Skoðun

Jöfn tækifæri til menntunar
Menntun er einn af hornsteinum samfélagsins og okkar hlutverk er meðal annars að jafna stöðu einstaklinga til náms óháð búsetu. Þannig styrkjum við enn frekar tækifæri, velferð og lífsgæði fólks í heimabyggð og tækifæri til áframhaldandi búsetu.

Niðurskurður fjölbreytileikans í íslenskri kvikmyndagerð
Ísland var hástökkvari í Evrópu þegar að kom að aukningu á kvenleikstjórum sem leikstýrðu kvikmyndum frá árunum 2018 til 2022 (sjá mynd 1). Hlutfall kvenleikstjóra fór úr rúmum 13% í rúm 35% leikstjóra á Íslandi samkvæmt rannsókn the European Audiovisual Observator.

Þar sem hanar og hænur gala
Það sló marga hversu mikil slagsíðan var í Silfrinu í gærkvöldi. Þar voru þrír sjóaðir fjölmiðla- og stjórnmálamenn mættir: einn kominn vel yfir hæðina, ungur ráðherra Sjálfstæðisflokks og borgarstjóri Framsóknar, sem ávallt fær sérmeðferð á sínum gamla vinnustað.

Stafræn þjónustubylting Reykjavíkurborgar vekur heimsathygli
Við í Reykjavíkurborg höfum staðið fyrir stafrænni byltingu síðustu ár til að bæta þjónustu og minnka sóun, vesen og mengun.

Hlutleysi í NATO – Íslenskar varnir
Er hægt að tilheyra NATO en samtímis lýsa sig hlutlausa þjóð? Stutta svarið er nei!

Þú ert númer 1155 í röðinni
Ímyndið ykkur hvernig það er að þurfa að sinna verkefnum dagslegs lífs án þess að heyra almennilega. Hvernig það er að sinna börnum sínum, mökum og foreldum þannig. Setið ykkur í spor þeirra sem daglega ganga til vinnu við þessar aðstæður. Hvernig haldið þið að það gangi að sinna tómstundum? Setjið ykkur í þessi spor.

Á bak við tjöldin
Stjórnmálin eiga að byggjast á grundvallarviðmiðum. Stjórnmálaflokkar bjóða fram lista og skuldbinda sig til að framfylgja sínum viðmiðum. Á Íslandi hefur það gerst að flokkarnir hafa hrokkið af sinni hugmyndafræðilegu rót.

Sveitarfélögin okkar eiga alls ekki að skipta við Rapyd
Samkvæmt skoðanakönnun frá því fyrr á þessu ári vilja næstum 60% íbúa á Íslandi ekki skipta við fyrirtæki og stofnanir sem nota þjónustu greiðslumiðlunarfyrirtækisins Rapyd.

Lagarammi um lögbrot
Rómverjar voru lengi vel með óskrifuð lög. Þegar veldi þeirra stækkaði og varð flóknara varð að koma á betri röð og reglu í samfélaginu. Fyrstu rómversku lögin “lex duodecim tabularum” voru kunngjörð árið 449 fyrir Krist og skráð á tólf bronstöflur. Menn þurftu ekki lengur að munnhöggvast, heldur voru nú komin lög sem urðu strax öflugt stjórntæki.

Burt með mismunun!
Börnum af erlendum uppruna og reyndar fullorðnum líka er mismunað á Íslandi eftir uppruna og búsetu. Þetta kemur m.a. fram í nýrri skýrslu OECD um stöðu innflytjenda í íslensku samfélagi og samanburð við stöðuna í Evrópu dregur vel fram mikilvægi þessa málaflokks.

Aukið aðgengi að faglegri þjónustu – Styðjum Afstöðu!
Mikilvægt er að tryggja að fangar í íslenskum fangelsum fái stuðning og aðstoð til endurhæfingar og tryggja þannig jákvæða aðlögun að samfélaginu að nýju. Afstaða hóf nýverið fjársöfnun á Karolina Fund með það að markmiði að auka aðgengi í fangelsum landsins að faglegri þjónustu á breiðum grunni ásamt auknum félagslegum stuðningi og ráðgjöf á jafningjagrundvelli.

Óskrifuðu Pálínuboðorðin
Pálínuboð eru stórkostleg. Allir koma með eitthvað í púkkið, það er ótrúleg fjölbreytni og enginn er fastur í eldhúsinu tímunum saman.

Sjálfskipaðir sérfræðingar samgöngumála
Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með umræðunni um framkvæmdina á nýrri Ölfusárbrú. Hver sjálfskipaði sérfræðingurinn á fætur öðrum stígur fram og segir sína skoðun á hvers konar tegund brúar eigi að vera byggð yfir Ölfusá, áætlanir um ársdagsumferðir hafðar að engu og framkvæmdin og nauðsyn hennar dregin í heild sinni í efa.

Byggjum raðhús í Hvalfjarðargöngum
Byggjum blokkir ofan í Sundahöfn. Setjum hraðahindrun í innsiglingu Reykjavíkurhafnar. Reisum stökkbretti í Kömbunum. Hljóma þessar tillögur skynsamlega? Nei auðvitað ekki. Það eru fleiri slæmar hugmyndir eins og t.d. þessar; Þrengjum að Reykjavíkurflugvelli með byggð í Nýja Skerjafirði og nýrri byggingu Háskólans í Reykjavík 90 metra frá brautarstefnu 13 og sleppum því að grisja tré í Öskjuhlíð.

Leiðréttum launin
Í umræðu um menntamál er gjarnan komið inn á þá staðreynd að starfandi menntuðum kennurum fækkar og leiðbeinendum fjölgar. Að fjölga kennaranemum hefur verið sérstakt átaksverkefni sem er vel, og er áframhaldandi átak í fjölgun kennara sér þáttur í yfirstandandi aðgerðum í menntaumbótum.

Er ekki bara best?
Kapítalisminn hefur þróast í átt að kerfi sem veldur gífurlegum ójöfnuði, ósjálfbærum vexti og félagslegu óréttlæti. Græðgin sem fylgir nútíma kapítalisma, þar sem áherslan er á hámarksgróða fyrir stórfyrirtæki og fjárfesta, hefur leitt til aukins bils milli hinna ríku og fátæku.

Fjölgun lóða, hér er leiðin!
Þann 23. febrúar 2022 flutti ég eftirfarandi tillögu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrir sitt leyti að svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins verði tekið til endurskoðunar með það að markmiði að fjölga byggingarsvæðum.“

Það er enn tími…
Í dag ætti með réttu að fagna 70 ára afmæli Borgarskjalasafns Reykjavíkur, sem var stofnað 7. október 1954. Venjulega hefði verið haldið upp á það með sýningu, málþingi eða á annan hátt. Fregnir hafa ekki borist af því að það verði gert. Enda kannski ekki furða, þar sem meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur samþykkti þann 7. mars 2023 að leggja niður safnið með ellefu atkvæðum gegn tíu atkvæðum minnihlutans.

Fjárfesting í þágu barna
Fjárfesting í leikskólakennurum er fjárfesting í þágu barna. Það er ekki nóg að byggja leikskóla víða um land til að brúa bilið frá fæðingarorlofi að leikskóladvöl ef ekki fæst fagmenntað fólk til starfa. Baráttan fyrir bættum kjörum er alltaf til að efla skólastarfið með þarfir barna í fyrirrúmi og til að tryggja ánægt fagfólk.

Flugvöllur í Hvassahrauni eða Árborg?
Staðsetning nýs flugvallar hefur lengi verið í umræðunni. Þar hafa nokkur svæði verið nefnd sem álitlegir kostir til að þjóna innanlandsflugi, alþjóðaflugi, vöruflutningum og sem varaflugvöllur fyrir Keflavík.

JL Gettó
Nú berast fregnir af því að 400 umsækjendur um alþjóðlega vernd skuli hafa búsetu í JL húsinu í Vesturbæ. Það þykir mér varhugaverð ráðstöfun.

Mun Alþingi fremja landráð?
Ég hef í dag sent Forseta Íslands bréf þar sem athygli hennar er vakin á umsögn um Fjárlagafrumvarp 2025 sem Alþjóðastofnunin Friður 2000 hefur sent Alþingi vegna ráðgerðs stuðnings við vopnakaup og hernað uppá nær 7 milljarða króna. Umsögnin er birt í heild á síðunni www.austurvollur.is

Hvað vitum við?
Á nýafstöðnu málþingi um verðmæti menningar og skapandi greina var kynnt skýrsla sem Ágúst Ólafur Ágústsson tók saman fyrir menningar og viðskiptaráðuneytið. Skýrslan nefnist Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi – Greining og tillögur.

Hvetjum samstarfsfólkið til að fara í skimun
Nú er Bleikur október genginn í garð en tilgangur hans er að vekja almenning til vitundar um brjóstakrabbamein.

„Hvert stefnirðu?“
Ég var spurð fyrr í vetur hvert ég stefndi. Mér fannst spurningin skondin því ég hafði nýlokið við að ræða við viðkomandi einstakling um meistaranámið mitt í kennslufræðum. Svarið var því einfalt: „Ég stefni á að verða enn betri kennari.”

Þetta er allt að koma...
„Þetta er allt að koma“ eru einkunnarorð ríkisstjórnarinnar varðandi viðvarandi verðbólgu og þá óboðlegu vaxtakúgun sem almenningur hefur þurft að þola undanfarin ár. Ísland er með hæstu stýrivexti í hinum vestræna heimi. Aðeins fjögur lönd í Evrópu eru með hærri stýrivexti en Ísland: Rússland, Úkraína, Hvíta-Rússland og Tyrkland.

Mörkin lögmannsstofa: Áskorun til núverandi stjórnarmanna
Eins og ykkur er kunnugt um, var fyrrum eigandi og stjórnarmaður lögmannstofu ykkar, Ragnar H.Hall, árum saman lögmaður fjölskyldufélags okkar, Björn Hallgrímssonar ehf (nú Lyfjablóm ehf), hér eftir BH.

JL húsið og að éta það sem úti frýs…
Góður vinur minn var nýlega búinn að flytja til Grindavíkur þegar jarðhræðingar hófust og eldgosið hófst. Hann ásamt fjölskyldu sinni og íbúum Grindavíkur, þurftu að flýja heimilin sín í snatri. Vikur liðu, mánuðir og í ljós kom að Grindvíkingar voru ekki að fara heim aftur.

Palestína, háskólar og (af)nýlenduvædd rými
Ísraelsríki heldur áfram að stunda nýlenduhyggju (e. Colonialism) í Palestínu, meðal annars með þjóðarmorði á Gaza og nú með sprengjuregni og innrás í Líbanon. Háskólar á Vesturlöndum hafa fordæmt innrás Rússlands í Úkraínu.

Nágrannar óskast!
Hversu vel þekkir þú nágranna þína? Bankar þú á næstu dyr og færð lánað lyftiduft þegar þú fattar í miðri köku að það er búið? Myndir þú biðja fólkið á efri hæðinni að vökva blómin þín meðan þú færir til Tene?