
Skoðun

Réttindabarátta strandveiðimanna
Strandveiðitímabilið hófst í byrjun maí sl. í sextánda sinn. Mikil veiði hefur verið enda mikið af fiski á öllum miðum handfærabáta og útlit fyrir stöðvun veiða mánaðamótin júní-júlí auki matvælaráðherra ekki aflamagn til strandveiða og tryggi 48 veiðidaga í sumar. Í fyrra voru veiðar stöðvaðar 11. júlí og hittiðfyrra 21. júlí. Ekkert hefur orðið af kosningaloforðum VG, sem farið hefur með matvælaráðuneytið allt kjörtímabilið, um að efla strandveiðar og sagði: „Nýta má strandveiðar til að efla jafnrétti og stuðla að nýliðun í sjávarútvegi.

Kosningaáróður skrifstofu Alþingis?
Nú fara fram kosningar til Evrópuþingsins. Eins og ritstjórn Morgunblaðsins hefur bent á, benda skoðanakannanir til þess að popúlískir og svokallaðir „róttækir hægriflokkar“ dragi til sín mikið fylgi. Í umfjöllun blaðsins er jafnframt farið yfir umdeilda flokkun umræddra stjórnmálaflokka til hægri, enda tali þeir fæstir fyrir einstaklingsfrelsi og þeim mun fleiri aðhyllist miðstýringu og aukin ríkisafskipti.

Fyrstu tvö árin okkar í Kópavogi
Leiðarstef okkar í meirihlutasáttmálanum er að Kópavogur verði farsælt bæjarfélag í fremstu röð. Fyrirséð er að þjónusta sveitarfélaga mun einungis þyngjast í rekstri horft til framtíðar. Því skiptir höfuðmáli að skapa góðan fjárhagsgrunn og koma í veg fyrir ósjálfbæra skuldasöfnun. Þessar áherslur endurspeglast vel í þeim verkefnum sem við höfum sett í forgang á kjörtímabilinu sem nú er hálfnað.

Alþjóðadagur faggildingar er 9. júní
Innan Evrópska efnahagssvæðisins hefur á undanförnum áratugum verið unnið að því að samræma kröfur um öryggi vöru, til að tryggja heilbrigði og öryggi, neytendavernd og vernd umhverfisins. Kröfurnar eru settar fram í tilskipunum og reglugerðum, oft studdar ítarlegri kröfum í evrópskum stöðlum. Mikilvægur hluti regluverksins eru ákvæði um á hvern hátt kröfunum skuli framfylgt.

Forseti þriðjungs eða heillar þjóðar?
Nú eru forsetakosningar afstaðnar. Halla Tómasdóttir er ótvíræður sigurvegari þeirra og á hamingjuóskir skilið. Þótt hún hafi ekki fengið mitt atkvæði vona ég að henni vegni vel og að hún upphefji veg og virðingu forsetaembættisins, enda þykir mér bæði vænt um embættið og ber mikla virðingu fyrir því.

Jónsósómi
Það komst eitt sinn í tísku að berjast með bölmóðinn að vopni og sjá ekkert bjart framundan. Undanfarið ár hefur verið rekin mikil herferð gegn laxeldi í sjó, einmitt í þessum sérstaka heimsósómastíl. Þar er allt sem úrskeiðis fer í mannheimum laxeldinu að kenna sama hvað það er.

Geirfuglar og flámæli
Í skoðanagreinum á Vísi deila Sigríður Hagalín Björnsdóttir (4. júní) og Þór Saari (5. júní) skoðunum sínum á stöðu íslenskunnar með tilliti til málnotkunar á RÚV og meintri skrumskælingu á málinu sem á sér stað þar.

Sanngjarnt lífeyriskerfi: Endurskoðun í tæka tíð
Á Alþingi Íslendinga er nú til meðferðar frumvarp um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu, sem myndi fela í sér einhverjar mestu breytingar á kerfinu fyrr og síðar verði frumvarpið samþykkt. ÖBÍ réttindasamtök hafa komið á framfæri fjölda athugasemda og tillagna um breytingar a frumvarpinu.

Fljótum við enn sofandi að feigðarósi?
Nýlega svaraði heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson fyrirspurn Evu Sjafnar Helgadóttur þingmanns Pírata, um notkun Íslendinga á ADHD lyfjum og svefnlyfjum. Í svari hans kom fram að 26.654 Íslendingar fá uppáskrifuð svefnlyf sem samsvarar um 9% fullorðinna Íslendinga. Konur nota svefnlyf í miklum mæli en notkun þeirra er um 40% umfram það sem við sjáum meðal karla sem er í samræmi við aukið svefnleysi meðal kvenna.

Bara engin ástæða
Árið er 2024 og við erum ennþá að reyna berjast fyrir því að stoppa hvalveiðar. Það er svo tilgangslaust að ég sé enga ástæðu til þess að halda þessu áfram.

Á hvaða stefnu erum við?
Fyrir um ári síðan tók ég stolt við útskriftarskírteini mínu frá Skipstjórnarskólanum og verðlaunum fyrir framúrskarandi árangur í skipstjórnargreinum og fagensku. Stoltið var ekki minna þá en rúmum 10 árum áður, þegar ég tók við Mag.jur. prófi mínu frá Lagadeild Háskóla Íslands og svo málflutningsréttindum fyrir héraðsdómi.

Wolt tekur hlutverk sitt á Íslandi alvarlega
Í aðsendri grein á Vísi og aftur á Stöð 2 fjölluðu Halldór Oddsson og Saga Kjartansdóttir hjá ASÍ um alvarlegar ásakanir sem beint er að Wolt. Þessum ásökunum getum við ekki látið ósvarað.

Margt óljóst í áætlunum Heidelberg Materials í Ölfusi
- Opið bréf til Þorsteins Víglundssonar, talsmanns Heidelberg Materials á Íslandi, og Eiríks Ingvarssonar, framkvæmdastjóra Eden Mining.

Hvað á ég að gera við barnið mitt?
Ég hef haft áhyggjur af dagvistun frá því ég fékk staðfestingu á því að ég væri ólétt. Frá því áður en við maðurinn minn fórum að segja fólki í kringum okkur að von væri á barni þá hefur blundað í mér kvíði varðandi leikskólamál í Reykjavík. Vitiði hvað það er fáránlegt að þurfa að líða svona?

Sanngjarnt lífeyriskerfi: Í andstöðu við yfirlýst markmið
Á Alþingi Íslendinga er nú til meðferðar frumvarp um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu, sem myndi fela í sér einhverjar mestu breytingar á kerfinu fyrr og síðar verði frumvarpið samþykkt. ÖBÍ réttindasamtök hafa komið á framfæri fjölda athugasemda og tillagna um breytingar á frumvarpinu.

Deildarstýri – deildarstýra – deildarstjóri
Tungumálið endurspeglar sögu okkar. Ef við höfum hugrekki til að breyta sögunni verðum við að hafa hugrekki til að breyta tungunni. Það er skjalfest stefna Orkuveitunnar að vera „forystuafl fjölbreytileika og jafnréttis“ þar sem byggður er upp „öruggur og inngildandi vinnustaður.“

Þar sem umhverfismál og kvenréttindi mætast: Umhverfis- og félagslegt réttlæti í tískuiðnaðinum
Umhverfismál, kvenréttindi og tískuiðnaðurinn mætast í flókinni dýnamík sem hefur miklar afleiðingar fyrir allar konur en sérstaklega konur í þróunarlöndum. Skilningur á þessum málum skiptir lykilatriði í viðbrögðum við neikvæðum áhrifum tískuiðnaðarins á berskjölduð samfélög og þeim lausnum sem sjálfbærir starfshættir í tískuiðnaðinum geta haft upp á að bjóða.

Hvað skiptir þig máli? Einföld leið til að bæta heilbrigðisþjónustu
Einn af grunnþráðum heilbrigðisvísinda hefur í gegnum tíðina verið að finna út hvað amar að sjúklingum og leita allra leiða til lækninga. Heilbrigðisstarfsfólk hefur öðlast bæði þekkingu og þjálfun í þessum þáttum, en um leið gleymist oft í amstri dagsins að huga að því hvað skiptir sjúklinga raunverulegu máli á (stundum grýttri) leið sinni í gegnum heilbrigðiskerfið.

Framsýn farsæld
Trappa á 10 ára afmæli um þessar mundir. Trappa er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að veita og auka aðgengi að ýmis konar þjónustu fyrir börn, til að mynda talþjáfun, sálfræðiráðgjöf og hegðunarráðgjöf svo eitthvað sé nefnt. Markmið og sýn okkar hefur ávallt verið að grípa barn í vanda án tafar, ýmist með ráðgjöf, leiðbeiningum eða beinni þjálfun.

Áfengi er engin venjuleg söluvara á frjálsum markaði
Frá aldaöðli hefur það verið talið hlutverk ríkisvaldsins að vernda borgarana frá skaða. Er það almennt talinn vera grunnur þjóðfélagssáttmálans. Þannig er haft eftir Rómverjanum Marcus Tullius Cicero; Velferð og öryggi borgaranna eru hin æðstu lög.* (1) Haft er eftir breska forsætisráðherranum og íhaldsmanninum Disraeli; Að vernda heilsu borgaranna er æðsta skylda stjórnmálamanna. (2)

Misnotkun veikindaréttar á vinnumarkaði?
Þann 5. Júní 2024 kom út grein á visir.is þar sem rætt er meint misnotkun launtaka á veikindaréttindum sínum og var þá sérstaklega rætt um launtaka sem nýta sér veikindarétt sinn í uppsagnarfresti sínum.

Það eina örugga í lífinu
Síðustu misseri hafa verið fréttir af rekstrarvanda líkhúsa á Íslandi. Það er morgunljóst að skýra þarf frekar stöðu þeirra hér á landi og hvernig rekstri þeirra verði best háttað til framtíðar. Móta þarf stefnu og skilgreina hver ber ábyrgð á látnum einstaklingi frá dánarvottorði til greftrunar í kirkjugarði og heimila líkhúsum gjaldtöku.

Hví styður Ísland vopnakaup fyrir Úkraínu?
Einfalda svarið þessari spurningunni er: Vegna þess að fólk sem berst fyrir sjálfstæði sínu og frelsi gegn blóðugri innrás þarf vopn til að verja sig. Ef við ættum vopn, þá myndum við senda þau. En þegar kemur að fjármagni þá viljum við nýta það til brýnustu þarfa Úkraínu, samkvæmt þeirra eigin mati.

Stöðvum störukeppnina
Það er verulega áhugavert að fylgjast með ríkisstjórnarflokkunum reyna af veikum mætti að halda þessu stjórnarsamstarfi gangandi eftir forsetakosningarnar. Það ríkir fullkomin óvissa um framgang stórra mála á Alþingi vegna þess að flokkarnir koma sér ekki saman um hvað skuli klára. Það sem er þó merkilegast af öllu er að Vinstri hreyfingin grænt framboð virðist vera búin að fatta að hreyfingin er til vinstri.

Þegar réttindin þín eru tekin í burtu af stjórnvöldum
Þessa dagana er Alþingi íslendinga á fullu að fjarlægja þau fáu réttindi sem flóttamenn sem koma til Íslands á eigin vegum hafa. Þessar lagabreytingar eru allar saman, með tölum og lagagreinum andstæðar þeim alþjóðlegum samningum sem Ísland hefur skrifað undir, sáttmálum Sameinuðu Þjóðanna og gætu jafnvel jaðrað á við mannréttindabrot á þeirri stærðargráðu að Mannréttindadómstóll Evrópu verður að taka mála málið og mun örugglega gera það á endanum einn daginn.

Aukin lífsgæði - fimm leiðir að bættri vellíðan
Hvað er hamingja og hvernig getum við haft áhrif á okkar hamingju og vellíðan?

Síðasta hálmstrá Vinstri grænna í höndum Bjarkeyjar Olsen
Undirritaður hefur fylgzt með stjórnmálum, hér og erlendis, til lengri tíma, og minnist þess ekki, að hafa horft upp á annað eins fylgishrun stjórnmálaflokks, og Vinstri grænir, VG, hafa orðið fyrir, síðustu 6-7 árin. Úr 17% í rúm 3%!

Pólitísk sjálfsmörk í Laugardalnum – aðför að skólastarfi
Laugardalurinn er ein af perlum Reykjavíkur með sínar sögufrægu þvottalaugar, glæsileg íþróttamannvirki, Grasagarðinn, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og gróðursæla útivistarparadís. Dalurinn tengir þau íbúðahverfi sem að honum liggja, á Teigunum, í Laugarnesinu, við Laugarásinn, í Klepps- og Langholti og að Heimahverfi.

Vara við meiriháttar skorti á kopar eftir 2025
Alþjóða Orkustofnunin (IEA) varar við því í nýrri skýrslu að framboð af kopar og öðrum málmum muni ekki duga til að fullnægja eftirspurn miðað við áætlanir um orkuskipti og kolefnishlutleysi árið 2050.

Þingmenn opnið augun og finnið kjarkinn
Ég veit að það er erfitt að vera öðruvísi. Líka þegar maður mætir í boð hjá erlendum ráðamönnum sem allir eru á því að Úkraína verði að sigra á vígvellinum í yfirstandandi stríði. Þetta er helstefna Evrópu í hnotskurn. Stríðið mun færast í aukana.