
Körfubolti

Sólirnar hitalægri þar sem Booker missir af næstu leikjum
Devin Booker, stjörnuleikmaður Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta, er tognaður á læri og missir af næstu leikjum liðsins. Ekki er ljóst hvort hann missir af allri fyrstu umferð átta liða úrslita Austurdeildar.

Embiid mundar sópinn, samheldni Celtics sigraði einstaklingsgæði og DeRozan jafnaði metin gegn Bucks
Það fóru þrír frábærir leikir fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. DeMar DeRozan var trylltur er Chicago Bulls jöfnuðu metin gegn meisturum Milwaukee Bucks. Boston Celtic komið 2-0 yfir gegn Brooklyn Nets og Joel Embiid kom Philadelphia 76ers 3-0 yfir gegn Toronto Raptors með flautuþrist í framlengdum leik.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. 84–89 Valur | Valur tekur heimavallaréttinn af Þór
Valur stal heimavellinum af Íslandsmeisturum Þórs með fimm stiga sigri, 84-89, eftir framlengdan leik í Þorlákshöfn. Valur er nú 1-0 yfir í undanúrslita einvíginu. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Kyrie heldur áfram að sanka að sér sektum
Kyrie Irving, leikmanni Brooklyn Nets í NBA-deildinni, tókst enn á ný að koma sér í vandræði er Nets tapaði með eins stigs mun gegn Boston Celtics í úrslitakeppninni.

Miami í toppmálum | Ingram og Morant öflugir er Pelicans og Grizzlies jöfnuðu metin
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Miami Heat er komið 2-0 yfir gegn Atlanta Hawks, New Orleans Pelicans jöfnuðu metin gegn toppliði Phoenix Suns og Memphis Grizzlies jöfnuðu einnig metin gegn Minnesota Timberwolves.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar – Njarðvík 59-70 | Njarðvíkingar tóku forystu á útivelli
Njarðvíkingar eru komnir með forystu í úrslitaeinvígi Subway-deildar kvenna eftir góðan 11 stiga útisigur gegn Haukum í kvöld, 59-70.

Höttur einum sigri frá sæti í Subway-deildinni
Höttur frá Egilsstöðum er nú aðeins einum sigri frá sæti í Subway-deild karla í körfubolta eftir góðan níu stiga útisigur gegn Álftanesi í kvöld, 94-85.

Sara Rún stigahæst í tapi
Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæsti leikmaður Phoenix Constanta er liðið mátti þola 13 stiga tap gegn Satu Mare í úrslitakeppni rúmensku deildarinnar í körfubolta, 65-52. Þetta var fyrsti leikur liðanna í einvíginu um þriðja sæti rúmensku deildarinnar.

Nýliðarnir ætla að endurtaka leikinn frá 2012 og skemma fullkomna endurkomu þeirra bestu
Úrslitaeinvígi Subway-deildar kvenna í körfubolta hefst í Ólafssal í kvöld þegar Haukar taka á móti Njarðvík. Fyrir ári síðan virtist var ekkert í kortunum sem benti til þess að þessi tvö lið myndu berjast um Íslandsmeistaratitilinn vorið 2022.

Nei eða Já: „Þurfa hann eins og súrefni“
Nei eða Já var á sínum stað í Lögmál leiksins. Mögulega voru spurningarnar í auðveldari kantinum enda úrslitakeppnin farin af stað og búið að ræða mörg málefni. Þá var farið yfir hvernig umspilið sæti í úrslitakeppni Subway-deildar karla hefði verið.

Vill fá LeBron í þáttinn þar sem hann hefur ekkert betra að gera
Charles Barkley, fyrrverandi goðsögn í NBA-deildinni, er einn af stjórnendum þáttarins Inside the NBA. Barkley vill fá LeBron James, ofurstjörnu Los Angeles Lakers, í þáttinn þar sem hann hefur ekkert betra að gera fyrst Lakers eru ekki í úrslitakeppninni.

Varamaðurinn Curry magnaður og Dallas jafnaði metin án Luka
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Stephen Curry og félagar í Golden State Warriors eru farnir að munda sópinn eftir öruggan sigur á Denver Nuggets. Sama má segja um Philadelphia 76ers og þá tókst Dallas Mavericks að jafna metin gegn Utah Jazz.

Lögmál leiksins: „Þeir eru búnir að vera að tikka á öllum sílendrum frá áramótum“
Lögmál leiksins er á sínum stað á Stöð 2 Sport 2 klukkan 21:05 í kvöld og í þætti kvöldsins verður meðal annars rætt um gott gengi Minnesota Timberwolves seinustu mánuði.

Giannis dró vagninn er Milwaukee hóf titilvörnina á sigri
Giannis Antetokounmpo skilaði tvöfaldri tvennu í naumum sjö stiga sigri Milwaukee Bucks á Chicago Bulls í fyrsta leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Lokatölur 93-86.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Keflavík 99-85 | Keflvíkingar niðurlægðir á Króknum
Tindastóll verður með í undanúrslitum Subway deildarinnar í körfubolta en Keflavík er farið í sumarfrí eftir að hafa beðið afhroð á Sauðárkróki í kvöld.

Hjalti: Töpuðum allt of mörgum boltum í allan vetur
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur var vonsvikinn eftir tap sinna manna gegn Tindastól í 8-liða úrslitum Subway deildarinnar.

Martin næststigahæstur í sigri
Martin Hermannsson átti góðan leik fyrir Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

ÍR lagði Ármann og spilar í efstu deild á næstu leiktíð
ÍR verður meðal þátttakenda í Subway deildinni í körfubolta á næstu leiktíð eftir að hafa lagt Ármannskonur að velli í oddaleik í Kennaraháskólanum í dag.

Oddaleikur Ármanns og ÍR sýndur í beinni útsendingu
Oddaleikur Ármanns og ÍR um laust sæti í Subway-deild kvenna sem fram fer í dag verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Jordan Poole leiddi Stríðsmennina til sigurs í endurkomu Curry
Úslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta hófst í nótt í allri sinni dýrð með fjórum leikjum. Jordan Poole var allt í öllu þegar Golden State Warriors vann góðan 16 stiga sigur gegn Denver Nuggets, 123-107, í fyrsta leik Steph Curry með liðinu í rúman mánuð.

Tryggvi öflugur í fræknum sigri á Barcelona
Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Zaragoza gerðu sér lítið fyrir og skelltu stjörnum prýddu liði Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Jón Axel skoraði þrjú stig í naumum sigri
Jón Axel Guðmundsson spilaði ekki mikið þegar lið hans vann nauman sigur í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Sigur í fyrsta leik Elvars með Tortona
Elvar Már Friðriksson lék sinn fyrsta leik með Tortona í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar liðið tók á móti Varese í dag. Elvar og félagar höfðu yfirhöndina stærstan hluta leiksins og unnu að lokum góðan fimm stiga sigur, 104-99.

Hawks og Pelicans seinustu liðin inn í úrslitakeppnina
Atlanta Hawks og New Orleans Pelicans urðu í nótt seinustu tvö liðin til að tryggja sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík – Þór Þorl. 86-90 | Grindvíkingar í sumarfrí
Þór Þorlákshöfn vann Grindavík í hörkuleik 86-90. Þetta var þriðji sigur Þórs í einvíginu gegn Grindavík sem tryggði Íslandsmeisturunum farseðilinn í undanúrslitin.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 91-76 | Keflvíkingar tryggðu sér oddaleik
Keflvíkingar tryggðu sér oddaleik á Sauðárkróki þegar liðið vann 15 stiga sigur gegn Tindastól í kvöld, 91-76.

ÍR tryggði sér oddaleik um sæti í Subway-deild kvenna
ÍR-ingar tryggðu sér oddaleik um sæti í Subway-deild kvenna í körfubolta er liðið vann öruggan 26 stiga sigur gegn Ármanni í kvöld, 87-61.

Hawks og Pelicans eiga enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni
Atlanta Hawks og New Orleans Pelicans eiga enn möguleika á sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar eftir að liðin sigruðu sína leiki í nótt. Atlanta vann 29 stiga sigur á Charlotte Hornets, 132-103, og New Orleans-liðið vann tíu stiga sigur á San Antonio Spurs, 113-103.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík-Fjölnir 64-58| Deildarmeistararnir í sumarfrí og Njarðvík mætir Haukum í úrslitum
Tímabilinu er lokið fyrir deildarmeistara Fjölnis eftir tap í undanúrslitaeinvíginu gegn Njarðvík 3-1 sem er nýliði í deildinni. Njarðvík vann fjórða leikinn 64-58 og mætir Haukum í úrslitum Subway-deildar kvenna.

Tryggvi Snær fékk 12 mínútur í sigri Zaragoza
Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður Zaragoza, spilaði í tæpar 12 mínútur í sjö stiga sigri Zaragoza á Obradorio í spænsku ACB deildinni í körfubolta, 80-73.