Handbolti

Alexander varði lokaskotið í vörninni og tryggði Löwen sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alexander Petersson fagnar.
Alexander Petersson fagnar. Vísir/Getty
Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen vann eins marks heimasigur á króatíska liðinu RK Zagreb, 25-24, í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld.

Alexander Petersson skoraði tvö mörk í leiknum en landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson komst ekki á blað.

Alexander var hetja sinna manna í lokin þegar hann varði lokskot Zagreb-manna á síðustu sekúndunni en Igor Vori hefði tryggði króatíska liðinu stig hefði hann skorað.

Þetta var þriðji sigur Rhein-Neckar Löwen í röð í Meistaradeildinni og fjórði sigur liðsins í sex leikjum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Löwen hefur unnið alla þrjá heimaleiki sína til þessa í keppninni í ár en hina tvo vann liðið þó bara með einu marki.

Rhein-Neckar Löwen er í harðri toppbaráttu í riðlinum við lið KS Vive Kielce frá Pólland og RK Vardar frá Makedóníu. Löwen komst upp í efsta sætið með þessum sigri en hin liðin, sem eru stigi á eftir, eiga bæði leik inni á Löwen-menn.

Zagreb er áfram í neðsta sæti riðilsins en króatíska liðið hefur aðeins náð í tvö stig úr fyrstu sex leikjum sínum.

Guðjón Valur tók ekki skot í leiknum samkvæmt tölfræði evrópska handboltasambandsins en danski þjálfarinn Nikolaj Jacobsen veðjaði greinilega ekki á íslenska hornamanninn í leiknum í kvöld. Makedóníumaðurinn Dejan Manaskov spilaði í vinstra horninu og var með 4 mörk úr 5 skotum. Alexander Petersson þurfti sex skot til að skora mörkin sín tvö.

Markahæstu leikmenn Rhein-Neckar Löwen liðsins voru Svisslendingurinn Andy Schmid með sjö mörk úr níu skotum og hægri hornamaðurinn Marius Steinhauser var síðan með sjö mörk úr sjö skotum.

Rhein-Neckar Löwen komst í 3-1, 8-4 og 11-6 í fyrri hálfleiknum en liðið var síðan fjórum mörkum yfir í hálfleik, 14-10. Löwen var með gott skot stærsta hluta seinni hálfleiks en var nærri því búið að missa frá sér sigurinn í lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×