Fótbolti

Evra ekki með United

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Patrice Evra í leik með Manchester United.
Patrice Evra í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images

Patrice Evra verður ekki með Manchester United gegn Celtic í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Evra er meiddist á lærvöðva í leik United og West Brom um helgina og verður af þeim sökum ekki með þegar United mætir Celtic á Old Trafford annað kvöld. Búist er við því að John O'Shea taki stöðu hans í liðinu.

Marc Crosas fór ekki með Celtic til Manchester en hann meiddist í leik Celtic og Inverness í skosku úrvalsdeildinni um helgina. Þar að auki eru þeir Jan Vennegoor of Hesselink, Gergios Samaras og Chris Killen allir meiddir.

Michael Carrick og Owen Hargreaves eru sem fyrr frá vegna meiðsla en þeir Carlos Tevez og Anderson eru aftur komnir til Manchester eftir að hafa leikið með landsliðum sínum í síðustu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×