Fótbolti

TF Besta á suðrænar slóðir: Ekki vildu allir fara um borð
Hver á fætur öðrum pakka meistaraflokkar íslenskra félagsliða í fótbolta niður í töskur og halda út fyrir landssteinana í æfingaferðir fyrir komandi tímabil. Ekki fara þó öll lið Bestu deildar kvenna erlendis í æfingaferðir fyrir komandi tímabil. Einu liði hentaði ekki að fara núna, öðru stóð það til boða en ákvað að fara ekki. Þau sem fara þó út halda til Spánar.

Aron stefnir á þjálfun | Mætir með klippur á æfingar og lætur menn heyra það
Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, sér fyrir sér að fara út í þjálfun eftir að knattspyrnuferlinum lýkur. Samherjar hans vilja aftur á móti meina að hann yrði erfiður þjálfari.

Hrósar Oliver fyrir að brotna ekki og dæma ekki víti á City
Kyle Walker, fyrirliði Manchester City, hrósaði Michael Oliver, dómara viðureignarinnar gegn Liverpool, fyrir að dæma ekki vítaspyrnu á Jérémy Doku þegar hann sparkaði í Alexis Mac Allister undir lok leiks.

Sextíu og tveir í bann fyrir að ljúga til um aldur
Knattspyrnusamband Kamerún, Fecafoot, hefur sett 62 leikmenn í bann fyrir að ljúga til um aldur.

Chelsea nálgast efri hluta töflunnar
Chelsea nálgast efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-2 sigur á Newcastle United á Brúnni í Lundúnum.

Sveindís Jane skoraði í öruggum sigri
Sveindís Jane Jónsdóttir var á skotskónum í öruggum fjögurra marka sigri Wolfsburg á RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lokatölur 4-0 og Wolfsburg áfram í harðri toppbaráttu við Þýskalandsmeistara Bayern München.

Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku
Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í hjarta varnar Midtjylland þegar liðið komst á topp dönsku úrvalsdeildarinnar i knattspyrnu.

Lingard-æði í Suður-Kóreu
Knattspyrnuferill Jesse Lingard var á hraðri niðurleið undir lok síðasta árs. Ekkert lið vildi semja við þennan 31 árs gamla sóknarþenkjandi leikmann og það virtist sem eini möguleikinn væri að setja skóna upp á hillu. Það er þangað til það barst tilboð frá Suður-Kóreu.

Alex Freyr heim í Fram áður en langt um líður
Alex Freyr Elísson mun ganga til liðs við uppeldisfélag sitt Fram á næstu dögum. Hann lék með liðinu allar götur til ársins 2023 þegar Breiðablik keypti hann. Þar náði hann aldrei að festa sig í sessi og er nú á leið aftur í Fram.

Martinelli missir af leiknum mikilvæga gegn Porto
Gabriel Martinelli, framherji Arsenal, verður hvergi sjáanlegur þegar liðið mætir Porto í leik sem það þarf að vinna með tveggja marka mun í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld, þriðjudag.

Reiknar ekki með endurkomu Gylfa Þórs
David Nielsen, nýráðinn þjálfari Íslendingaliðs Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni. Reiknar ekki með því að Gylfi Þór snúi aftur í leikmannahóp liðsins er hann hefur jafnað sig af meiðslum sem hafa verið að plaga hann.

Draumastarf Arnars er í Aþenu
Arnar Grétarsson ætlar sér að gera Valsmenn að Íslandsmeisturum í fótbolta í sumar. Hann dreymir hins vegar einnig um að taka einn daginn við gríska stórliðinu AEK Aþenu.

Ekki valinn í landsliðið því hann talar ekki spænsku
Ben Brereton Díaz, leikmaður Sheffield United, þarf að læra spænsku ef hann vill verða valinn í landslið Síle á nýjan leik.

Leikmaður Real skiptir um landslið
Brahim Díaz, miðjumaður Real Madrid, hefur ákveðið að hætta að spila fyrir spænska landsliðið og ætlar frekar að spila fyrir Marokkó.

Hefja undankeppnina á Kópavogsvelli
Fyrsti leikur íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í undankeppni EM 2025 fer fram á Kópavogsvelli. Ísland mætir þá Póllandi.

Valsmenn í viðræðum við Gylfa
Líkurnar virðast sífellt aukast á því að knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, spili á Íslandi í sumar, í fyrsta sinn á löngum meistaraflokksferli.

Birti myndband af markinu sínu í hálfleik
Leikmaður Burnley var svo ánægður með mark sem hann skoraði gegn West Ham United að hann deildi myndbandi af því í hálfleik í leiknum í gær.

Tíu dagar í EM-umspil: Stríðin og sending Þóris skiluðu Íslandi hingað
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er aðeins 180 mínútum frá sæti í lokakeppni EM í Þýskalandi í sumar. En hvernig endaði liðið í þessari stöðu, eftir að hafa aðeins unnið sárafáa leiki á síðustu árum?

Stjóri Lecce skallaði mótherja og var rekinn
Ítalska úrvalsdeildarliðið Lecce hefur rekið knattspyrnustjóra sinn sem skallaði andstæðing í leik gegn Verona í gær.

TF-Besta hefur sig til flugs: Allir út í sólina nema KR
Hver á fætur öðrum pakka meistaraflokkar íslenskra félagsliða í fótbolta niður í töskur og halda út fyrir landssteinana í æfingaferðir fyrir komandi tímabil. Öll lið Bestu deildar karla, nema KR sem fer ekki út í æfingarferð, halda út til Spánar þetta árið.

Klopp gagnrýndi Southgate fyrir að horfa framhjá sínum manni
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, nýtti tækifærið eftir leikinn gegn Manchester City í gær og gagnrýndi landsliðsþjálfara Englands.

Mættur í stærsta félag Íslands og vill hjálpa KR að vinna titla
„Að fá að spila fyrir stærsta félag Íslands. Flestir titlar, sagan segir sitt. Ég er mjög sáttur að vera kominn hingað,“ sagði Axel Óskar Andrésson, nýjasti leikmaður KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann var eftirsóttur en valdi á endanum KR og stefnir á að sýna landi og þjóð hvað hann getur í sumar.

Nýhættur að spila og orðinn hluti af þjálfarahringekju Watford
Hinn 35 ára gamli Tom Cleverley, sem hóf knattspyrnuferilinn með Manchester United, er orðinn bráðabirgðaþjálfari enska B-deildarliðsins Watford. Hann er 11. þjálfari liðsins á síðustu fjórum árum.

Besta sætið: Þorvaldur þarf að fara í sjálfsskoðun sem formaður KSÍ
Verður nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands jafnleiðinlegur í viðtölum sem formaður og hann var sem þjálfari? Besta sætið ræddi fjölmiðlafælni nýja formannsins.

„Móðir allra úrslita er í frammistöðunni“
Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var sammála fyrirliða sínum Virgil Van Dijk að lið þeirra hafi átt skilið sigurinn gegn Englandsmeisturum Manchester City í stórleik helgarinnar. Það breytir því þó ekki að leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Hlín skoraði tvö í stórsigri
Íslendingalið Kristianstad byrjar gríðarlega vel í sænska bikarnum en liðið vann sjö marka sigur á Lidköping, lokatölur 8-1. Hlín Eiríksdóttir og Katla Tryggvadóttir voru í byrjunarliði Kristianstad. Sú fyrrnefnda skoraði tvívegis.

Ekkert fær Leverkusen stöðvað
Bayer Leverkusen vann enn einn leikinn í þýsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu þegar liðið tók á móti Wolfsburg í kvöld. Lokatölur 2-0 og Leverkusen með tíu stiga forystu á toppi deildarinnar.

Real ekki í vandræðum með drengina hans Benitez
Real Madríd vann Celta Vigo 4-0 í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Rafa Benítez, fyrrverandi þjálfari Liverpool og Real Madríd meðal annars, stýrir nú Celta Vigo.

Veit allt um það hversu erfitt er að spila á Anfield
„Við byrjuðum vel en þeir eru með ótrúlegt lið. Við áttum okkar augnablik, þeir áttu sín. Það er erfitt að spila á móti þeim og við tökum stiginu,“ sagði Pep Guardiola eftir 1-1 jafntefli Manchester City gegn Liverpool fyrr í dag.

Juventus missteig sig á heimavelli
Juventus náði aðeins jafntefli gegn Atalanta á heimavelli í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Lokatölur 2-2.