Íslenski boltinn

Breiðablik og Þór/KA áfram með fullt hús

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aldís Kara Lúðvíksdóttir.
Aldís Kara Lúðvíksdóttir. Vísir/Arnþór
Breiðablik og Þór/KA hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í Lengjubikar kvenna í fótbolta en bæði fögnuðu sigrum í leikjum sínum um helgina.

Sandra María Jessen er komin aftur af stað eftir krossbandsslit og hún skoraði sigurmark Þór/KA í 1-0 sigri á Fylki. Þór/KA vann 3-1 sigur á Selfossi í fyrsta leiknum sínum.

Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoraði fernu fyrir Breiðablik í 8-1 sigri á ÍBV. Hin mörkin skoruðu þær Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, Telma Hjaltalín Þrastardóttir, Agla María Albertsdóttir og Elena Brynjarsdóttir.

Aldís Kara skoraði líka í 3-1 sigri á Stjörnunni í fyrstu umferðinni en Fanndís Friðriksdóttir skoraði þá tvö mörk.

Öll hin liðin hafa tapað stigum í fyrstu tveimur umferðunum en Stjarnan og Selfoss spila síðasta leikinn í 2. umferðinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×