Formúla 1

Rosberg á ráspól í Þýskalandi
Nico Rosberg á Mercedes náði í ráspól á heimavelli. Valtteri Bottas varð annar á Williams og liðsfélagi hans Felipe Massa varð þriðji.

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum
Nico Rosberg á Mercedes varð fljóstastur á fyrri æfingu dagsins. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton var skammt á eftir honum. Hamilton varð svo flótastur á seinni æfingunni.

Hvern fer að vanta íhluti eftir níu keppnir?
Aukin áhersla er nú í Formúlu 1 á áreiðanleika. Hér förum við yfir hver er búinn að nota hvað. Refsingar liggja við notkun fleiri hluta en heimilt er.

FIFA bannaði Rosberg að nota HM-bikarinn
Ætlaði að heiðra árangur þýska landsliðsins á keppnishjálmi sínum.

FIA íhugar breyttar refsingar
Alþjóða aksturstíþróttasambandið (FIA) leitar nú nýrra leiða til að refsa liðum fyrir óörugg þjónustuhlé. Núgildandi reglur refsa ökumönnum fyrir slík þjónustuhlé.

McLaren verður án FRIC fjöðrunar í Þýskalandi
McLaren liðið hefur staðfest að það muni fjarlægja FRIC fjöðrunina úr sínum bílum fyrir þýska kappasturinn.

Rosberg fær nýjan risasamning
Nico Rosberg fær átta og hálfan milljarð fyrir nýjan þriggja ára samning við Mercedes.

Vettel neitar að gefa titilbaráttuna upp á bátinn
Sebastian Vettel, núverandi heimsmeistari í Formúlu 1 heldur enn í vonina um að verða heimsmeistari í lok tímabils.

Bottas: Mercedes gæti fundið fyrir FRIC banni
Valtteri Bottas, ökumaður Williams telur að Mercedes liðið verði fyrir mestum áhrifum ef tengd fram og aftur fjöðrun (FRIC) verður bönnuð. Bottas telur að bannið myndi ekki hafa áhrif á Williams liðið.

Eiginkona Schumachers: Við sjáum framfarir
Corinna Schumacher tjáir sig í fyrsta skipti síðan Michael lenti í slysinu.

Bílskúrinn: Kristjáns-horn og klöguskjóður
Eftir gríðarlega spennandi breskan kappakstur þar sem heimamaðurinn Lewis Hamilton hjá Mercedes vann er kominn tími til að skoða Bílskúrinn, léttu hliðina á Formúlu 1 á Vísi.

Rosberg er ekki Þjóðverji
Bretinn Lewis Hamilton er heldur betur búinn að kynda bálið fyrir þýska kappaksturinn í Formúlu 1.

Raikkonen slapp heill eftir árekstur á 250 km hraða | Myndband
Finninn lenti í svakalegum árekstri í Silverstone-kappaksturinum í Bretlandi.

Samantekt frá breska kappakstrinum
Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Bretlandi í gær og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.

Lewis Hamilton vann á heimavelli
Lewis Hamilton á Mercedes. vann breska kappaksturinn. Eftir gríðarlega dramatíska keppni. Valtteri Bottas á Williams var annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Sjáðu ótrúlegan árekstur Kimi Raikkonen | Myndband
Kimi Raikkonen missti stjórn á Ferrari bifreið sinni á fyrsta hringnum í breska kappakstrinum.

Rosberg á ráspól á Silverstone
Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í breska kappakstrinum, Sebastian Vettel á Red Bull varð annar og Jenson Button á McLaren varð þriðji. Tímatakan einkenndist af skúrum á köflum og miklum sviftingum.

Hamilton sækir innblástur til Muhammads Ali
Barátta Mercedes-ökuþóranna mikil fyrir breska kappaksturinn á Silverstone um helgina.

Mercedesmenn fljótastir á föstudagsæfingum
Nico Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Silverstone brautinni á tímanum 1:35,424. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð fljótastur á seinni æfingunni á tímanum 1:34,508.

Raikkonen ætlar að hætta eftir 2015
Kimi Raikkonen, ökumaður Ferrari hyggst hætta í Formúlu 1 eftir næsta keppnistímabil. Þegar gildandi samningur hans við Ferrari tekur enda.

Ökumenn mótmæla breyttri endurræsingu
Nánast hver einasti af 22 ökumönnum í Formúlu 1 hefur mótmælt endurræsingu keppna úr kyrrstöðu. Þrátt fyrir það er breytingin væntanleg á næsta tímabili.

Red Bull bíllinn betri en Renault vélin
Daniel Ricciardo ökumaður Red Bull telur að bilið á milli Renault og Mercedes vélanna sé sóun á getu Red Bull bílsins.

Eigandi Caterham íhugar að hætta í Formúlu 1
Tony Fernandes, eigandi og stjórnandi Caterham liðsins í Formúlu 1 hefur gefið vísbendingar um að liðið muni hætta í Formúlu 1.

Lauda: Hamilton er andlega reiðubúinn að berjast
Niki Lauda, sérstakur ráðunautur Mercedes liðsins og fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 telur að Lewis Hamilton berjist af hörku í komandi keppnum.

Renault mun ekki ná framförum fyrr en 2015
Franski vélaframleiðandinn Renault gerir ekki ráð fyrir miklum bætingum á vél sinni í ár vegna takmarkana á þróun.

Alonso: Ég vil titla frekar en virðingu
Fernando Alonso segist ekki sáttur þótt honum sé sífellt hælt fyrir frammistöðu sína.

Bílskúrinn: Harmleikur heimsmeistarans
Keppnin á Red Bull Ring brautinni í Austurríki var athyglisverð fyrir margt. Hvað kom fyrir Red Bull, hvernig er stemmingin hjá Mercedes og hvernig stóðst Williams áhlaup Mercedes?

Sjúkraskýrslum Schumacher stolið
Sjúkraskýrslum sem fjalla um ástand Michael Schumacher var stolið af franska spítalanum sem Schumacher hefur dvalist á.

Samantekt frá austurríska kappakstrinum í formúlu 1
Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Austurríki í dag og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.

Nico Rosberg fyrstur í mark í Austurríki
Nico Rosberg vann keppnina í Austurríki, liðsfélagi hans Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hætti keppni.