
Fótbolti

Finnur Arnar fyrir pressunni? „Þjálfari félags sem svífst einskis til að ná árangri“
Valur tapaði fyrir Stjörnunni í fyrsta leik 3.umferðar Bestu deildar karla síðastliðið föstudagskvöld og sitja Valsmenn því aðeins með fjögur stig af níu mögulegum eftir fyrstu þrjá leiki sína á yfirstandandi tímabili. Arnar Grétarsson, þjálfari liðsins, virtist illa fyrir kallaður í viðtölum eftir leik og var staða hans til umræðu í uppgjörsþættinum Stúkan á Stöð 2 Sport í gær.

Sjáðu mörkin úr stórleiknum, öðrum stórsigri ÍA í röð og sögulegum sigri Vestra
Tólf mörk voru skoruð í síðustu þremur leikjum 3. umferðar Bestu deildar karla. Víkingar og Skagamenn sýndu styrk sinn á meðan Vestramenn unnu sinn fyrsta sigur í efstu deild.

Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila
Stuðningsmaður Manchester United hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá sína menn spila gegn Coventry City í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar.

Antony gagnrýndur fyrir fagnið
Brasilíumaðurinn Antony hefur víða verið gagnrýndur fyrir það hvernig hann fagnaði sigri Manchester United á Coventry City í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í gær.

Xavi aftur brjálaður: „Þetta er til skammar og við ætlum ekki að þegja“
Xavi, knattspyrnustjóri Barcelona, fór mikinn í gagnrýni sinni á dómara leiksins gegn Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í gær.

„Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“
Jamie Carragher telur að Erik ten Hag verði ekki áfram knattspyrnustjóri Manchester United, þrátt fyrir að hafa komið liðinu í úrslit ensku bikarkeppninnar annað árið í röð.

Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley
Sir Jim Ratcliffe, meðeigandi Manchester United, var önnum kafinn í dag.

Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni
Nottingham Forest tók til samfélagsmiðla eftir leik gegn Everton og ásakaði Stuart Atwell, myndbandsdómara leiksins, um hlutdrægni í ákvarðanatöku. Félagið hefur ekki lagt fram formlega kvörtun eða kæru en íhugar valkosti sína vandlega.

„Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“
Coventry var hársbreidd, bókstaflega, frá því að vinna Manchester United á Wembley í dag í undanúrslitum FA bikarsins.

„Annað skiptið sem fullkomlega löglegt mark gegn Víkingum er dæmt af“
Halldór Árnason var svekktur eftir 4-1 tap Breiðabliks gegn Víkingi, þá sérstaklega í ljósi þess að mark var dæmt af Breiðabliki, sem hefði átt að standa að mati Halldórs.

„Margt búið að ganga á bakvið tjöldin“
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga sagði frammistöðu hans liðs hafa verið heilsteypta gegn Blikum í dag. Hann sagði að ýmislegt væri búið að ganga á bakvið tjöldin í Víkinni sem fólk vissi ekki af.

Jón Þór um Akranesvöllinn: „Hann verður frábær í sumar, eða eins frábær og hann verður“
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var ánægður þegar hann mætti í viðtal eftir 5-1 sigur ÍA gegn Fylki í Akraneshöllinni fyrr í dag.

„Leið eins og ég væri að svífa um völlinn“
Ari Sigurpálsson átti frábæran leik fyrir Víkinga gegn Breiðablik í kvöld. Ari skoraði tvö mörk, skilaði góðri varnarvinnu og olli varnarmönnum Blika hugarangri með hraða sínum.

Uppgjör, viðtöl og myndir: Víkingur R. - Breiðablik 4-1 | Meistararnir sýndu styrk sinn
Víkingar eru áfram með fullt hús stiga í Bestu deild karla í knattspyrnu eftir 4-1 sigur á Breiðablik á heimavelli sínum í Víkinni í kvöld.

Aftur tryggði Bellingham sigur á lokamínútum El Clásico
Real Madrid og Barcelona mætast á Santiago Bernabéu vellinum í Madríd klukkan 19:00.

Sverrir og félagar töpuðu toppslagnum
Midtjylland tapaði toppslag dönsku úrvalsdeildarinnar 2-1 fyrir Brøndby í afar mikilvægum leik.

Tók vítaspyrnuna sjálfur en skaut í markrammann
Fjöldi Íslendinga var í eldlínunni í norsku úrvalsdeildinni í dag. Brynjólfur Darri Willumsson fiskaði vítaspyrnu og tók hana sjálfur en skaut í stöngina. Aðrir voru öllu rólegri.

„Geðveikt fyrir félagið að fá fyrsta sigurinn núna og brjóta ísinn“
Andri Rúnar Bjarnason, leikmaður Vestra, var í skýjunum eftir að Vestri náði í sinn fyrsta sigur í sögunni í efstu deild. Jeppe Gertsen skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma.

„Sem fyrrum sóknarmaður er ég mjög sáttur með varnarleikinn“
Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður með sigur síns liðs gegn Þór/KA í fyrsta leik Bestu deildar kvenna í dag.

B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið
B-deildarliðið Coventry City var hársbreidd frá því að fella risann Manchester United í undanúrslitum FA bikarsins. Venjulegum leiktíma lauk með 3-3 jafntefli og framlenging dugði ekki til að skilja liðin að. United fór áfram eftir vítaspyrnukeppni.

Liverpool jafnar efsta sætið að stigum
Liverpool hefur átt í vandræðum að undanförnu. Hvernig gengur þeim er þeir heimsækja Fulham til Lundúna klukkan 15:30?

„Maður getur ekki tekið annað en jákvæðni og gleði út úr þessu“
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gat ekki annað en verið ánægður eftir fyrsta sigur Vestra í efstu deild er liðið vann 1-0 útisigur gegn KA. Jeppe Gertsen skoraði eina mark leiksins á þriðju mínútu uppbótartíma og úr varð mikill fögnuður.

Uppgjörið og viðtöl: Valur - Þór/KA 3-1 | Amanda með tvö og titilvörnin byrjar vel
Íslandsmeistarar Vals byrja vel í Bestu deild kvenna í fótbolta en liðið vann 3-1 sigur á Þór/KA í opnunarleik mótsins. Amanda Andradóttir skoraði tvö fyrstu mörk Íslandsmótsins en Jasmín Erla Ingadóttir var bæði með mark og stoðsendingu í fyrsta deildarleik með Val.

Uppgjörið: ÍA - Fylkir 5-1 | Risasigur gegn tíu Fylkismönnum
ÍA vann 5-1 stórsigur gegn Fylki í 3. umferð Bestu deildar karla. Fylkismenn misstu mann af velli undir lok fyrri hálfleiks í stöðunni 1-0. ÍA komst þá fimm mörkum yfir en Fylkismenn klóruðu aðeins í bakkann undir lokin.

Palace menn fóru mjög illa með West Ham
Crystal Palace vann óvæntan stórsigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag og Aston Villa kom til baka á móti Bournemouth.

Uppgjör og viðtöl: KA - Vestri 0-1 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma
Vestri er komið á blað í efstu deild eftir 1-0 sigur á KA á Akureyri í dag en Jeppe Gertsen skoraði eina mark leiksins á þriðju mínútu uppbótartíma.

Skelfilegar fjórar mínútur hjá Kristianstad í Íslendingaslag
Ísland átti fjóra af 22 byrjunarliðsmönnum þegar Rosengård vann 3-1 útisigur á Kristianstad í sænsku kvennadeildinni í fótbolta.

Everton vann og er nú fimm stigum frá fallsæti
Everton vann gríðarlega mikilvægan botnbaráttuslag á móti Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Andri Lucas aðeins nokkrar mínútur að halda upp á nýja samninginn
Íslenski landsliðsmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen var á skotskónum með Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Mark hans dugði þó ekki til

„Í sólbaði í Kólumbíu í janúar þá leið mér ekkert sérstaklega vel“
Ólafur Kristjánsson er mættur í kvennaboltann og sérfræðingar Bestu markanna bíða spenntar eftir því að sjá hvort prófessorinn kunni kvennafræðin jafnvel og karlafræðin. Þetta er náttúrulega áfram bara fótbolti og þar hefur Ólafur sýnt að hann er meistaraþjálfari.