

Danmörk og England gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust á EM í knattspyrnu í dag.
„Jú, það er svolítið erfitt að bera sig ekki við systur sína þegar maður er í sömu deild og sömu stöðu en ég held að það geri okkur að betri leikmönnum,“ sagði Birta Guðlaugsdóttir aðspurð hvernig það er að eiga systur sem er einnig markvörður.
Serbía sótti 1-1 jafntefli á fimmtu mínútu uppbótartíma í leik gegn Slóvakíu. Sterkt stig sem heldur vonum Serbanna um að komast áfram í 16-liða úrslit á lífi.
Elísabet Gunnarsdóttir, betur þekkt sem Beta, er orðuð við þjálfarastöðu Aston Villa í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Elísabet hefur verið án starfs síðan hún lét af störfum hjá Kristianstad í Svíþjóð að lokinni síðustu leiktíð.
Sir Jim Ratcliffe segir að samkvæmt regluverki Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, megi Manchester United ekki kaupa leikmann af Nice þar sem hann á eignarhluta í báðum félögum.
Leicester City hefur ráðið Steve Cooper sem nýjan þjálfara liðsins og mun hann stýra liðinu í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð.
Gregg Ryder var látinn fara sem þjálfari KR í Bestu deild karla í knattspyrnu fyrr í dag. Pálmi Rafn Pálmason mun stýra liðinu en Óskar Hrafn Þorvaldsson, nýráðinn ráðgjafi knattspyrnudeildar félagsins, mun ekki taka við liðinu að svo stöddu.
Nýjasti þáttur Sumarmótanna á Stöð 2 Sport verður frumsýndur í kvöld en að þessu sinni er komið að TM mótinu í Vestmannaeyjum.
KR hefur sagt Gregg Ryder upp. „Ástæða uppsagnar er óviðunandi árangur liðsins það sem af er sumri,“ segir í yfirlýsingu KR.
Nýr knattspyrnustjóri Liverpool þarf ekki að kvarta mikið yfir erfiðri byrjun á stjóraferli sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Þau sem fylgdust vel með ensku úrvalsdeild karla á nýafstaðinni leiktíð sáu ef til vill André Onana, markvörð Manchester United, maka vaselíni júgurá markmannshanska sína. Hver er tilgangurinn og gæti verið að við sjáum markverði í Bestu deildum karla eða kvenna taka þetta upp í sumar?
Viktor Karl Einarsson tryggði Blikum 2-1 sigur á KA í lokaleik tíundu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í gær.
Nabil Bentaleb spilar með íslenska landsliðsmanninum Hákoni Arnari Haraldssyni hjá LOSC Lille í Frakklandi en félagið greindi í gærkvöldi frá skyndiveikindum kappans.
Serbar eru mjög ósáttir með söngva stuðningsmanna Króatíu og Albaníu á leik þjóðanna á Evrópumótinu í knattspyrnu í gær.
Dagur Dan Þórhallsson var í byrjunarliði Orlando City en spilaði þó aðeins fyrri hálfleikinn í 2-2 jafntefli á móti Charlotte í MLS-deildinni í nótt.
Arne Slot leitaði ráða hjá Jurgen Klopp áður en hann tók formlega við störfum hjá Liverpool í byrjun mánaðar. Hann mun taka þrjá þjálfara með sér frá Feyenoord.
Svisslendingurinn Xherdan Shaqiri er sá eini sem hefur skorað á öllum stórmótum frá árinu 2014. Hann kom sér í þann einkaklúbb með frábæru marki á Evrópumótinu í Þýskalandi í gær.
Kylian Mbappé var mættur aftur til æfinga með franska landsliðinu í dag. Hann nefbrotnaði á mánudaginn og óvíst er hvort hann muni geta tekið þátt í leik gegn Hollandi næsta föstudag.
Frakklandsmeistarar Lyon hafa ráðið Joe Montemurro sem eftirmann Sonia Bampastor sem tók við Chelsea í kjölfar þess að Emma Hayes tók við bandaríska kvennalandsliðinu í fótbolta. Téður Joe hefur áður stýrt Arsenal á Englandi og Juventus á Ítalíu.
Grótta tapaði 2-3 á móti Njarðvík í fyrsta leik 8. umferð Lengjudeildar karla. Öll fimm mörk leiksins og eitt rautt spjald litu dagsins ljós í seinni hálfleik.
Breiðablik vann 2-1 gegn KA í lokaleik 10. umferðar Bestu deildar karla. Eftir sigurinn er Breiðablik aðeins einu stigi frá toppliði Víkings. Gestirnir í KA sitja sem fastast á botni deildarinnar.
Skotland og Sviss skildu jöfn 1-1 í annarri umferð Evrópumótsins í Þýskalandi. Sviss jafnaði eftir að hafa lent undir og tvö mörk voru svo tekin af þeim vegna rangstöðu.
Borgarstjórn Brussel, höfuðborgar Belgíu, hefur af öryggisástæðum bannað belgíska knattspyrnusambandinu að halda landsleik gegn Ísrael á King Baudouin þjóðarleikvanginum.
Knattspyrnudeild Vestra hefur tilkynnt ummæli til KSÍ sem leikmaður liðsins varð fyrir af hálfu andstæðings síns í leik gegn Fylki í gær. Í yfirlýsingu Vestra segir að leikmaðurinn hafi orðið fyrir kynþáttaníði.
Þýskaland vann 2-0 gegn Ungverjalandi í annarri umferð riðlakeppni Evrópumótsins. Jamal Musiala og Ilkay Gundogan skoruðu mörkin.
Nordsjælland varð bikarmeistari Danmerkur eftir 2-1 sigur gegn Brøndby IF í úrslitaleik í dag. Leikurinn var sannkallaður Íslendingaslagur og landsliðskonan Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði fyrra mark Nordsjælland.
Það stefnir í að örlög Greggs Ryder, þjálfara KR í Bestu deild karla, ráðist á stjórnarfundi knattspyrnudeildar KR síðar í dag.
Franska landsliðið í knattspyrnu gæti þurft að reiða sig af án stórstjörnunnar Kylian Mbappé er liðið mætir Hollendingum á EM næstkomandi föstudag.
Danska úrvalsdeildarfélagið FC Kaupmannahöfn er við það að ganga frá kaupum á enska markverðinum Nathan Trott frá West Ham United og mun hann berjast um Íslendinginn Rúnar Alex Rúnarsson um markvarðarstöðuna í Kaupmannahöfn.
Króatía og Albanía gerðu dramatískt 2-2 jafntefli er liðin mættust í B-riðli Evrópumótsins í dag. Klaus Gjasula reyndist hetja Albana eftir að hafa skorað sjálfsmark.