Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra velti því upp á samfélagsmiðlum í dag hvort ekki kæmi fleira til en hátt áfengisgjald þegar skýra á hátt áfengisverð á Íslandi.
Samanburður hagstofu ESB á áfengisverði hefur leitt í ljós að áfengisverð á Íslandi er 168 prósentum hærra en meðaltalið í Evrópu. Eina landið sem kemst nálægt Íslandi í áfengisverði er Noregur þar sem það er 152 prósentum hærra.


Uppsöfnuð áhrif af ýmsu
„Ég hef líka verið að hugsa um það vegna þess að nú vinnur maður í miðbænum og maður tekur eftir því að margir veitingastaðir eru ýmist að loka eða skipta um eigendur og greinilega í rekstrarerfiðleikum. Þannig að maður hefur aðeins verið að hugsa um þessa hluti og nú er það þannig að áfengisgjaldið mun breytast um um það bil fjórar krónur á venjulega flösku af bjór, með virðisaukaskattsáhrifunum, við að áfengisgjaldið fylgir í humátt eftir verðlagi,“ segir Bjarni í samtali við fréttastofu.Hann gerir ekki lítið úr því að gjaldið er íþyngjandi og hátt í alþjóðlegum samanburði. Reyndar hafi þó verið nýlega gerð sú breyting að hækka gjaldið en breyta virðisaukaskattinum á móti. Það eitt og sér skýri þó ekki muninn þegar áfengisgjaldið er borið saman við útsöluverð á bjór á veitingastöðum almennt.
„Það eru líka viðbrögðin sem ég er að fá frá veitingageiranum. Það eru uppsöfnuð áhrif af ýmsu. Það eru miklar launahækkanir sem hafa átt sér stað á undanförnum árum, leiguverð hefur hækkað mikið, önnur launatengd gjöld eru að hafa hér áhrif og álagningin er greinilega gríðarlega mikil í þessum geira. Jafnvel þó maður tæki af áfengisgjaldinu, tíu til tuttugu prósent, þá sé ég ekki að það myndi breyta öllu varðandi útsöluverðið miðað við hvernig álagningin er.“
Áfengisgjaldið mun hækka um 2,5 prósent samkvæmt því sem boðað er í fjárlagafrumvarpinu en Bjarni segir það fylgja verðlagi.
„Fyrir venjulega flösku af bjór, sem er 33 sentílítrar og með fimm prósent áfengisinnihaldi af rúmmáli, er áfengisgjaldið að fara úr 111 krónum upp í 114 krónur.“
Skoða hvort hægt sé að létta undir
Hann segir ríkisstjórnina ekki hafa gert tillögu um hve álagningin mun hækka mikið hjá ÁTVR en það sé ein af forsendum í fjármálaáætlun. „Að það gæti komið til slíkrar hækkunar en það hefur engin ákvörðun verið tekin um það.“Spurður hvort tekið verði mið af þessari umræðu við slíka ákvörðun telur Bjarni fulla ástæðu til að velta þeirri spurningum upp hvernig gengur að reka veitingahús almennt á Íslandi í dag.

Höfum verið dýrasta land Evrópu
Hann segir ástæðu til að fylgjast vel með verðþróun í landinu meðal annars vegna mikilvægis þess fyrir ferðaþjónustuna að geta boðið samkeppnishæf verð.„Við höfum á undanförnum árum verið eitt dýrasta land í Evrópu og það getur haft áhrif á komur ferðamanna til landsins. En það er líka spegilmynd af öðru, sem eru mikil lífskjör á Íslandi, hár kaupmáttur og tiltölulega há laun, kaupmáttur launa er hæstur á Íslandi innan OECD ríkjanna. Þannig að þetta er allt að kallast á hvað við annað. En það verður að gá að því að opinber álagning á atvinnustarfsemi sé ekki orsakavaldurinn sérstaklega.“