Handbolti

Vranjes næsti þjálfari Arons?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ljubomir Vranjes.
Ljubomir Vranjes. vísir/getty
Það er sterkur orðrómur í handboltaheiminum í dag að Svíinn Ljubomir Vranjes sé að taka við ungverska liðsins Veszprém sem og ungverska landsliðinu.

Aron Pálmarsson leikur með Veszprém sem er í dag þjálfað af Spánverjanum Xavi Sabate. Sabate þjálfar einnig ungverska landsliðið.

Vranjes hefur verið eftirsóttur af mörgum síðustu ár en hann þjálfar þýska liðið Flensburg. Hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2020 og er dýrt að losa hann undan samningi.

Það ku ekki vera allt of mikil gleði með störf Sabate þó svo hann hafi fengið öll völd í Ungverjalandi. Þar á bæ eru menn sagðir vera til í að galopna veskið til þess að fá Vranjes.

Margir handboltamiðlar hafa greint frá þessu í dag en ekki hefur neitt fengist staðfest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×