
Skoðun

Jón Spæjó
Það er haust. Það styttist í að fjárlög ríkisins komi til umræðu á Alþingi. Þegar þeir stíga á stokk íbyggnu mennirnir með alvarlega lúkkið í svörtu búningunum og lýsa því yfir að þeim hafi naumlega tekist að koma í veg fyrir hryðjuverk. Landsmenn og konur fá hland fyrir hjartað og margfalt fleiri trúa því í dag en í gær að mannskætt hryðjuverk verði framið á Íslandi.

Bleika slaufan – Sýnið lit!
Þegar haustlitirnir með bleikum tónum leggjast yfir landið er Bleika slaufan skammt undan. Í rúm 20 ár hefur hlýja, kærleikur og samstaða fylgt Bleiku slaufunni sem smellpassar við árstíðina.

Forvirkar rannsóknarheimildir
“Virðulegur forseti. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem hv. þingmaður snýr hlutunum algjörlega á hvolf þegar kemur að þessari umræðu og virðist hafa það eitt að markmiði að rýra traust almennings, borgaranna í þessu landi, á lögreglu, traust sem er reyndar mjög mikið og vel áunnið.

Hugleiðing um fólk og fjársjóði
Ég fæ að kynnast svo mörgum í vinnunni, einstaklingum af öllum stærðum og gerðum. Ég vinn nefnilega með fólki á miðjum aldri sem lent hefur í einhvers konar áföllum, hvort sem heldur af andlegum eða líkamlegum toga.

Með tunguhöft á heilanum!
Ég sat nýverið fjögurra daga ráðstefnu um tunguhöft á vegum ICAP (International Consortium Ankyloglossia Professionals), alþjóðlegra samtaka tunguhaftsfagaðila. Þetta voru fjórir þéttsetnir dagar af fyrirlestrum og annarri fræðslu.

Byggjum upp í Kópavogi
Frá aldamótum hefur íbúum í Kópavogi fjölgað að meðaltali um þrjú prósent á ári, sem er næstum þrisvar sinnum meiri fjölgun en í Reykjavík og tvisvar sinnum meiri fjölgun en á landsvísu.

Háskólinn á Akureyri og heiðursdoktorsnafnbót dr. Ólafs Ragnars Grímssonar — Sterkt samstarf um málefni Norðurslóða
Dr. Ólafur Ragnar Grímsson, fræðimaður og fyrrverandi forseti, verður sæmdur heiðursdoktorsnafnbót í félagsvísindum við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri í dag.

Börn í Laugardal föst í hamsturhjóli ferlagreininga borgarinnar
Íbúar í Laugardal eru langþreyttir að bíða eftir ákvörðun borgaryfirvalda um framkvæmdir á skólahúsnæði við Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtskóla.

Þegar börnum er refsað fyrir veikindi foreldra – ómannúðleg og vanvirðandi meðferð barnaverndar á þegnum landsins
68. gr.Stjórnarskrár Íslands, nr. 33/1944: ,,Engan má beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.“

Verklag í kjölfar náttúruhamfara
Áskoranir hafa alla tíð fylgt sambúð við náttúruöflin á Íslandi og um nýliðna helgi glímdu landsmenn sannarlega við þau. Illviðri gekk yfir, mikill vindstyrkur sem sumstaðar fylgdi mikil úrkoma og há sjávarstaða. Þetta leiddi til margs konar tjóns s.s. skriðufalla á Vestfjörðum, flóða á Akureyri, skemmda á uppskeru og gríðarlegs foktjóns.

Afbrotavarnir gegn skipulagðri brotastarfsemi og hryðjuverkum
Nokkur umræða hefur skapast um fyrirhugað frumvarp dómsmálaraðherra um auknar heimildir lögreglu til afbrotavarna þegar mál tengjast hryðjuverkaógn eða skipulagðri brotastarfsemi. Þá umræðu skortir alla yfirvegun, sem er regla frekar en undantekning hér á landi, og öllu grautað saman, skyldu og óskyldu.

Tímabært að lengja fæðingarorlof
Samfélag sem vill hlúa vel að börnum og foreldrum gerir sennilega einna mesta gagn með því að halda vel utan um barnafjölskyldur á fyrstu árum í lífi barna. Þegar börnin eru lítil, foreldrarnir yngri, fjárhagur oft viðkvæmari og álagið hvað mest. Umræðan um hvernig á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er áratugagömul.

Í kjölfar #metoo
Margt hefur áunnist á síðustu árum í málefnum tengdum kynferðislegu og kynbundu ofbeldi. Umræðan hefur opnast til muna, ekki hvað síst í tengslum við #metoo byltinguna og hefur aukist jafnt á opinberum sem öðrum vettvangi.

Norrænt samstarf í 100 ár!
Norræna félagið á Íslandi fagnar í dag að eitt hundrað ár eru liðin frá stofnun félagsins. Þau voru satt best að segja ekki mörg sem sáu tilgang eða mikið vit í hugmyndinni um norrænt samstarf þegar félagið var stofnað 29. september árið 1922, enda kanski ekki von.

Ný þjóðarhöll í íþróttum
Við Íslendingar höfum átt öflugt íþróttafólk í gegnum tíðina í mörgum íþróttum sem náð hefur undraverðum árangri undir fána smáþjóðar. Samkeppnin harðnar stöðugt og í dag er ekki lengur nóg að hafa hæfileika og metnað til að komast í fremstu röð. Fyrsta flokks aðstaða til íþróttaiðkunar skiptir einnig höfuðmáli.

ADHD, spítt og klám
Ég las vel skrifaða grein eftir doktorsnema í heila-, hugarstarfsemi og hegðun í dag. Greinin samanstóð af samantekt rannsókna um það sem hún kallaði verndandi áhrif ADHD lyfja.

Hamfaraframkvæmdir
Eigendur í fjöleignarhúsum þurfa allir einhvern tímann að ráðast í viðhald, breytingar og endurbætur á íbúðum sínum. Það er gömul saga og ný. Eigendur hafa verulegt svigrúm í því efni gagnvart sameigendum þótt slíkar framkvæmdir valdi einatt sambýlisfólkinu ónæði.

Kaldur raunveruleiki konu í kvikmyndagerð og viðleitni hennar í áratug við að koma bíómynd á koppinn
Þegar ég sest niður til að fara yfir síðasta áratug og rifja upp rússíbanareiðina sem ég er búin að ganga í gegnum við að reyna koma kvikmynd á koppinn, er ég löngu komin yfir frústerasjón og taugatitring, því eitt af því sem þetta ferli hefur kennt mér er æðruleysi og óþrjótandi þolinmæði.

Hvort viljum við vera veik- eða sterklega byggð?
Í gegnum aldanna rás hefur okkur verið kennt að við séum með svokallað drápseðli. Það hefur gefið mannfólkinu afsökun að ráðast á annað fólk með ofbeldi í alls konar mynd. Þetta drápseðli kemur vissulega frá steinaldarmanninum og veiðimanninum sem báðir þurftu að drepa til að lifa af.

„Hvað er það versta sem gæti gerst?“
Án þess að hafa séð sýninguna og án þess að þykjast hafa hugmynd um það hvernig er að vera manneskja með fötlun þá langar mig að leggja nokkur orð í belg varðandi „Stóra Þjóðleikhúsmálið“. Þessum pistli er ekki beint að neinum persónulega og kannski er hann einhvers konar viðbragð við viðbrögðum.

Þar eigum við heima
Valdhafar í Rússlandi misreiknuðu sig illa þegar þeir ákváðu að ráðast inn í Úkraínu. Þeir vanmátu viðnámsþrótt Úkraínumanna og viðbrögð Vesturlanda.

Haukfránn og Trippa-Jón
Ein af mínum bernskuminningum er þátturinn Spítalalíf sem gerðist í Kóreustríðinu og lýsti á gamansaman hátt vinnu lækna við erfiðar aðstæður. Helstu söguhetjurnar voru kallaðar Haukfránn, Trippa-Jón, Kossvör og Bruni læknir og hægt er að skoða gömul dagblöð þar sem blaðamenn skemmta sér vel yfir þessum íslensku nöfnum. Einstaka maður var brúnaþungur og fannst þau hallærisleg, benti á að þátturinn héti MASH og erlendu nöfnin væru allt önnur.

Bingóferðin sem breyttist í kennslustund
Eftirvæntingin leyndi sér ekki. Börnin höfðu beðið alla vikuna eftir fyrsta bingóinu sínu en þau höfðu ekki nokkra hugmynd um hvað bingó væri enda bara þriggja og fimm ára. Þau höfðu þó áttað sig á að miðað við spennu okkar foreldranna var það eitthvað mjög skemmtilegt.

Íslenskukennsla á vinnutíma – er allra hagur
Umræðan um erlent vinnuafl og íslenskunám rís hátt um þessar mundir og er það vel, enda er um mikilvægt málefni að ræða sem hefði gjarnan mátt taka meira pláss íslensku samfélagi hingað til. Íslenskunám á vinnustað á vinnutíma er nokkuð sem ég get mælt með fullum fetum, eftir að hafa reynt slíkt fyrirkomulag í Hannesarholti.

Vextir, verðbólga og öskrandi verkkvíði
Afborganir af húsnæðislánunum hækka og matarkarfan hækkar. Þessi staða hefur ekki farið fram hjá heimilum landsins. Afborganir hafa í mörgum tilvikum hækkað um tugi þúsunda á mánuði. Almennt mætti fólk búast við því að ríkisstjórnin ynni þá það verkefni sem henni er falið: Að verja kjör heimila og fyrirtækja.

Málsókn gegn Facebook fyrir brot á Íslenskum samkeppnislögum
Bílainnflutningsfyrirtækið islandus.is hefur í tvo áratugi boðið lægri verð á nýjum og nýlegum bílum frá erlendum bílaumboðum. Undanfarin ár hefur Islandus.is auglýst þjónustuna á Facebook eftir að bandaríski netmiðillinn tók flesta landsmenn til sín.

Má bjóða þér stutta stráið?
Mörg strá eru sett saman í knippi, eitt þeirra er styttra en hin. Hópur barna kemur saman og eiga að draga strá úr knippinu. Sá sem dregur stutta stráið þarf að inna eitthvað óvinsælt verkefni af hendi. Máltækið „að draga stutta stráið“ kemur af þessari félagslegu athöfn og enginn vill draga það.

Nýja stjórnarskrá fyrir minnihlutahópa
Á hverjum tíma koma fram ýmsar kröfur og stefnumál í samfélaginu. Hver kannast ekki við græna uppbyggingu og svart hagkerfi, jöfnuð og fjármagnstekjur, ábyrga hagstjórn og bankahrun, jafnrétti og jákvæða mismunun, velferð og barnavernd, samgöngur og hunda, borgarlínu og hesta.

Byggja skoðanir fólks á ADHD lyfjum á rannsóknum?
Reglulega koma upp samfélagslegar umræður um ADHD lyf. Fyrir suma er þetta spennandi Twitter umræða en fyrir aðra er þetta bókstaflega dauðans alvara. Til að auka þekkingu og skilning um þessi mál er hér samantekt rannsókna um verndandi áhrif ADHD lyfja sem fólk getur haft í huga næst þegar þessi mál eru til umræðu. Fyrst skal tekið fram að virkni og öryggi ADHD lyfja er vel þekkt og fjöldi rannsókna sýna verndandi áhrif lyfja fyrir áhættuþáttum ADHD.

Allar raddir þurfa að heyrast
Á Stígamót leita árlega um átta hundruð einstaklingar til að vinna úr afleiðingum kynferðisofbeldis og eru raddir þeirra allra okkur mikilvægar. Síðustu ár hefur baráttan gegn kynferðisofbeldi orðið sífellt háværari og mörg hafa stígið fram til að segja frá sinni reynslu opinberlega. Oft er þetta yngra fólk sem hefur alist upp við auðveldar boðleiðir til að koma sínu á framfæri og aukna umræðu um málaflokkinn.