Fótbolti

Átta breytingar á byrjunarliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kjartan Henry fær tækifæri í byrjunarliðinu.
Kjartan Henry fær tækifæri í byrjunarliðinu. vísir/getty
Heimir Hallgrímsson hefur tilkynnt byrjunarlið íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir vináttulandsleikinn gegn Írlandi í kvöld.

Heimir gerir átta breytingar á byrjunarliðinu frá 1-2 sigrinum á Kósóvó á föstudaginn.

Birkir Már Sævarsson, Ragnar Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson eru þeir einu sem halda sæti sínu í byrjunarliðinu.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport HD. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.

Byrjunarliðið Íslands er þannig skipað:

Mark: Ögmundur Kristinsson

Vörn: Birkir Már Sævarsson, Sverrir Ingi Ingason, Ragnar Sigurðsson, Hörður Björgvin Magnússon

Miðja: Rúrik Gíslason, Ólafur Ingi Skúlason, Aron Einar Gunnarsson, Aron Sigurðarson

Sókn: Kjartan Henry Finnbogason, Jón Daði Böðvarsson

mynd/ksí

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×