Lífið

Glæsilegt raðhús Maríu Paz til sölu
María Gomez lífstílsbloggari og eiginmaður hennar Ragnar Már Reynisson hafa sett raðhús sitt við Ásbúð í Garðabæ á sölu. Húsið var byggt árið 1979. Eignin hefur verið endurnýjuð að innan á vandaðan og smekklegan máta. Ásett verð er 163,7 milljónir.

Nýjasti rafvirki landsins fimmtug með ofurkrafta
Andrea Margrét Þorvaldsdóttir var á meðal þeirra sem útskrifuðust úr rafvirkjanámi við VMA síðastliðinn laugardag við hátíðlega athöfn. Hún skar sig úr nemendahópnum að því leyti að hún var orðin 47 ára gömul þegar hún hóf námið. Hún segir ADHD gefa henni ofurkrafta til að komast yfir allt sem hún þarf að gera.

Balti var í hesthúsinu þegar Jason Statham hringdi
„Góðu tíðindin eru að Statham myndin rokseldist í Cannes og er bara klár í slaginn,“ segir kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur um spennumynd sem hann og harðhausinn Jason Statham ætla að gera saman.

Bíða eftir pizzu og potti eftir milljón króna göngu
Sex drengir eru í þann mund að klára 111 kílómetra göngu. Um er að ræða lokaverkefni þeirra í tíunda bekk Réttarholtsskóla, en tilgangurinn með göngunni er að styrkja börn á Gaza. Þeir hafa safnað um milljón króna til styrktar málefninu.

Forsetaáskorunin: „Fóru Bandaríkjamenn í raun til tunglsins?“
Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Fór á sveitaball og keypti kálfa á klósettinu
Það var ævintýraþráin og hvatvísin varð til þess þau Ása Sif og Ævar Austfjörð ákváðu nokkuð óvænt að gerast bændur, þá bæði komin yfir fertugt.

„Gerið hjartastuðtækið klárt“ – úrslit í Leikið um landið
Síðasti keppnisdagur Leikið um landið fór af stað með trukki. Bylgjan, FM957 og X977 háðu harða baráttu og nú liggja úrslitin fyrir.

Gleði og tilhlökkun fyrir fyrstu Filmu hátíðinni
Kvikmyndahátíðin Filma verður haldin 29. og 30. maí í Bíó Paradís, þar sem nemendur Kvikmyndalistadeildar Listaháskóla Íslands sýna verk sín almennum áhorfendum í fyrsta skiptið.

Bjöggi Takefusa og Sólveig nefna dótturina
Björgólfur Takefusa, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, og Sólveig Heimisdóttir viðskiptafræðingur nefndu dóttur sína við fallega athöfn um helgina. Stúlkunni var gefið nafnið Indíana Rós.

Kolsýrður íslenskur próteindrykkur slær í gegn
Nýlega kom á markað kolsýrður próteindrykkur frá íslenska vörumerkinu mist og ber nafnið mist Uppbygging. Drykkurinn hefur slegið rækilega í gegn og ljóst að eftirspurn eftir próteindrykkjum er mikil hérlendis.

Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur
Tónlistarkonan María Agnesardóttir, jafnan þekkt sem MAIAA, hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi. Hún fagnaði nýrri EP plötu með pompi og prakt í skvísupartýi á Prikinu síðastliðinn föstudag þar sem þemað var stelpukraftur eða „girlpower“.

Elísa Viðars og Rasmus nefndu soninn
Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen nefndu son sinn við fallega athöfn um helgina. Drengurinn heitir Theodór Sindri Christiansen.

Stjörnulífið: „Tvær klámkerlingar á kynfræðiráðstefnu“
Liðin vika var umvafin sólríkum ferðalögum og öðrum herlegheitum hjá stjörnum landsins. Áhrifavaldarnir Sunneva Einars og Birta Líf nutu veðurblíðunnar í New York á meðan tónlistarkonan Laufey Lín hélt sína stærstu tónleika til þessa í Indónesíu fyrir framan 7500 áhorfendur. Þvílík stjarna!

Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi
Danski gluggaframleiðandinn Skanva fagnar 6 ára afmæli á íslenskum markaði. 45% afsláttur er af gluggum og hurðum út maí og boðið upp á köku og kaffi í sýningarsal, Fiskislóð 73.

Kate Beckinsale lætur tröllin heyra það
Kate Beckinsale hefur látið netverja heyra það eftir að margir rituðu ummæli undir nýjustu færslur hennar á samfélagsmiðlinum Instagram og lýstu yfir áhyggjum af því að hún væri orðin of mjó. Beckinsale segir síðastliðið ár hafa verið eitt það erfiðasta í hennar lífi vegna áfalla í persónulega lífinu og vegna veikinda.

Edda Falak á von á dreng
Edda Falak baráttukona og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, eiga von á dreng. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman.

Af vængjum fram: „Aldrei“ notað fíkniefni og er alls ekki með nein húðflúr
Jón Gnarr forsetaframbjóðandi segist elska sterkan mat. Hann hefur líklega manna mest að gera þessa dagana þar sem hann sinnir hundrað prósent vinnu og býður sig fram til forseta. Hann segir að sig hafi lengi dreymt um að eiga tvífara.

„Það er aldeilis ekki sjálfsagt að hafa heilsu“
Ósk Gunnarsdóttir, útvarpskona og viðburðarstýra, segist hafa sett heilsuna í fyrsta sæti eftir að hafa misst hana í kjölfar barnsburðar fyrir fjórum árum síðan. Hún segist spennt fyrir sumrinu sem er þéttskipað af fjallahlaupum og tónlistarviðburðum.

Springsteen aflýsir nokkrum tónleikum af heilsufarsástæðum
Bandaríski tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen hefur neyðst til þess að aflýsa tónleikaferðalagi um Evrópu eftir að læknar vöruðu hann við því að það gæti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu hans.

78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og 1933 í Skógum
78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og annar frá 1933 vekja nú mikla athygli gesta á Samgöngusafninu í Skógum undir Eyjafjöllum en rafeindavirki tók að sér að gera þá upp og færa safninu.

Kosningalag: Örþrifaráð eða snilldarútspil?
Frambjóðendur reyna hvað þeir geta til að vekja athygli á sér í aðdraganda kosninga, þegar baráttan fer að harðna. Ein leiðin er að gefa út lag. Tvö slík komu út í síðastliðinni viku en fleiri hafa komið út í gegnum tíðina, með mis góðum árangri. Sum eru ódauðleg en önnur hefðu kannski betur átt að haldast ósamin.

Forsetaáskorunin: Hefur aldrei lent í slagsmálum
Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Brauðtertuveisla í brauðtertusamkeppni á Selfossi
Átta manns skiluðu inn nokkrum brauðtertum og ostakökum í morgun í brauðtertu og ostakökusamkeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffi á Selfossi. Brauðtertan, sem vinnur fer í sölu í Konungskaffi í nýja miðbænum í sumar og ostkakan á Kaffi Krús við Austurveg.

Anora hlaut Gullpálmann í ár
Kvikmyndin Anora undir leikstjórn Sean Baker hlaut Gullpálmann á kvikmyndahatíðinni í Cannes í gær. Myndin er gríndrama sem fjallar um unga fatafellu í New York sem á í ástarsambandi við son rússnesks auðjöfurs.

Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku
Tilætluðum tónleikum rappstjörnunnar Nicki Minaj í Manchester í gær var aflýst vegna óvæntrar handtöku stjörnunnar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Hún var handtekin vegna gruns um að vera með fíkniefni undir höndum og var á endanum sektuð og sleppt lausri.

Skönnuðu Aldísi frá toppi til táar og gleymdu ekki tönnunum
Aldís Amah Hamilton leikkona fer með stórt hlutverk í tölvuleiknum Senua's Saga: Hellblade 2 sem er nýkominn út. Hún lýsir magnaðri lífsreynslu og ótrúlegri för í einn stærsta líkamsskanna í heimi þar sem hún var skönnuð frá toppi til táar og ekkert skilið eftir, ekki einu sinni tennurnar hennar. Leikurinn gerist í fantasíuveröld á Íslandi á tíundu öld og er sagður vera ástaróður til landsins.

Fer fótgangandi tæpa 800 kílómetra
Bárður Jökull Bjarkarson hélt út í byrjun mánaðarins í þeim tilgangi að ganga Jakobsveginn fræga. Hann fer fótgangandi tæpa tæplega 800 kílómetra frá Pamplona alla leið til Fisterra á vesturströnd Spánar.

Krakkatían: Ljón, líffæri og landafræði
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!

Af vængjum fram: Ekki viss um að hann myndi þekkja lyktina af hassi
Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi segist ekki vera viss um að hann þekki hasslykt enn þann dag í dag. Hann segist aldrei taka verkjatöflur en er hrifinn af D-vítamíni. Þá er Arnar mikill sjósundskappi og hræðist ekki að taka umræðuna.

Millie Bobby Brown og sonur Bon Jovi orðin hjón
Breska leikkonan Millie Bobby Brown og bandaríska fyrirsætan Jake Bongiovi giftu sig við leynilega athöfn síðustu helgi. Parið hefur verið saman í tvö ár og trúlofuðu sig fyrir rúmu ári.