Fótbolti

Ramsey: Getum unnið án Cesc

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aaron Ramsey í leiknum í kvöld.
Aaron Ramsey í leiknum í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal, segir að liðið geti vel náð árangri í vetur þó svo að Cesc Fabregas sé farinn frá félaginu til Barcelona á Spáni.

Ramsey var í eldlínunni með Arsenal í kvöld þegar að liðið vann nauman 1-0 sigur á Udinese í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Theo Walcott skoraði eina mark leiksins en liðin mætast að nýju á Ítalíu í næstu viku.

Það var einmitt Ramsey sem lagði upp mark Arsenal í kvöld en honum er sjálfsagt ætlað að hjálpa til með að fylla í skarðið sem Fabregas hefur skilið eftir sig.

„Það er kominn tími til að halda áfram,“ sagði hann eftir leik. „Hann reyndist félaginu vel en nú er hann farinn. Við verðum að einbeita okkur að því sem við erum með í höndunum. Við höfum trú á þeim leikmönnum sem eru hér og teljum að við getum náð árangri á tímabilinu.“

„Vonandi getum við byggt á þessum leik í kvöld og haldið áfram að ná jákvæðum úrslitum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×