Frostið í Chicago í Bandaríkjunum hefur mælst um -30°C síðasta sólahringinn og með vindkælingu hefur hitinn farið niður í -56°C á sumum stöðum í miðvesturríkjunum. Kuldakastið hefur haft miklar raskanir í för með sér, flug og almenningssamgöngur hafa lamast og að minnsta kosti átta eru taldir hafa látist af völdum aðstæðna.
Sama er þó ekki uppi á teningnum á norðvesturhjara Norður-Ameríku þar sem óvenjuhlýtt hefur verið í veðri. Það hefur skapað vandræði fyrir hundasleðakeppendur í Alaska. Þannig segir Anchorage Daily News frá því að blása hafi þurft af Willow 300-hundasleðakeppnina sem átti að hefjast í bænum Willow í morgun.
Þrjátíu og fjórir keppendur voru skráðir til leiks en um undankeppni er að ræða fyrir aðra stærri þúsund mílna hundasleðakeppni. Keppnishaldarar segja að rigning og slæmar aðstæður á leiðinni hafi leitt til þess að þeir þurftu að aflýsa henni.
Hluti leiðarinnar lá undir standandi vatni eftir viðvarandi hlýindi undanfarið. Starfsmenn höfðu lagað þau svæði en rigning í byrjun vikunnar batt enda á vonir skipuleggjenda um að hægt væri að halda keppnina.
Fleiri keppnir hafa orðið veðuraðstæðum í Alaska að bráð í vetur. Einni var nýlega frestað og leiðir tveggja fyrirhugaðra keppna hafa verið styttar vegna snjóleysis og slæmra aðstæðna.
Heimskautaloft sem streymir suður
Kuldabolinn sem herjar á miðvesturríkin er af völdum heimskautalofts sem yfirleitt er haldið í skefjum af skotvindum yfir norðurskautinu. Þegar skotvindarnir veikjast getur kalt loft frá pólsvæðunum skriðið suður á bóginn en hlýtt loft á móti leitað norður.Þannig hefur hitinn annars staðar á norðurhveli víða verið vel yfir meðaltali á sama tíma og kuldamet gætu fallið í hluta Norður-Ameríku.
Kenningar hafa jafnvel verið uppi um að hnattræn hlýnun gætu stuðlað að veikingu skotvindanna sem halda heimskautaloftinu í skorðum. Kuldaskot af þessu tagi gætu þannig jafnvel orðið tíðari eftir því sem hnattræn hlýnun færist í aukana á næstu árum og áratugum.
„Heimurinn (og norðurhvelið) er enn óvenjuhlýr, hnattræn hlýnun er ekki skyndilega horfin!“ tísti Stefan Rahmstorf, prófessor í hafeðlisfræði við Potsdam-háskóla, og vísaði til háðsorða Donalds Trump Bandaríkjaforseta í vikunni um að kuldakastið sýndi á einhvern hátt fram á að hnattræn hlýnun ætti sér ekki stað.
Wow! That is quite a cold anomaly over North America now: 20 °C too cold for the season! A big blob of Arctic air has gone astray and wandered off the pole. Note to Trump: the world (and Northern Hemisphere) is still anomalously warm, global warming has not suddenly gone missing! pic.twitter.com/gqZQmhW9nK
— Stefan Rahmstorf (@rahmstorf) January 30, 2019