Formúla 1

VetteL: Hissa að vera fremstur
Það kom Sebastian Vettel á óvart að ná besta tíma í tímatökum í Barein í dag.

Vettel fremstur á ráslínu
Þjóðverjinn Sebastian Vettel ræsir fremstur af stað í fyrsta Formúlu 1 mót árins á Red Bull. Hann náði besta tíma í tímatökum í Barein í dag og varð á undan Felipe Massa og Fernando Alonso á Ferrari.

Alonso fremstur í flokki
Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma á lokaæfingu fyrir tímatökuna í Barein, sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 10.45 í dag.

Rosberg og Schumacher í sterkri stöðu
Mercedes liðið var í fluggír í Barein á seinni æfingu keppnisliða í dag. Nico Rosberg náði besta tíma og Michael Schumacher varð þriðji, en á milli þeirra Lewis Hamilton á McLaren. Jenson Button varð svo fjórði maður, en 0.667 sekúndum á eftir.

Tvö lið óánægð með McLaren
Forráðamenn Renault eru óðir og uppvægir vegna búnaðar sem er um borð í McLaren bílnum og eykur loftflæði um bílinn á nýstárlegan hátt sem eykur hámarkshraða bílsins.

Sutil á undan stórlöxunum í Barein
Adrian Sutil sem ekur Force India var fljótastur allra á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða í Barein í morgun. Hann varð á undan Fernandi Alonso á Ferrari, á braut sem hefur verið breytt frá í fyrra.

Risaslagur framundan um titilinn
Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull segir að hörkuslagur verði um meistaratitilinn í Formúlu 1.

Massa: Mjög einbeittur fyrir tímabilið
Felipe Massa segist mjög áræðinn fyrir komandi tímabil í Formúlu 1 sem hefst um helgina.

Webber: Erfitt tímabil fyrir Schumacher
Ástralinn Mark Webber telur að tímabilið verði erfitt fyrir Michael Schumacher og að endurkoma hafi aldrei skilað miklu.

Massa: Ný lið hættuleg á brautinni
Felipe Massa telur að nýju lið í Formúlu 1 séu það hægfæra að hætt geti skapast í brautinni við framúrakstur þeirra öflugri.

Hamilton nærri því að hætta 2009
Lewis Hamilton sagði breskum fjölmiðlamönnum í morgun að hann hefði verið nálægt því að hætta í Formúlu 1 árið 2009, eftir að hann var tekið á beinið fyrir að brjóta af sér og segja ósatt í fyrsta móti ársins í fyrra. Ólafur Guðmundsson var meðal dómara sem ræddi við Hamilton eftir atvik í brautinni.

Schumacher: Eins og krakki að bíða jólanna
Michael Schumacher segir að hann sé spenntur fyrir fyrsta Formúlu 1 mótinu sem hann keppir í síðan 2006.

Indverskur ökumaður í Formúlu 1
Enn eykst flóran í Formúlu 1 því í dag var indverskur ökumaður tilkynntur sem liðsmaður HRT liðsins spænska sem er nýtt lið. Bruno Senna frá Brasilíu ekur einnig hjá liðinu. HRT stendur fyrir Hispania Racing Team.

Serbar fá ekki inngöngu í F1
FIA, alþjóðabílasambandið hefur hafnað óskum serbnesks keppnisliðs sem keypti búnað Toyioa 1 liðsins og vildi keppa í ár að koma inn í Formúlu 1 mótaröðina á síðustu stundu, eftir að hið bandaríska USF1 ákvað að hætta við þátttöku í vikunni.

Skandall í Formúlu 1
Ameríska Formúlu 1 liðið USF1 hefur hætt við .þátttöku í Formúlu 1 eftir margra mánaða undirbúning. Felipe McGouch, umboðsmaður Jose Maria Lopez sem átti að keyra fyrir liðið segir málið skandal fyrir Fornúlu 1.

Mercedes stefnir á sigur í fyrsta móti
Ross Brawn hjá Mercedes segir að lið hans muni stefna á sigur í fyrsta móti, þó að undirbúningurinn hafi ekki alveg gengið eins og í sögu.

Schumacher enn öflugur ökumaður
Ross Brawn, yfirmaður Brawn liðsins segir að Michael Schumacher sé enn jafn einbeittur og hann var með Ferrari.

Massa: Ferrari ekki með forskot
Felipe Massa segir að Ferrari sé ekki í lykilstöðu eftir æfingar í vetur, en æfingum lauk í Barcelona í gær.

Hamilton með besta tíma vikunnar
Bretinn Lewis Hamilton náði besta tíma á Barcleona brautinni í dag og þar með besta tíma vikunnar á æfingum á brautinni. Hann ekur með McLaren.

Rosberg sneggstur á rigningardegi
Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á Barcelona brautinni í dag á næst síðasta degi æfinga fyrir fyrsta mót ársins, eftir tvær vikur. Rigndi eftir hádegi sem takmarkaði möguleika ökumanna.

Webber á toppnum í Barcelona
Engin stóðst Ástralanm Mark Webber snúning á Formúlu 1 brautinni í Barcelona í dag. Hann ók hraðast allra Red Bull.

Lokaæfingar keppnisliða í Barcelona
Formúlu 1 lið eru að leggja síðustu hönd á undirbúning sinn fyrir fyrsta mót ársins í Bahrain eftir hálfan mánuð. Þau keyra í Barcleona út þessa viku og mæta allir helstu ökumenn á svæðið með liðum sínum.

FIA að skoða keppnishæfi USF1
Nýja bandaríska keppnislið USF1 er í vanda stat tog FIA , alþjoðabílasambandið hefur ákveðið að senda fulltrúa sinn til að skoða hvað er í gangi hjá liðinu, sem mætir ekki á ráslínuna í fyrsta mót og vill fá frest fram í fjórða mót ársins.

Ferrari gagnrýnir FIA
Ferrari liðið gangrýnir FIA á heimasíðu sinni fyrir ævitýramennskuvarðandi fjölgun liða, nú þegar ljóst er að allavega tvö lið fá að keppa

Alonso skorar ekki sjálfsmark á Ferrari
Spánverjinn Fernando Alonso telur að margir mótherja hans hafi sýnt fullan styrk á æfingum á Spáni, á meðan hann tók ekki á öllu sem til var í Ferrari fáknum.

USF1 liðið sleppir fyrstu mótunum
Nýliðarnir frá Bandaríkjunum USF1 er að reyna semja við FIA um að fá að sleppa fyrstu fjórum mótunum á mótaskrá Formúlu 1 í ár. Liðið er ekki komið nógu langt með keppnisbíl sinn og ýmis byrjunarörðugleikar hafa háð liðinu.

Dagur Buttons í æfingakastrinum
Heimsmeistarinn Jenson Button á McLaren náði besta tíma á æfingum á Jerez brautinni á Spáni í dag. Hann varð um 0.3 sekúndum fljótari en Robert Kubica á Renault, en franska liðið hefur verið býsna sterkt á æfingum.

Webber stakk af á Spáni
Ástralinn Mark Webber var langfljótastur á æfingu á Jerez brautinni á Spániu í dag. Hann ekur eð Red Bill og var á undan Spjánverjanum Fernando Alonso hjá Ferrari.

Barrichello fljótstur i Jerez
Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello var fljótastur allra um Jerez brautina á Spáni í dag. Hann ekur á Williams Cosworth, en Rússinn Vitaly Petrov varð annar á Renault.

Góð byrjun Lotus á æfingum
Nýja lið Lotus hóf æfingar með Fairuz Fauzy og Mike Gascoyne hönnuður liðsins er ánægður með afraksturinn eftir fyrsta sprettinn.