
Fótbolti

Juventus skoraði þrjú á átta mínútum og bjargaði stigi
Bologna komst 3-0 yfir gegn Juventus í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í fótbolta, en Juventus kom til baka og bjargaði stigi.

Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra
Aron Sigurðarson, leikmaður KR, var að vonum ánægður með sigur liðsins gegn FH þegar hann mætti í viðtal til Gunnlaugs Jónssonar strax að leik loknum. Aron kom KR yfir með marki úr vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik en það var hans fyrsta mark fyrir KR í deildinni.

Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús
KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta með 4-2 sigri á Fylki fyrir norðan í dag. Heimamenn leiddu 3-0 í hálfleik en Fylkismenn gengu á lagið í þeim síðari og úr varð opinn og skemmtilegur leikur.

„Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“
Hallgrími Jónassyni, þjálfara KA, var eðlilega létt eftir að KA nældi í sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta eftir brösulega byrjun á tímabilinu.

Hlín á skotskónum og Guðrún vann toppslaginn
Hlín Eiríksdóttir skoraði bæði mörk Kristianstad sem vann 2-0 útisigur á Vaxjö í efstu deild kvenna í fótbolta í Svíþjóð. Guðrún Arnardóttir stóð vaktina í vörn Rosengård sem lagði Hammarby í toppslag deildarinnar.

Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði
FH tók á móti KR í Kaplakrika í 7. umferð Bestu deildar karla. Eftir afar kaflaskiptar 90 mínútur fór svo að lokum að KR vann 2-1 sigur.

Sverrir Ingi á skotskónum í ótrúlegum leik
Miðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason bjargaði stigi fyrir Midtjylland þegar liðið kom til baka eftir að lenda 3-0 undir gegn Nordsjælland í næstsíðustu umferð dönsku úrvalsdeildar karla í fótbolta. Lokatölur 3-3 og Midtjylland nú jafnt Bröndby að stigum fyrir lokaumferðina.

Liverpool staðfestir komu Slot
Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur staðfest að hinn hollenski Arne Slot verði næsti þjálfari liðsins. Hann skrifar undir þriggja ára samning.

Víkingarnir fyrrverandi öflugir í Noregi
Júlíus Magnússon og Logi Tómasson, fyrrverandi leikmenn Víkings hér á landi, spiluðu í dag stóra rullu í sigrum liða sinna í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

„Hann þekkir mig örugglega betur en ég sjálfur“
Eftir að hafa þurft að dúsa á varamannabekknum í síðustu umferð kom Danijel Dejan Djuric til baka af krafti í 4-1 útisigri Víkings gegn Vestra. Danijel átti frábæran leik, skoraði tvö mörk og hefði hæglega getað sett það þriðja en var tekinn af velli.

Rodri gagnrýnir hugarfar Arsenal manna: Þar liggur munurinn
Annað árið í röð þá hafði Manchester City betur í baráttunni við Arsenal um Englandsmeistaratitilinn. City hefur unnið deildina fjögur ár í röð og í bæði skiptin tekið fram úr Arsenal á lokasprettinum.

Jafnmörg mörk og rauð spjöld í Vestmannaeyjum
Báðum leikjum dagsins í Lengjudeild karla í fótbolta lauk með jafntefli.

Dagný framlengir samning sinn við West Ham
Íslenska landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur gert nýjan samning við enska úrvalsdeildarfélagið West Ham. Þetta eru frábærar fréttir fyrir West Ham og íslenska landsliðið.

Hildur, María og Lára urðu að sætta sig við silfur í bikarúrslitaleiknum
Íslendingaliðið Fortuna Sittard tapaði í dag 3-1 á móti Ajax í hollenska bikarúrslitaleiknum sem fór fram á Koning Willem II leikvanginum.

Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli
Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir fór meidd af velli eftir aðeins 22 mínútna leik í dag.

Draumainnkoma Sævars Atla breytti leiknum
Sævar Atli Magnússon skoraði tvö mörk fyrir Lyngby í dag í 3-1 sigri á Viborg í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar.

Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum
Vestri tók á móti Víkingi á AVIS vellinum í Laugardal í 7. umferð Bestu deildar karla. Víkingar fóru þar með afar öruggan 1-4 sigur.

Mikel Arteta missti af möguleikanum
Met José Mourinho lifir áfram vegna þess að Manchester City vann enska meistaratitilinn i fótbolta í gær en ekki Arsenal.

Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera
Jürgen Klopp kvaddi Liverpool í gær og fullvissaði alla um það að hann væri með engin plön um endurkomu í þjálfun.

23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry
Phil Foden kórónaði stórkostlegt tímabil sitt í gær með tveimur mörkum í lokaleik Manchester City á móti West Ham. Mörkin tryggðu liðinu 3-1 sigur og enska meistaratitilinn fjórða árið í röð.

Besiktas segist vera að ræða við Mourinho
Allt lítur út fyrir að næsta starf knattspyrnustjórans José Mourinho verði í Tyrklandi.

„Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“
Kyle McLagan, sem hefur verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar, ber Rúnari Kristinssyni, þjálfara Fram, afar vel söguna.

Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram
Pep Guardiola gerði Manchcester City að Englandsmeisturum fjórða árið í röð í gær og jafnfram í sjötta sinn á sjö árum. Hann ræddi framtíð sína hjá félaginu eftir 3-1 sigur á West Ham í lokaumferðinni.

Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið
Aldrei áður hafa verið skoruð eins mörg mörk í ensku úrvalsdeildinni eins og á tímabilinu sem lauk í gær.

Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz
Það muna eflaust einhverjir eftir Bomber Bo, Dananum Bo Henriksen, sem spilaði með þremur íslenskum félögum á árunum 2005 til 2006. Nú er kappinn að gera góða hluti sem þjálfari og er kallaður kraftaverkamaður í Mainz.

Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal
Eftir að hafa misst af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla hefur Kyle McLagan verið einn besti leikmaður Bestu deildar karla í sumar. Hann hefur verið sem klettur í vörn Fram sem er óþekkjanleg frá fyrri árum. Kyle kom fyrst hingað til lands í hálfgerðu bríaríi fyrir nokkrum árum en hefur fest rætur á klakanum og nýtur lífsins hér.

„Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“
Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden lauk frábæru tímabili í ensku úrvalsdeildinni með tveimur mörkum er lokaumferðinni sem fram fór í gær.

Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins
„Auðvitað er mjög erfitt að kyngja þessu en það verður bara að gera það“, sagði Kristján Guðmundsson eftir 3-4 tap Stjörnunnar gegn Breiðabliki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Úrslitin réðust á röngum vítadómi í framlengingu.

Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil
Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrra mark Lille er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Nice í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann
Jürgen Klopp stýrði Liverpool í síðasta sinn í dag þegar liðið vann 2-0 sigur gegn Wolves í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.