vilji komast frá félaginu.

Milner glotti við tönn: Fjórir leikmenn Villa ekki fæddir þegar hann lék sinn fyrsta leik með aðalliði Leeds
James Milner, vinstri bakvörður Liverpool í 4-1 sigrinum á Aston Villa í kvöld, hrósaði unga Villa liðinu fyrir leik sinn í kvöld en staðan eftir klukkutímaleik var 1-1.

„Krakkaliðið“ stóð í ensku meisturunum í klukkutíma
Aston Villa þarf að tefla fram unglingaliði sínu þegar Englandsmeistarar Liverpool koma í heimsókn á Villa Park í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld.

Enginn bakvörður hefur skapað meira en samherji Gylfa
Ef horft er til tölfræði Twitter síðunnar Football Critic er samherji Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton, Lucas Digne, sá bakvörður sem skapar flest færi á hverjum 90 mínútum.

Bruno leiður og vonsvikinn eftir tapið í undanúrslitunum
Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, hefur hvatt samherja sína til þess að læra af tapinu gegn Man. City í undanúrslitum enska deildarbikarsins fyrr í vikunni.

Arsenal valdi Pépé fram yfir Zaha
Wilfried Zaha, leikmaður Crystal Palace, segist hafa rætt við Unai Emery, þáverandi knattspyrnustjóra Arsenal, um möguleikann á að ganga í raðir félagsins í fyrra. Arsenal hafi hins vegar ákveðið að kaupa Nicolas Pépé.

Eigandi City keypti elsta bikarinn fyrir rúmlega 131 milljón króna
Sheik Mansour, eigandi Manchester City, hefur keypt elsta verðlaunagrip ensku bikarkeppninnar sem til er.

Krakkarnir mæta meisturunum í kvöld
Aston Villa hefur staðfest að leikur liðsins gegn Liverpool á Villa Park í 3. umferð ensku bikarkeppninnar fari fram.

Skilur ekki af hverju Hasenhüttl grét af gleði eftir sigurinn á Liverpool
Fabio Capello, fyrrverandi þjálfari enska landsliðsins, AC Milan, Juventus og fleiri liða, furðar sig á viðbrögðum Ralphs Hasenhüttl, knattspyrnustjóra Southampton, eftir sigurinn á Liverpool, 1-0, á mánudaginn.

Stjóri Jóhanns Berg vill bólusetja alla ensku úrvalsdeildina
Knattspyrnustjóri Burnley segir að peningurinn sem fer í öll kórónuveiruprófin hjá ensku úrvalsdeildinni væri betur varið hjá framlínunni.

Liverpool mætir krakkaliði ef leikurinn við Villa fer fram
Aston Villa teflir fram unglingaliði ef leikurinn gegn Liverpool í 3. umferð ensku bikarkeppninnar fer fram í kvöld.

Ancelotti og Hoddle gefa Chelsea föðurleg ráð
Pressan er mikil á Frank Lampard, stjóra Chelsea. Liðið hefur gengið afleitlega að undanförnu og ekki minnkaði pressan eftir 3-1 tapið gegn Manchester City um helgina. Tveir þaulreyndir stjórar segja þó Chelsea að gefa Lampard tíð og tíma.

Klopp ekki sammála Carragher
Mikið hefur verið fjallað um miðvarðarvandræði Liverpool og síðast í gær var greint frá því að David Alaba, miðvörður Bayern Munchen, væri kominn í umræðuna á Anfield.

Solskjær sagði Man. City besta lið Englands í augnablikinu
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hrósaði grönnunum í Manchester City eftir að City hafði betur gegn United í undanúrslitaleik enska deildarbikarsins á Old Trafford í gær.

Wenger segist nánast sjá eftir því að hafa keypt Sol Campbell
Arsene Wenger, fyrrum stjóri Arsenal, er ekki viss um að hann myndi kaupa Sol Campbell, aftur, ef hann fengi að spóla aftur til baka til ársins 2001.

Diallo orðinn leikmaður Man Utd
Kantmaðurinn Amad Diallo er formlega orðinn leikmaður Manchester United en enska knattspyrnufélagið greindi frá þessu síðdegis.

Bikarleikur Liverpool í hættu eftir hópsmit hjá Aston Villa
Aston Villa hefur lokað æfingasvæði sínu eftir að upp komu fjöldi kórónuveirusmita hjá félaginu.

„Þetta er bara væll af bestu sort“
Strákarnir í Sportinu í dag gefa ekki mikið fyrir umkvartanir Jürgens Klopp og stuðningsmanna Liverpool um að dómgæslan í ensku úrvalsdeildinni sé liðinu óhagstæð.

Keane segir að Fernandes sé enginn Cantona
Roy Keane gagnrýndi Bruno Fernandes eftir tap Manchester United fyrir Manchester City, 0-2, í undanúrslitum enska deildabikarsins í gær.

City í úrslit deildarbikarsins fjórða árið í röð
Manchester City mun leika til úrslita gegn Tottenham í enska deildarbikarnum eftir að City vann 2-0 sigur á grönnum sínum í Manchester United í síðari undanúrslitaleiknum sem fór fram á Old Trafford í kvöld.