Sport

Stillti upp fartölvu til að mótmæla
Portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourinho beitti óhefðbundinni aðferð til að sanna mál sitt þegar hann mótmælti dómi í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.

„Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku”
„Jesús almáttugur, ég þarf að fara á bráðavaktina núna sko,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, eftir hádramatískan 3-2 sigur sinna manna gegn Val.

„Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið
Erik ten Hag virðist kominn á endastöð með Manchester United og aðeins tímaspursmál hvenær félagið lætur hann fara, eftir frammistöðu liðsins í 3-0 tapinu gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum
Sverrir Ingi Ingason stóð í vörn Panathinaikos í kvöld þegar liðið mætti AEK Aþenu á útivelli í höfuðborgarslag í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fylkir - KA 1-3 | KA kom Fylki í vonlitla stöðu
Bikarmeistararnir unnu 1-3 sigur gegn Fylki sem situr í neðsta sæti deildarinnar. Staðan var jöfn í hálfleik en KA gerði tvö mörk í seinni hálfleik og gestirnir fögnuðu sigri. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“
KA vann 1-3 sigur gegn Fylki á Würth-vellinum. Viðar Örn Kjartansson, leikmaður KA, var á skotskónum en fagnaði ekki markinu þar sem hann spilaði með Fylki árið 2013.

Jafnt þegar Logi og Brynjar mættust
Logi Tómasson og Brynjar Ingi Bjarnason mættust í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þar sem lið þeirra Strömsgodset og HamKam skildu jöfn, 1-1.

Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri
Guðmundur Guðmundsson stýrði Fredericia til sex marka sigurs gegn KIF Kolding, 26-20, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag
Angel Correa kom Atlético Madrid til bjargar í blálokin og tryggði liðinu 1-1 jafntefli við Real Madrid í höfuðborgarslagnum á Spáni í kvöld. Leikurinn tók mun lengri tíma en ella vegna óláta stuðningsmanna.

Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn
Víkingur endurheimti efsta sæti Bestu deildar karla með dramatískum endurkomusigri gegn Val á Hlíðarenda. Lokatölur 2-3, sigurmarkið skoraði galdramaðurinn Tarik á lokamínútu uppbótartíma.

Andri skoraði fyrir slaginn við Chelsea
Tveggja mánaða bið eftir marki lauk hjá framherjanum stæðilega Andra Lucasi Guðjohnsen í dag þegar hann gerði þriðja mark Gent í 3-0 sigri gegn OH Leuven í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Tryggvi með tíu í fyrsta leik
Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason átti sinn þátt í 90-72 sigri Bilbao Basket á Breogán í fyrstu umferð efstu deild Spánar í körfubolta í dag.

Albert ekki fyrstur til að vinna Empoli
Eftir tvennuna gegn Lazio í síðasta leik var Albert Guðmundsson í fyrsta sinn í byrjunarliði Fiorentina í dag, þegar liðið mætti grönnum sínum í Empoli, í ítölsku A-deildinni í fótbolta.

Greið leið fyrir Bjarka, Ómar og Gísla í undanúrslit HM
Eins og búast mátti við eru Íslendingaliðin Magdeburg og Veszprém búin að vinna sína riðla á HM félagsliða í handbolta og þar með komin í undanúrslit mótsins.

„Ætli svona 4-3 hefði ekki verið sanngjarnt“
Þrátt fyrir þokkalega opinn síðari hálfleik skildu Þróttur og Þór/KA jöfn í markalausum leik. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, er sæll með að halda hreinu á útivelli og tekur marga jákvæða punkta með sér norður.

Tap hjá Frey gegn liðinu sem vildi hann | Lið Sveindísar steinlá
Kortrijk, sem leikur undir stjórn Freys Alexanderssonar, varð að sætta sig við 3-0 tap á útivelli gegn silfurliði síðasta tímabils, Union St. Gilloise, í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

„Hún er þarna til að verja og hún gerir það vel“
Ólafur Kristjánsson, þjálfari Þróttar, var temmilega sáttur með jafntefli á Avis-vellinum í dag. Þróttur mætti Þór/KA í efri hluta Bestu deildar kvenna í dag og endaði leikurinn með markalausu jafntefli.

Elliði Snær frábær í sigri Gummersbach
Íslendingalið Gummersbach vann tveggja marka sigur á Bietigheim-M. í þýsku efstu deildar karla í handbolta. Elliði Snær Viðarsson átti frábæran leik fyrir Gummersbach.

Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn á miðju West Ham United þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Liverpool í annarri umferð efstu deildar kvenna í knattspyrnu á Englandi.

Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu
KR vann ótrúlegan 7-1 sigur á Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu. Benóný Breki skoraði fjögur mörk í liði heimamanna, Óðinn Bjarkason skoraði í sínum fyrsta leik í Bestu deildinni á meðan Luke Rae og Atli Sigurjónsson skoruðu einnig. Markús Páll Ellertsson skoraði mark Fram. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum
Þróttur og Þór/KA skildu jöfn þegar liðin áttust við á Avis-vellinum í dag. Hvorugt lið náði að skora þrátt fyrir álitleg færi í leiknum. Bæði lið sigla lygnan sjó í efri hluta Bestu deildar kvenna en Þór/KA situr í þriðja sæti á meðan Þróttur situr í því fimmta þegar ein umferð er eftir af Íslandsmótinu.

Uppgjörið og viðtöl: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu
Breiðablik tyllti sér á topp Bestu deildar karla í fótbolta með því að leggja FH að velli með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í 24. umferð deildarinnar á Kaplakrikavelli í dag.

Uppgjörið: Vestri - HK 2-1 | Vestri úr fallsæti og með örlögin í eigin höndum
Vestri kom til baka gegn HK og vann 2-1 sigur í sannkölluðum sex stiga leik í Bestu deild karla í knattspyrnu. Sigurinn lyftir Vestra upp úr fallsæti á kostnað HK. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Mikael Egill byrjaði þegar Rómverjar komu til baka
Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Venezia sem komst yfir í Róm en mátti á endanum þola 2-1 tap í Serie A, ítölsku efstu deild karla í knattspyrnu. Þá halda nýliðar Como áfram að sækja sigra.

Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina
Liam Delap skoraði bæði mörk Ipswich Town þegar nýliðarnir gerðu 2-2 jafntefli við Aston Villa í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla.

Tottenham lék tíu United-menn grátt
Tottenham vann frábæran 3-0 útisigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag og jók þar með enn pressuna á Erik ten Hag, knattspyrnustjóra United. Heimamenn misstu Bruno Fernandes af velli með rautt spjald og verða án hans í næstu deildarleikjum.

Emilía Kiær skoraði og Glódís Perla sá rautt í öruggum sigri
Framherjinn Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði annað marka Nordsjælland í góðum sigri í efstu deild kvenna í Danmörku. Þá fékk Glódís Perla Viggósdóttir tvö gul spjöld og þar með rautt þegar Bayern München vann öruggan 4-0 sigur á Werder Bremen.

Arnar Pétursson átti sitt besta hlaup í Berlín
Langhlauparinn Arnar Pétursson bætti sinn besta tíma í maraþoni þegar hann kom 67. í mark í Berlínarmaraþoninu í dag, sunnudag. Hann hljóp á tveimur klukkustundum, tuttugu mínútum og fjórum sekúndum.

Vilja framlengja við nærri fertugan Ronaldo
Al Nassr hefur opnað á viðræður við Cristiano Ronaldo um að framlengja samning hans til ársins 2026. Núverandi samningur framherjans gildir til næsta árs en félagið vill framlengja við hann sem fyrst.

„Sannfærður um að við séum að einblína á röngu hlutina“
Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar í Bestu deild karla í knattspyrnu, lauk MA prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands nú í sumar. Þrátt fyrir gríðarlega góðan árangur innan vallar þá eru aðrir hlutir honum efst í huga.