Handbolti

Sandra ólétt á HM: „Hleyp fram og kalla: Andrea! Sjáðu!“
Sandra Erlingsdóttir var í stóru hlutverki á sínu fyrsta stórmóti þegar Ísland lék á HM í handbolta í desember. Það sem aðeins hún og nánustu liðsfélagar og fjölskylda vissu, var að hún var einnig orðin ólétt að sínu fyrsta barni.

Ómar Ingi markahæstur í bikarsigri
Ómar Ingi Magnússon átti stórleik í liði Madgeburg þegar liðið tryggði sig örugglega áfram í þýska bikarnum. Ómar skoraði átta mörk í 34-24 sigri liðsins á Rhein-Neckar Löwen.

Umfjöllun: Haukar - ÍBV 36-26 | Haukar kjöldrógu Eyjamenn að Ásvöllum
Haukar burstuðu ÍBV þegar liðin leiddu saman hesta sína í 14. umferð Olísdeildar karla í handbolta í Schenker-höllinni að Ásvöllum í dag.

Elvar markahæstur í sigri og Teitur skoraði fimm
Elvar Örn Jónsson var magnaður fyrir Melsungen í átta liða úrslitum í þýska bikarnum í handbolta í kvöld er liðið mætti TUS N-Lübbecke.

Stjarnan fór upp fyrir Aftureldingu í deildinni
Stjarnan fór með sigur af hólmi er liðið mætti Aftureldingu í Mosfellsbænum í Olís-deild kvenna í kvöld.

Botnlið KA/Þórs stóð í toppliðinu
Topplið Vals hélt norður yfir heiðar í dag og sótti botnlið KA/Þórs heim í Olís-deild kvenna í dag. Lokatölur urðu 23-26 en heimakonur minnkuðu muninn í tvígang í eitt mark undir lok leiksins.

Framarar héldu út gegn nýliðunum
Fram vann nauman eins marks sigur er liðið tók á móti nýliðum ÍR í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld, 24-23.

Mikilvægur sigur Stjörnumanna
Stjarnan vann mikilvægan sex marka sigur er liðið heimsótti Gróttu í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 21-27.

Elvar skoraði fimm jafntefli
Elvar Ásgeirsson og félagar hans í Ribe-Esbjerg gerðu 28-28 jafntefli er liðið heimsótti Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Spilar ekki með Kielce meðan rannsókn á nauðgun stendur yfir
Benoit Kounkoud spilar ekki með pólska handboltaliðinu Kielce meðan frönsk yfirvöld eru með mál hans til rannsóknar.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Fram 30-26 | Mosfellingar unnu fyrsta leik eftir hlé
Í kvöld hófst Olís-deild karla á nýjan leik eftir hlé vegna Evrópumótsins í handbolta. Afturelding sigraði Fram að Varmá, 30-26, í leik sem heimamenn voru með yfirhöndina allan tímann.

Einar Jónsson: Vorum með allt of marga tapaða bolta
Fram tapaði í kvöld með fjórum mörkum gegn Aftureldingu að Varmá, lokatölur 30-26, í fyrstu umferð Olís-deildarinnar eftir langt hlé. Einar Jónsson, þjálfari Framara var ósáttur með frammistöðu sinna manna í kvöld.

HK-ingar að slíta sig frá fallsvæðinu og Valsmenn völtuðu yfir Selfoss
HK vann mikilvægan eins marks sigur er liðið heimsótti KA í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 26-27. Á sama tíma vann Valur 17 marka risasigur gegn Selfyssingum, 38-21.

Toppliðið marði nýliðana
FH, topplið Olís-deildar karla í handbolta, vann nauman tveggja marka sigur er liðið heimsótti nýliða Víkings í Olís-deildinni í kvöld, 28-30.

Evrópumeistarinn laus úr haldi lögreglu
Benoit Kounkoud, einum af nýkrýndu Evrópumeisturum Frakka í handbolta, hefur verið sleppt úr haldi lögreglu en rannsókn á máli hans heldur áfram. Hann er sakaður um tilraun til nauðgunar á skemmtistað.

Halldór tekur við HK en óvíst í hvaða deild
Handknattleiksþjálfarinn reyndi Halldór Jóhann Sigfússon er á leið aftur í íslenska boltann frá Danmörku og verður næsti þjálfari karlaliðs HK. Frá þessu er greint á vef HK-inga.

Hættir á miðju tímabili og endaði á tólf marka leik á EM
Besti handboltamaður Svisslendinga í sögunni hefur spilað sinn síðasta leik á ferlinum. Andy Schmid tilkynnti í gær að hann sé hættur að spila handbolta.

Handtekinn fyrir nauðgun skömmu eftir að hafa orðið Evrópumeistari
Benoit Kounkoud, nýkrýndur Evrópumeistari með franska handboltalandsliðinu, var handtekinn fyrir nauðgun í fyrrinótt.

Elín Jóna og stöllur enn með fullt hús stiga
Elín Jóna Þorsteinsdóttir og stöllur hennar í EH Aalborg eru enn með fullt hús stiga í dönsku B-deildinni í handbolta eftir öruggan sjö marka sigur gegn HØJ í kvöld, 21-28.

Sá sem íslenski læknirinn hjálpaði boðið í kvöldverð sænska liðsins
Það eru góðar fréttir af stuðningsmanni sænska handboltalandsliðsins sem þurfti aðstoð lækna á leik Svía og Þjóðverja um þriðja sætið á EM í Þýskalandi.

Karabatic hefur unnið ellefu gull með franska landsliðinu
Frakkinn Nikola Karabatic er af flestum talinn vera besti handboltamaður allra tíma og hann er að minnsta kosti sá sigursælasti. Kappinn fagnaði enn einum titlinum í gær.

Gísli Þorgeir valinn sá fjórði besti í heimi
Handboltasérfræðingarnir Stig Aa. Nygård og Rasmus Boysen völdu fimmtíu bestu handboltamenn heims í gær eins og þeir gera árlega og Ísland á tvo leikmenn í þessum nýjasta hópi bestu handboltamanna heims.

Umfjöllun: Frakkland - Danmörk 33-31 | Má ég vera Mem?
Frakkar eru Evrópumeistarar í handbolta karla eftir sigur á Dönum, 33-31, í framlengdum úrslitaleik í Lanxess Arena í Köln í dag. Franska liðið er bæði ríkjandi Evrópu- og Ólympíumeistari.

Íslenskur læknir kom til bjargar þegar áhorfandi hneig niður í bronsleiknum
Arnar Sigurðsson, margfaldur Íslandsmeistari í tennis og liðslæknir sænska handboltalandsliðsins, kom ítölskum áhorfanda til bjargar sem hneig niður á leik Svíþjóðar og Þýskalands í dag.

Svíar tóku bronsið
Svíþjóð tryggði sér bronsið í leiknum um þriðja sætið gegn Alfreð Gíslasyni og læirsveinum hans á Evrópumeistaramótinu nú rétt í þessu.

Richardson ekki með Frökkum í úrslitaleiknum
Frakkar verða án lykilmanns gegn Danmörku í úrslitaleik Evrópumótsins í dag.

Díana Dögg markahæst í tapi
Zwickau tapaði með tveggja marka mun gegn Wildungen í þýsku úrvalsdeild kvenna í handbolta í kvöld. Díana Dögg Magnúsdóttir var markahæst í tapliðinu.

ÍR blandar sér í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni
ÍR vann þriggja marka sigur á Aftureldingu í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld. Sigurinn þýðir að liðið er í bullandi baráttu um sæti í úrslitakeppni deildarinnar.

Ísland mætir Eistlandi eða Úkraínu í umspili fyrir HM
Ísland mun spila tvo umspilsleiki við annað hvort Eistland eða Úkraínu um sæti á HM í handbolta 2025.

Aganefnd EHF sagði dómara ekki skylduga til að skoða atvik aftur
Aganefnd evrópska handboltasambandsins, EHF, hefur úrskurðað dómgæslu í leik Svíþjóðar og Frakklands löglega og sagði fullkomnlega farið eftir reglum.