Körfubolti

Sigmundur dæmir með Rússa og Norðmanni í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigmundur Már Herbertsson ,
Sigmundur Már Herbertsson , Vísir/Vilhelm
Íslenski FIBA-dómarinn Sigmundur Már Herbertsson heldur áfram að frá verkefni í evrópska körfuboltanum.

Sigmundur Már dæmir í kvöld leik Luleå Basket og Udominate í FIBA EuroCup kvenna.

Leikurinn er í H-riðli keppninnar og eru bæði liðin sænsk, í síðustu viku var Leifur S. Garðarsson á ferðinni og dæmdi heimaleik hjá báðum þessum liðum. Svíarnir ættu því að vera farnir að kannast við íslenska dómara eftir þessa Evrópukeppni

Bæði liðin hafa tapað tveim fyrstu leikjum sínum og þyrstir því í sinn fyrsta sigur í kvöld.

Meðdómarar Sigmundar er kvöld eru Ilya Putenko frá Rússlandi og Per-Kristian Larsen frá Noregi. Eftirlitsmaður er Eugeniusz Kuglarz frá Póllandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×