Körfubolti

Jón Arnór og félagar í vondum málum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Valencia eru komnir í erfiða stöðu í undanúrslitum spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir 97-88 tap fyrir Real Madrid í kvöld.

Valencia hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í einvíginu og þarf því að vinna þrjá leiki í röð til að komast í lokaúrslitin.

Jón Arnór skoraði fimm stig á tæpum 17 mínútum í leiknum í kvöld.

Leikmenn Valencia voru í fínum málum lengi vel og þeir leiddu með einu stigi, 62-63, fyrir fjórða og síðasta leikhlutann.

Þar hafði Real Madrid yfirhöndina og skoraði 35 stig gegn 24 hjá Valencia. Lokatölur því 97-88, Real Madrid í vil.

Liðin mætast næst á heimavelli Valencia á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×