Fótbolti

Sá nýi númer fjögur hjá Barcelona-liðinu - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas. Mynd/Nordic Photos/Getty
Cesc Fabregas baðaði sig í sviðsljósinu í dag þegar hann var kynntur til leiks sem nýr leikmaður Barcelona. Fabregas skrifaði undir nýjan fimm ára samning og mun spila í treyju númer fjögur alveg eins og hjá Arsenal.

Fabregas er því kominn í hóp með þeim Lionel Messi, Xavi, Andrés Iniesta en nú verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þjálfarnum Pepp Guardiola takist að koma Fabregas inn í hið rómaða miðjuspil liðsins.

Ljósmyndarar helstu myndaveitna heimsins voru að sjálfsögðu mættir á staðinn og hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af þessarri langþráðu stund í lífi Cesc Fabregas. Fabregas var alinn upp hjá Barca en hann fór til Arsenal sextán ára gamall þar sem að hann síðan blómstraði.

Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×