Handbolti

Þórey í úrslitaeinvígið

Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir. vísir/ernir
Landsliðskonan Þórey Rósa Stefánsdóttir mun spila sína síðustu leiki í Noregi í leikjum um norska meistaratitilinn.

Lið Þóreyjar, Vipers, lagði Storhamar í kvöld, 29-19, og er þar með komið í úrslitarimmuna. Vipers tapaði fyrri leiknum með tveggja marka mun en var í ekki í vandræðum með að vinna það upp í kvöld.

Þar bíður lið Larvik og verður leikið heima og heiman í úrslitarimmunni. Fyrri leikurinn fer fram þann 18. maí.

Í sumar flytur Þórey Rósa aftur heim en hún ætlar að spila með Fram næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×