Lífið

„Fólk hefur þurft að öskra ansi hátt ansi lengi“
„Ég held að leikhús geti breytt fólki,“ segir leikkonan Ebba Katrín Finnsdóttir. Hún fer með aðalhlutverk í einleiknum Orð gegn orði og hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir. Blaðamaður hitti Ebbu Katrínu og fékk að heyra frá hennar vegferð.

Fréttakviss vikunnar: Fokkjú, fólksfjöldi og forval forsetakosninga
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á fréttakvissinu til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Leikarinn Ryan O'Neal látinn
Bandaríski leikarinn Ryan O'Neal er látinn 82 ára að aldri.

Forsjárdeila ríkasta manns heims og poppstjörnu
Auðjöfurinn Elon Musk og barnsmóðir hans, tónlistarkonan Grimes, eiga nú í forræðisdeilu um þrjú börn þeirra, sem heita: X AE A-XII, Exa Dark Sideræl, og Tau Techno Mechanicus.

Hávær smellur þegar Rúrik brotnaði
Rúrik Gíslason, fyrrverandi fótboltamaður og Ice Guys-meðlimur, braut á sér höndina í dag við tökur á sirkusatriði í þýskum sjónvarpsþætti.

Írar kveðja MacGowan
Íbúar Dyflinnar, höfuðborgar Írlands, kvöddu söngvarann Shane MacGowan á götum úti í dag. MacGowan verður jarðsettur í heimabæ fjölskyldu móður sinnar seinna í dag.

„Ef ég þekki mína menn rétt þá verður jólaglögg“
Litlu jól Blökastsins fara fram í annað skiptið í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi á sunnudagskvöld. Auðunn Blöndal hlakkar til að gleðja áskrifendur sína með veglegum gjöfum.

Jólalest Coca-Cola leggur af stað á morgun
Jólalest Coca-Cola er fastur liður í aðventunni og á sér kæran sess í hugum margra. Í ár keyrir jólalestin sinn árlega hring um höfuðborgarsvæðið í 28. skipti á morgun, laugardaginn 9. desember.

Myndaveisla: Gerður í Blush og Sigurður Ingi skáluðu fyrir Teprunum
Sérstök hátíðarsýning á Teprunum fór fram í Borgarleikhúsinu liðna helgi. Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga létu sig ekki vanta og skáluðu í fallegan fordrykk fyrir sýninguna. Meðal gesta voru Gerður Huld Arinbjarnardóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Kolbrún Anna Vignisdóttir og Birna Rún Eiríksdóttir, svo fáir einir séu nefndir.

Evrópuferðalagið í leka húsbílnum endar við Reykjavíkurtjörn
Strákarnir í rokkhljómsveitinni Vintage Caravan leggja í kvöld lokahnykkinn á Evrópuferðalag sitt, á tónleikum í Iðnó. Óskar Logi Ágústsson segir að líklega muni hann leggjast í dá að kvöldinu loknu en segist spenntur fyrir því að fara loksins á svið fyrir íslenska áhorfendur.

Ragnar ræddi boltann við bresku stjörnurnar
Árlegt jólaboð London bókasafnsins fór fram í gærkvöldi. Helena Bonham Carter, leikkona og forseti bókasafnsins, hélt teitið og þar var Ragnar Jónasson, rithöfundur, meðal gesta og hitti hann ýmsar breskar stórstjörnur.

Mikil spenna fyrir úrslitaþætti Kviss
„Ég býst við ótrúlega skemmtilegri og jafnri keppni,“ segir Björn Bragi Arnarsson, þáttastjórnandi sjónvarpsþáttarins Kviss sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 annað kvöld.

Selena Gomez sögð í sambandi með vini Justin Bieber
Söng- og leikkonan Selena Gomez er sögð hafa staðfest samband sitt við tónlistarmanninn Benny Blanco á samfélagsmiðlum í vikunni. Blanco er góður vinur fyrrverandi kærasta Gomez, Justin Bieber, og hafa þeir nokkrum sinnum gert tónlist saman.

Ari Bragi og Dóróthea eiga von á dreng
Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og unnusta hans Dóróthea Jóhannesdóttir eiga von á sínu öðru barni í apríl næstkomandi. Parið tilkynnti á Instgram í gær að von sé á dreng.

Eva Björg og Gunnar nýtt og sjóðheitt par
Eva Björg Sigurðardóttir og Gunnar Sigurðsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Kviku Securities Ltd. í London eru eitt nýjasta par landsins.

Myndaveisla: Grindvíkingar áttu hjartnæma stund saman
Börn frá Grindavík brostu úr að eyrum á aðventugleði sem fram fór í dag þegar íbúar komu margir saman í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur.

Frá sérstökum saksóknara í dáleiðslu
„Í rauninni var alltaf hjartað þar að vera vinna með og fyrir fólk. Titlarnir eru eitt en í grunninn er ég er bara fyrst og fremst mannvinur. Ég elska að pæla í fólki og vera innan um fólk. Af hverju hagar fólk sér eins og það hagar sér, af hverju líður okkur vel, af hverju líður okkur illa? Af hverju erum við kvíðin? Hvenær erum við í essinu okkar og hvernig getum við hámarkað hamingjuna?“

Stórlax í stoðtækjum selur glæsivillu með sundlaug og bíósal
Össur Kristinsson, stofnandi stoðtækjafyrirtækisins Össur hf., hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við sjávarsíðuna á Kársnesi í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 260 milljónir.

Karl kóngur taldi sig kannast við Portman úr gömlu Star Wars
Karl Bretakonungur spurði leikkonuna Natalie Portman hvort hún hafi verið í gömlu Star Wars-myndunum þegar The Phantom Menace var frumsýnd. Portman var átján ára þarna og er fjórum árum yngri en fyrsta Star Wars-myndin sem kom út árið 1977.

Passar upp á að vera meðvitaður um forréttindi sín
Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr, þekktur sem Emmsjé Gauti, segir spilakvöld áralanga hefð innan fjölskyldunnar á aðventunni þar sem keppnisskapið gerir vart við sig. Til að viðhalda spennunni og bæta í gleðina fyrir jólin ákvað hann og Arnar „no face“, vinur hans og meðstjórnandi hlaðvarpsins Podkastalinn, að gefa út nýtt spil.

Flutti úr landi eftir rifrildið við Kim og Kanye
Bandaríska söngkonan Taylor Swift segist hafa neyðst til að flytja af landi brott og upplifað sem svo að ferillinn sinn væri á enda eftir opinberar deilur sínar við þau Kim Kardashian og Kanye West árið 2016.

Afhendir fyrsta jólakortið á leiðinni í dag
Göngugarpurinn Einar Skúlason hefur lokið um þriðjungi göngu sinnar fjórum dögum eftir að gangan hófst á mánudag, eða alls um 74 kílómetra. Hann ætlar sér að ganga 280 kílómetra frá Seyðisfirði til Akureyrar, svokallaða póstleið, á tveimur vikum.

„Leiklistarkrakkar með sérstaka töfra í sér“
Hún er óstöðvandi gleðisprengja, skarpgreind en fljótfær. Fíasól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur er komin á svið en bækurnar eru orðnar sex talsins.

Myndaveisla: Hátíðleg athöfn við afhendingu Kærleikskúlunnar
Tuttugasta og fyrsta Kærleikskúlan sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur út var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur í gær. Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og athafnamaður, hlaut kúluna fyrir árangur sinn með verkefninu, Römpum upp Ísland, sem hefur að markmiði að bæta aðgengi fatlaðs fólks í samfélaginu.

P. Diddy kærður fyrir þátttöku í hópnauðgun
Bandaríski rapparinn og frumkvöðullinn Sean Combs, betur þekktur sem P. Diddy, hefur verið kærður fyrir þátttöku í hópnauðgun. Nauðgunin átti sér stað árið 2003 og var fórnarlambið sautján ára gömul stelpa.

Vill byggja þorp og varnarveggi í Heiðmörk
Baltasar Kormákur og félagar í RVK Studios vilja byggja þorp og varnarveggi í Heiðmörk og taka þar upp stórar senur fyrir miðaldaþættina King and Conquerer, meðal annars sjálfa orrustuna við Hastings. Baltasar segist hafa valið nokkra tökustaði á landinu og segist þurfa á öllum skeggöpum landsins að halda til að mynda orrustuna.

Getnaður hjá vinum hleypur á tugþúsundum
Tíð veisluhöld til að fagna komu barns í heiminn stinga í stúf við gamla hjátrú um barnsburð. Veisluhöldum, til að fagnafæðingu barns, hefur farið fjölgandi.

Ár mikilla tímamóta hjá Berglindi og Daníel
Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og Daníel Matthíasson verkefnastjóri giftu sig á föstudaginn á Akureyri. Þau greina frá tíðindunum á samfélagsmiðlum.

Birnir og Vaka gáfu dótturinni nafn
Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og kærasta hans Vaka Njálsdóttir skírðu frumburðinn við hátíðlega athöfn í heimahúsi á dögunum. Stúlkunni var gefið nafnið Gróa.

Gítarleikari Wings er látinn
Enski tónlistarmaðurinn Denny Laine, sem var aðalsöngvari sveitarinnar Moody Blues og gítarleikari sveitarinnar Wings, er látinn. Hann varð 79 ára gamall.