Íslenski boltinn

Víðir sló Keflavík úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Albert Brynjar og félagar í Fylki áttu ekki í neinum vandræðum með Vatnaliljur.
Albert Brynjar og félagar í Fylki áttu ekki í neinum vandræðum með Vatnaliljur. vísir/anton
Keflavík er úr leik í Borgunarbikar karla eftir tap fyrir Víði í grannaslag í 64-liða úrslitunum í dag.

Staðan var markalaus að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Þar reyndust Víðismenn sterkari á svellinu, skoruðu fimm spyrnum en Keflvíkingar úr fjórum.

Inkasso-deildarliðin Þróttur R., Fylkir og Leiknir R. áttu ekki í neinum vandræðum í sínum leikjum og skoruðu haug af mörkum.

Þróttur vann Afríku 0-11, Fylkir vann Vatnaliljur 7-0 og Leiknir R. vann 0-5 sigur á Stokkseyri.

Úrslit dagsins:

Keflavík 4-5 Víðir

Árborg 4-3 Hamar

Tindastóll 1-2 Þór

Álftanes 0-2 Ægir

Kári 3-0 Augnablik

Sindri 4-1 Huginn

Fylkir 7-0 Vatnaliljur

GG 0-3 Þróttur V.

Njarðvík 0-2 ÍR

Berserkir 3-0 KFR

ÍH 0-1 KH

Afríka 0-11 Þróttur R.

Stokkseyri 0-5 Leiknir R.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×