Handbolti

Strákarnir komust ekki í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Strákarnir voru slegnir eftir tapið í dag.
Strákarnir voru slegnir eftir tapið í dag. mynd/instagram-síða hsí
Ungu strákarnir okkar í U-20 ára landsliðinu í handbolta munu spila um fimmta til áttunda sætið á EM.

Það varð ljóst er Spánverjar unnu öruggan sigur á Póllandi, 23-14. Spánverjar fylgja því Frökkum í undanúrslitin en Ísland hafnar í þriðja sæti milliriðilsins.

Ísland fer því í leik næst um hvort það spili um fimmta eða sjöunda sætið í lokaleik sínum á mótinu.

Strákarnir steinlágu gegn Frökkum fyrr í dag og þurftu að treysta á pólskan sigur gegn Spáni en sá sigur kom ekki.


Tengdar fréttir

Algjört hrun gegn Frökkum

Líkur íslenska U-20 ára liðsins á að komast í undanúrslit á EM eru hverfandi eftir skell gegn Frökkum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×