Viðskipti

„Hæfiskilyrði fyrir aðila í þessum stöðum eru ströng“
Varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands telur að fjármálaeftirlitið hafi sinnt hlutverki sínu vel í rannsókninni á seinna útboðinu á Íslandsbanka. Hún segir hæfiskilyrði stjórnenda Íslandsbanka vera ströng, það sé þó bankans að meta hverju sinni hvort þau séu uppfyllt.

Bankinn hafi brugðist trausti
Fjármálaráðherra segir ljóst af sátt Íslandsbanka og Seðlabanka Íslands að Íslandsbanki hafi brugðist því trausti sem honum var sýnt þegar ákveðið var að hann myndi sjálfur sjá um útboð á hlut ríkisins í bankanum.

Bankasýsla ríkisins lýsir yfir miklum vonbrigðum
Í fréttatilkynningu segir að Bankasýsla ríkisins lýsi yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka við útboð á 22,5 prósent eignarhlut ríkisins í bankanum, í ljósi þess sem fram kemur í nýgerðri sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Boðað verður til hluthafafundar vegna málsins.

Ólögmæt notkun Stjörnugríss á íslenska fánanum
Neytendastofa hefur bannað Stjörnugrís að merkja Smass-hamborgara sína með íslenska fánanum þar sem kjötið er ekki alíslenskt. Neytendastofa segir fyrirtækið stunda óréttmæta viðskiptahætti sökum villandi upplýsinga þar sem hamborgararnir eru að mestu úr þýsku nautakjöti.

Fullyrtu um tuttugu milljóna lágmark sem enginn fótur var fyrir
Starfsmenn Íslandsbanka beindu útboði á hlut ríkisins að 99 almennum fjárfestum, þrátt fyrir að um útboð fyrir fagfjárfesta hafi verið að ræða. Í níu tilfellum, þar sem hljóðrituð símtöl liggja fyrir, kemur fram í símtölum starfsmanna bankans við almenna fjárfesta að lágmarksfjárhæð í útboðinu væri 20 milljónir króna. Þær fullyrðingar voru rangar.

Hægt að ná verðbólgu hratt niður með miklum fórnarkostnaði
Fyrrverandi seðlabankastjóri segir fólk þurfa hætta að leita af sökudólgum eða einföldum skýringum í umræðu um verðbólguna. Hægt sé að keyra hana niður með miklum hraða ef vilji sé fyrir hendi en ekki án mikils fórnarkostnaðar.

Samþykktu allar beiðnir starfsmanna um að taka þátt í útboðinu
Regluvarsla Íslandsbanka samþykkti allar beiðnir starfsmanna um þátttöku í útboði á hlut ríkisins í bankanum í fyrra þrátt fyrir að aðeins fjórir starfsmenn og einn tengdur aðili væri flokkaður sem fagfjárfestar þegar útboðið hófst. Fjármálaeftirlitið telur þátttöku starfsmanna hafa skapað fjölmarga hagsmunaárekstra.

Reglur um hljóðupptökur viðvarandi vandamál hjá Íslandsbanka
Í sátt um greiðslu sektar Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum kemur fram að bankinn hafi brotið ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga, með því að skrá ekki og varðveita símtalsupptökur vegna 162 símtala sem starfsmenn hans áttu í tengslum við útboðið.

Sáttin birt: Flokkuðu fjárfesta ranglega, tóku ekki upp símtöl og villtu um fyrir Bankasýslunni
Seðlabankinn hefur birt samkomulag við Íslandsbanka um að ljúka máli bankans vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum. Meðal þess sem kemur fram í samkomulaginu er að stjórn bankans og bankastjóri hafi ekki innleitt stjórnarhætti og innra eftirlit með fullnægjandi hætti. Þá voru átta almennir fjárfestar flokkaðir sem sem fagfjárfestar með röngum hætti.

Ekki gleyma að bóna bílinn í sumar
Sumarið er loksins komið og sólin farin að dreifa geislum sínum yfir landsmenn. Í upphafi sumars er nauðsynlegt að huga vel að lakki bifreiða og passa upp á að bóna þær reglulega.

Fædd 1970: Kynslóðin sem er þjökuð af samviskubiti enda kennt að klára allt
„Ég er í aðra röndina mjög kröfuhörð á sjálfan mig en á hina vil ég bara gera skemmtilega hluti í lífinu,“ segir Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefanda, og skellihlær.

Gerir sér vonir um að einn morguninn snúsi hún ekki
Vilborg Ásta Árnadóttir, markaðsstjóri Póstsins og einn eigenda visteyri.is, er ein þeirra sem heldur í vonina um að einn morguninn fari hún fram úr um leið og klukkan hringi. Og að í framhaldinu eigi hún jafnvel rólegan morgunn þar sem hún jafnvel næði að hugleiða áður en hún hendir sér í ræktina.

Björk Eiðsdóttir vinnur fyrir Björgólf Thor
Björk Eiðsdóttir, blaðamaður og fyrrverandi ritstjóri helgarblaðs Fréttablaðsins, hefur ráðið sig til starfa hjá Björgólfi Thor Björgólfssyni, viðskiptamanni.

Isavia semur um uppbyggingu hleðslustöðva í Keflavík
Fulltrúar Isavia og HS Orku hafa skrifað undir samning um uppsetningu á fjölda hleðslustöðva fyrir rafbíla á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að um langtíma verkefni sé að ræða.

Vera segir veru Veru vera trygga
Meirihluti veitingastaða í Veru mathöll í Grósku er nú lokaður. Stefnt er að því að nýir komi þeirra í stað. Framkvæmdastjóri Grósku segir þar breytinga og endurskipulagningu að vænta, mathöllin muni vera áfram á sínum stað í húsinu.

Jeff Bezos meðal þeirra sem skyldaði stjórnendur til að lesa bókina um árangursríka stjórnandann
„Ég viðurkenni alveg að ég hafði smá áhyggjur af því fyrst þegar að ég renndi yfir bókina með þýðingu á henni í huga, hvort hún myndi standast tímans tönn. Hið áhugaverða er að hún svo sannarlega gerir það og í raun er margt sem Drucker talar um í bókinni sem á einmitt sérstaklega vel við nú,“ segir Kári Finnsson, markaðsstjóri og hagfræðingur um bókina Árangursríki stjórnandinn sem nú er komin út.

Íslandsbanki sektaður um rúman milljarð vegna útboðsins
Íslandsbanki hefur þegið boð fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um að ljúka málinu um útboð á hlutum bankans með sátt. Íslandsbanki mun greiða rúman milljarð í sekt vegna alvarlegra brota sem hann gengst við. Þrátt fyrir þetta hækka afkomuspár bankans.

Alvotech og HÍ endurnýja starfssamning
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Róbert Wessmann, forstjóri líftæknifyrirtækisins Alvotech, undirrituðu í dag samning sem tryggir áframhaldanadi samstarf háskólans við fyrirtækið.

Ferðamenn eyða langmestu í gistingu
Af kortaveltu erlendra ferðamanna sést að gistiþjónusta er sá útgjaldaliður sem jókst langmest það sem af er ári. Ferðamenn eyða sem stendur langmestu í gistingu en verslun kemur næst þar á eftir.

Veðurstilltar auglýsingar nýjung í auglýsingabransanum
Auglýsingatæknifyrirtækið Púls Media tilkynnti á á dögunum um nýjung í auglýsingatækni en það eru veðurstilltar auglýsingar.

Amazon sakað um bellibrögð með Prime-áskriftir
Alríkisviðskiptastofnun Bandaríkjanna (FTC) stefndi tæknirisanum Amazon fyrir að blekkja viðskiptavini sína til þess að skrá sig í áskriftarþjónustu og gera þeim erfitt fyrir að segja henni upp. Fyrirtækið hafnar ásökununum alfarið.

Systkinin leggjast gegn yfirtökunni
Brimgarðar, langsamlega stærsti eigandi fasteignafélagsins Eikar, leggjast gegn yfirtökutilboði Regins í félagið. Brimgarðar eru dótturfélag Langasjós, eignarhaldsfélags Mata-systkinanna svokölluðu.

Icewear Garnlínan slær í gegn
Nýlega opnaði Icewear glæsilega garnverslun í Fákafeni 9 í tengslum við nýjustu framleiðslulínu fyrirtækisins, Icewear Garn.

Fjögur ný hótel rísa undir Eyjafjöllum og á Hvolsvelli
Fjögur ný hótel eru í undirbúningi í Rangárþingi eystra með gistirými fyrir samtals um tvöþúsund manns. Þrjú hótelanna yrðu undir Eyjafjöllum og eitt á Hvolsvelli.

Magnesíum heiti potturinn - fyrsta sinn á Íslandi
Better You hefur tekið höndum saman við Laugardalslaug þar sem boðið verður upp á heitan pott með magnesíum flögum alla fimmtudaga í sumar.

Andlegt ofbeldi á vinnustað felur oft í sér meira skipulag en einelti
„Það eru oft óljós mörk á milli andlegs ofbeldis og eineltis á vinnustöðum og þótt færri mál komi upp á vinnustöðum þar sem líkamlegt ofbeldi á sér stað, kemur það þó fyrir,“ segir Helga Lára Haarde, ráðgjafi hjá Attentus.

Óðinn ráðinn framkvæmdastjóri Festi fasteigna
Óðinn Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Festi fasteigna ehf.. Hann mun hefja störf þann 1. september.

Fimm verkefni kvenna hlutu styrk FrumkvöðlaAuðar
Í gær fór fram úthlutun styrkja úr sjóði FrumkvöðlaAuðar, sem er í eigu Kviku banka. Fimm frumkvöðlaverkfni hlutu styrk úr sjóðnum.

Keahótel taka við Hótel Grímsborgum
Keahótel hafa tekið við rekstri Hótel Grímsborga í Grímsnesi, með undirritun samnings þess efnis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kea Hótelum.

Auður hættir sem framkvæmdastjóri Landverndar
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, hefur sagt starfi sínu lausu hjá samtökunum. Auður hefur sinnt starfinu frá árinu 2018.