Körfubolti

Jón Arnór og félagar slógu met með sigri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hópmynd eftir leikinn sem Jón birti á Twitter-síðu sinni.
Hópmynd eftir leikinn sem Jón birti á Twitter-síðu sinni. vísir/twitter
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Valencia unnu sinn 21. leik í röð í dag gegn Manresa, 74-62, á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik.

Það mun vera met hjá félaginu en Jón Arnór tísti einmitt um það að leik loknum. Íslendingurinn skoraði 7 stig í leiknum.

Valencia er því sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×