Fótbolti

Heldur kyrru fyrir í Kópavogi
Færeyski framherjinn Patrik Johannesen verður áfram leikmaður Breiðabliks þrátt fyrir fréttir þess efnis að hann væri á förum frá félaginu.

Skytturnar kynna Calafiori til leiks
Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur staðfest komu varnarmannsins Riccardo Calafiori. Hann kemur frá Bologna og kostar 42 milljónir punda eða tæpan sjö og hálfan milljarð íslenskra króna.

Spánverjar bættu við enn einu fótboltagullinu í gær
Spænska nítján ára landsliðið í fótbolta varð í gær Evrópumeistari eftir sigur á Frökkum í úrslitaleiknum.

Sóknarmaður á leið í Lambhagann
Hollenski framherjinn Djenairo Daniels er á leið til Fram og mun klára tímabilið með liðinu í Bestu deild karla.

Mikið undir hjá vængbrotnum KR-ingum: „Þýðir ekkert að væla yfir þessu“
Pálmi Rafn Pálmason, þjálfari KR, segir tíma til kominn fyrir hans menn að ná í þrjú stig. KR mætir KA að Meistaravöllum í Bestu deild karla klukkan 18:00 í kvöld.

Gera bíómynd um deilu Roy Keane og Mick McCarthy fyrir HM 2002
Kvikmynd um uppákomuna á HM 2002, þegar Roy Keane yfirgaf herbúðir írska fótboltalandsliðsins, verður frumsýnd næsta sumar.

Sjáðu mörkin: Fram rúllaði yfir Val og Víkingur setti fimm
Fjórir leikir voru á dagskrá í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Mörkin í leikjunum fjórum voru 17 talsins.

Ástbjörn og Gyrðir búnir að semja við KR
Fótboltamennirnir Ástbjörn Þórðarson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson hafa náð samkomulagi um að leika með KR á næstu leiktíð. Samningur þeirra við FH rennur út að yfirstandandi leiktíð lokinni.

Pabbi Endrick gat ekki hætt að gráta
Real Madrid kynnti brasilíska undrabarnið Endrick til leiks um helgina og það var risastór stund fyrir fjölskyldu hins átján ára gamla Endrick.

„Við erum ekki svindlarar“
Kanadíska kvennalandsliðið í knattspyrnu er búið að vinna tvo fyrstu leiki sína á Ólympíuleikunum í París en liðið er samt með ekkert stig.

Tanja tekur við af Eysteini Pétri
Breiðablik hefur ráðið Tönju Tómasdóttur í starf framkvæmdastjóra félagsins.

Man. Utd vill hundrað þúsund manna leikvang fyrir árið 2030
Eigendur Manchester United vonast eftir því að byggja nýjan hundrað þúsund manna leikvang á næstu sex árum.

Tottenham sækir annan Kóreumann
Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham Hotspur hefur náð samkomulagi við kóreska liðið Gangwon FC um kaupin á Yang Min-hyuk.

Arnar: Get lofað ykkur því að við munum ekki gefast upp
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var að vonum hæstánægður með 5-1 sigur síns liðs á HK í Bestu-deild karla í kvöld.

Rúnar: Höfum engu gleymt
Rúnar Kristinsson þjálfari Fram var að vonum mjög ánægður með sigur sinna manna á Val á heimavelli í kvöld. Leikurinn endaði með stórsigri heimamanna 4-1 og náðu Framarar að minnka muninn á liðin í efri hlutanum með sigrinum í kvöld.

Bandaríkin völtuðu yfir Þýskaland og ellefu marka veisla í sigri Ástralíu
Sex leikir fóru fram í knattspyrnukeppni kvenna á Ólympíuleikunum í París í dag. Bandaríkin unnu öruggan 4-1 sigur gegn Þjóðverjum og Ástralía vann ótrúlegan 6-5 sigur gegn Sambíu.

„Frábærir frá upphafi til enda“
Jökull Elísarbetarson, þjálfari Stjörnunnar, var í skýjunum með frammistöðu liðsins eftir 3-1 sigur á ÍA í Bestu deild karla í dag.

„Við komum okkur í frábæra stöðu til að loka þessum leik“
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, þurfti að sætta sig við 3-1 tap á móti Stjörnunni á Akranesi í dag. Skagamenn leiddu í hálfleik en Garðbæingar gengu á lagið í síðari hálfleik.

Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Framarar tóku Valsmenn í kennslustund
Fram vann óvæntan og öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti Valsmönnum í 16. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

Uppgjörið: Víkingur - HK 5-1 | Meistararnir aftur á sigurbraut
Íslandsmeistarar Víkings unnu afar öruggan 5-1 sigur er liðið tók á móti HK í 16. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

Orri skoraði í endurkomusigri FCK
Orri Óskarsson skoraði annað mark FCK er liðið vann 3-2 endurkomusigur gegn Íslendingaliði AGF í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Uppgjör: Vestri - FH 0-2 | FH-ingar sóttu stigin þrjú á Ísafjörð og komust upp að hlið Vals
FH vann 2-0 seiglusigur þegar liðið sótti Vestra heima á Kerecis-völlinn á Ísafjörð í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Ólafur Guðmundsson og Vuk Oskar Dimitrijevic sáu til þess að FH sigldi sigrinum í höfn. FH er nú með jafn mörg stig og Valur í þriðja til fjórða sæti deildarinnar.

Andri Lucas kláraði lærisveina Freys
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði eina mark leiksins er Gent vann sterkan 1-0 útisigur gegn Frey Alexanderssyni og lærisveinum hans í Kortrijk í fyrstu umferð belgísku úrvalsdeildarinnar í dag.

Phillips vill fara frá Man City
Miðjumaðurinn Kalvin Phillips vill yfirgefa Englandsmeistara Manchester City. Hann var á láni hjá West Ham United á síðustu leiktíð. Þar spilaði hann svo illa að hann missti sæti sitt í enska landsliðshópnum.

Uppgjörið: ÍA - Stjarnan 1-3 | Stjörnumenn stálu sigrinum á Skaganum
Skagamenn tóku á móti Stjörnunni á Akranesi í dag í Bestu deild karla. Gestirnir úr Garðabæ fóru með 3-1 sigur af hólmi í miklum baráttuleik.

Nökkvi Þeyr lagði upp í eins marks sigri St. Louis
Nökkvi Þeyr Þórisson lagði upp fyrra mark St. Louis City á 2-1 sigri liðsins á FC Dallas í bandaríska deildarbikarnum í knattspyrnu.

Segir að Liverpool muni spila með „alvöru framherja“ í vetur
Arne Slot, nýráðinn þjálfari enska knattspyrnufélagsins Liverpool, segir að sínir menn muni spila með „alvöru framherja“ á komandi tímabili eða svokallaða níu.

FH að festa kaup á færeyska framherjanum Patrik
Patrik Johannesen er við það að ganga í raðir FH en þessi færeyski landsliðsmaður er í dag leikmaður Breiðabliks í Bestu deild karla í knattspyrnu.

Meiðslamartröð Man Utd heldur áfram
Manchester United tapaði 2-1 gegn Arsenal er liðin mættust í vináttuleik í Bandaríkjunum í nótt. Rasmus Höjlund kom Man United yfir áður en hann fór meiddur af velli. Leny Yoro, hinn nýi miðvörður Manchester-liðsins, fór einnig af velli meiddur.

Nico Williams með eftirsóttari mönnum
Stjórnendur Athletic Bilbao fá engan frið frá helstu stórliðum Evrópu sem hafa mikinn áhuga á að tryggja sér þjónustu vængmannsins Nico Williams eftir frammistöðu hans á EM í sumar.