Körfubolti

Hörður skoraði fimm stig í tapi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Jólasteikin sat í Herði Axel og félögum
Jólasteikin sat í Herði Axel og félögum vísir/daníel
Mitteldeutscher tapaði 78-66 á heimavelli fyrir Ludwigsburg í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Skelfilegur þriðji leikhluti varði Mitteldeutscher að falli.

Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 5 stig, tók frákast, gaf 2 stoðsendingar og stal 2 boltum fyrir Mitteldeutscher en Hörður hefur oft hitt betur en í kvöld.

Hörður hitti úr aðeins einu af sex þriggja stiga skotum sínum og hvorugt tveggja stiga skota hans vildi niður en hann nýtti bæði vítin sín. Hann skoraði öll stigin sín snemma í leiknum.

Jafnræði var með liðinum í fyrri hálfleik og var jafnt í hálfleik 36-36 en í fjórða leikhluta skildu leiðir.

Ekkert gekk hjá Mitteldeutscher í sókninni og skoraði liðið aðeins 9 stig gegn 23 og þann mun náði liðið aldrei að vinna upp og vann Ludwigsburg öruggan sigur að lokum.

Mitteldeutscher er í áttunda sæti deildarinnar með 7 sigra í 14 leikjum. Ludwigsburg fagnaði sínum fimmta sigri í 15 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×