Handbolti

Ólafur með sjö mörk í tapi í Brest

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur skoraði sjö mörk.
Ólafur skoraði sjö mörk. vísir/ernir
Sjö mörk Ólafs Guðmundssonar dugðu Kristianstad ekki til sigurs á Meshkov Brest í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag. Lokatölur 32-27, Hvít-Rússunum í vil.

Íslendingarnir þrír voru á sínum stað í liði Kristianstad í Brest í dag. Ólafur skoraði sjö mörk úr 13 skotum og var næstmarkahæstur í liði Kristianstad á eftir sænska hornamanninum Jerry Tollbring sem gerði átta mörk. Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt mark en Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað.

Kristianstad er með þrjú stig eftir sex umferðir í B-riðli.

Aron Pálmarsson var ekki í liði Veszprém sem marði eins marks sigur, 30-29, á Bjerringbro-Silkeborg á heimavelli.

Veszprém er með átta stig í 3. sæti A-riðils. Í sama riðli vann Paris Saint-Germain öruggan sigur á Barcelona, 32-26, í uppgjöri tveggja efstu liðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×