Handbolti

Kiel komið í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð Gíslason.
Alfreð Gíslason. vísir/getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel komust auðveldlega í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í kvöld.

Þá sótti liðið Ludwigshafen-Friesenheim heim og vann öruggan sigur, 23-29.

Niklas Ekberg skoraði átta mörk fyrir Kiel í völd og Marko Vujin sex.  Niklas Landin varði svo níu skot í marki Kiel.

Alexander Feld var markahæstur í liði heimamanna með sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×