Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, mun eiga fundi með forvígismönnum Evrópusambandsins í Brussel síðar í dag og á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu,
Forsætisráðherra mun eiga fundi með Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Donald Tusk, forseta leiðtogará ðs sambandsins. Á fundunum verða samskipti Íslands og Evrópusambandsins rædd, meðal annars framkvæmd EES-samningsins og möguleikar á auknu samstarfi á öðrum sviðum.
Einnig verða efnahagsmál og norðurslóðir til umræðu, sem og staða mála í Evrópu sem er mjög í deiglunni nú um stundir. Þá mun forsætisráðherra kynna sér starfsemi Eftirlitsstofnunar EFTA.
Sigmundur Davíð fundar með forvígismönnum ESB

Tengdar fréttir

Sitjandi ríkisstjórn meira á flakki en sú sem var á undan henni
Gunnar Bragi Sveinsson er ferðast mest að ráðherrum síðustu og núverandi stjórnar. Kostnaður við ferðalög stjórnanna á fjögurra ára tímabili nemur minnst 260 milljónum króna.