Körfubolti

Hlynur og Jakob saman með 45 stig í sigri á toppliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Heimasíða Sundsvall
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson fóru á kostum í 94-88 sigri Sundsvall Dragons á toppliði LF Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Leikurinn var æsispennandi en Sundsvall var sterkari á lokasprettinum.

Hlynur var stigahæstur hjá Sundsvall í leiknum með 23 stig og Jakob Örn Sigurðarson bætti við 22 stigum og 5 stoðsendingum. Þeir hittu saman úr 12 af 18 skotum sínum utan af velli og settu ennfremur niður 16 af 17 vítum sínum.

Sundsvall Dragons hefur verið á miklu skriði upp á síðkastið og ekki síst fyrir frábæra frammistöðu þeirra félaga. Þetta var sjöundi sigur liðsins í röð í deildinni og hann kom liðinu upp í 3. sæti, fjórum stigum á eftir LF Basket en með leik inni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×