Leiknir kom sér vel fyrir um miðbik í Inkasso deildarinnar með sigri á Haukum á Ásvöllum.
Sævar Atli Magnússon gerði bæði mörk Leiknis. Það fyrra kom strax á 15. mínútu með einstaklingsframtaki. Hann skoraði seinna markið eftir hornspyrnu um miðbik seinni hálfleiks. Fleiri urðu mörkin ekki, lokatölur 2-0 fyrir Leikni.
Leiknir átti sigurinn nokkuð verðskuldaðann þar sem þeir voru sterkari aðilinn í leiknum.
Bæði lið eru nú með 13 stig um miðbik deildarinnar.
Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Leiknir sótti sigur á Ásvelli
Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar

Mest lesið

Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“
Íslenski boltinn

Ná samkomulagi um kaup á Alberti
Fótbolti

Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“
Íslenski boltinn

John Andrews og Björn reknir
Íslenski boltinn

Staðfesta kaupin á Alberti Guðmunds
Fótbolti

Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika
Íslenski boltinn


Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu
Íslenski boltinn

